Fréttablaðið - 05.11.2005, Page 26
5. nóvember 2005 LAUGARDAGUR26
Sameiginleg forsjá varð lög-leg hér á landi árið 1992, og nú er svo komið að rúmlega helmingur barna lenda í
sameiginlegri forsjá foreldra við
skilnað og sambúðarslit. Langflest
þessara barna eiga lögheimili hjá
móður sinni, og fara til föður síns
tvisvar til fjórum sinnum í mánuði.
Þetta kemur fram í lokaskýrslu
forsjárnefndar sem skilað var til
dómsmálaráðherra fyrr á þessu ári.
Í rannsókn á forsjármálum
sem Sigrún Júlíusdóttir dósent og
Nanna K. Sigurðardóttir félags-
fræðingur gerðu fyrir nokkrum
árum kom fram að þó sameiginleg
forsjá breyti hegðunarmynstri for-
eldra í raun lítið, þá eru viðhorfs-
breytingar og breytingar á sam-
starfi foreldra umtalsverðar.
„Ein skýrasta vísbendingin er
ánægja feðra og jákvæðari sýn
þeirra á hlutdeild sína í áfram-
haldandi uppeldi barnsins. Önnur
vísbending er jákvæðara viðhorf
hjá mæðrum til samvista feðra
og barna. Þetta jákvæða viðhorf
skilar sér að öllum líkindum til
barnsins í reynd, en stuðningur frá
mæðrunum er einn af mikilvæg-
ustu þáttunum í að byggja upp góð
tengsl við heimili föðursins,“ segir
í niðurstöðum rannsóknarinnar.
„Þessi viðhorfsbreyting felur í
sér að skilnaður verður fyrst og
fremst uppsögn á sambúðar- og
hjúskaparsáttmálanum, en ekki á
foreldrahlutverkinu.“
Nefndin, sem setið hefur í átta
ár, skilaði áfangaskýrslu til dóms-
málaráðherra 1999, og var ýmsum
tillögum hennar hrundið í fram-
kvæmd við samþykkt barnalaga
2003. Meðal þeirra var ekki tillaga
um að sameiginlegt forræði yrði
gert að meginreglu við sambúðar-
slit þannig að flest börn lentu í
forsjá beggja foreldra, og ítrekaði
nefndin þessa tillögu við gerð loka-
skýrslu sinnar.
Jafnframt skortir enn aðgengi-
legar upplýsingar til foreldra um
hvað felist í sameiginlegri forsjá,
sem nefndin hefur einnig ítrekað
lagt til að verði útbúnar.
Dómsmálaráðuneytið hefur enn
ekki gefið upp hvernig það hyggst
bregðast við þessum tillögum
nefndarinnar.
Hætta ekki að vera foreldri við skilnað
Sífellt fleiri foreldrar
semja um sameiginlega
forsjá barna sinna við
sambúðarslit og skiln-
að. Þótt flest barnanna
eyði samt sem áður
mestum hluta tíma síns
hjá móður sinni, þá eru
viðhorfsbreytingarnar
sem fylgja sameignlegri
forsjá það jákvæðar að
ekki er unnt að hunsa
þær. Sigrún María
Kristinsdóttir skoðar
sameiginlega forsjá.
Helgi Steinþór Elíeserson hefur
barist í níu ár við að fá að hitta
dóttur sína, sem nú er 12 ára.
Þótt bæði sýslumaðurinn í
Reykjavík og dómsmálaráðu-
neytið hafi úrskurðað honum
umgengnisrétt, hitti hann dóttur
sína einungis tvisvar á síðasta
ári, og höfðu feðginin þá ekki
sést í þrjú ár.
„Þetta er ofboðslega sárt.
Stundum held ég að ég sé búinn
að sætta mig við þetta, en svo
kemur sársaukinn bara upp
aftur og aftur,“ segir Helgi, og
bætir við að hann sé orðinn lang-
þreyttur á baráttunni fyrir því
að geta átt eðlileg samskipti við
dóttur sína. Að sögn Helga hefur
hann lagalegan rétt til samskipta
annan hvern laugardag.
Helgi og barnsmóðir hans
slitu samvistum þegar telpan
var þriggja ára. Sambúðarslit-
in voru að Helga sögn erfið og
lenti hann í óreglu næsta árið, en
fór svo í meðferð á fjögurra ára
afmælisdegi dóttur sinnar. Hann
segist hafa staðið sig síðan og að
hann hafi haft forsjá með öðrum
börnum sínum án vandkvæða.
Frá upphafi gerðu foreldr-
arnir samning um að móðirin
héldi telpunni, en Helgi hefði
umgengnisrétt. Dómar hafa
fallið í málinu, og Helga jafnan
verið veittur umgengnisréttur
við dóttur sína. Í forræðisdeilu
voru bæði dæmd jafnhæf en
dómurinn úrskurðaði að ylli
barninu minni röskun ef hún
yrði áfram hjá móður sinni.
Fram að tólf ára aldri barns-
ins, gat Helgi farið fram á dags-
sektir, þar sem móðirin yrði
sektuð í hvert sinn sem hann
fengi ekki barnið, en Helgi seg-
ist ekki hafa haft áhuga á því.
„Það er ekki hagur minn að láta
sekta hana, því það sem ég er að
sækjast eftir er umgengni við
barnið.“ Einnig stendur Helga til
boða að sækja telpuna með full-
trúa sýslumanns. „En ég myndi
aldrei fara með lögregluna á
heimilið og ná í barnið mitt,“
segir Helgi.
Barnsmóðir Helga vildi ekki
tjá sig um málið.
Fær ekki að hitta dóttur sína
SAKNAR DÓTTUR SINNAR Helgi Steinþór Elíeserson og kona hans, Sólveig Lilja Óskars-
dóttir, skoða myndir af dóttur Helga sem þau tóku þegar þau síðast hittu hana.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
VINNINGAR VERÐA AFHENDIR HJÁ BT SMÁRALIND. KÓPAVOGI.
MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB.
149 KR/SKEYTIÐ. * AÐALVINNINGUR ER DREGIN ÚR ÖLLUM INNSENDUM SMS SKEYTUM
AÐ
AL
VI
NN
IN
GU
R
PS
P
+
GT
A
SE
ND
U
SM
S
SK
EY
TI
Ð
BT
C
PS
F
Á
NÚ
M
ER
IÐ
1
90
0
SV
AR
AÐ
U
EI
NN
I S
PU
RN
IN
GU
U
M
PL
AY
ST
AT
IO
N
OG
Þ
Ú
GÆ
TI
R
UN
NI
Ð!
12
. H
VE
R
VI
NN
UR
.
FU
LL
T
AF
A
UK
AV
IN
NI
NG
UM
:
PS
P
TÖ
LV
UR
PS
2
TÖ
LV
UR
PS
P
TÖ
LV
UL
EI
KI
R
PS
2
TÖ
LV
UL
EI
KI
R
DV
D
M
YN
DI
R
FU
LL
T
AF
P
C
TÖ
LV
UL
EI
KJ
UM
KI
PP
UR
A
F
CO
CA
C
OL
A!
SKILNAÐUR Skilnaður og sambúðarslit for-
eldra fara oft ákaflega illa með sálarlíf barna,
en rannsóknir sýna að sameiginlegt forræði
auðveldar öll samskipti og breyta viðhorfum
foreldra til hvors annars. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
20032002 2004
127 141
155 162
197 209
Umgengnismál í umdæmi
Sýslumannsins í Reykjavík:
N
Ý
M
Á
L
A
LL
S
LO
K
IÐ
20032002 2004
197
Dagssektarmál í umdæmi
Sýslumannsins í Reykjavík:
HEIMILD: SÝSLUMAÐURINN Í REYKJAVÍK
N
Ý
M
Á
L
A
LL
S
LO
K
IÐ
3 0
5
9
7
12