Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.11.2005, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 05.11.2005, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 5. nóvember 2005 27 TÍMAFREKT OG FLÓKIÐ ■ Þegar umgengnisdeilur enda hjá sýslumanni getur ferlið verið bæði tímafrekt og flókið, en fullnustuúrræði eru fyrir hendi. Ef annað foreldrið höfðar mál fyrir dómstólum og krefst forsjár, þá getur það foreldri krafist þess að dómstóllinn ákveði jafnframt umgengni foreldris við barnið sitt. Að öðrum kosti er það starf sýslu- manna, samkvæmt barnalögum, að skera úr um umgengnisdeilur, og er það mun algengara að sýslumenn sjái um þessi mál en dómstólar. Hafa ber í huga að sameiginlegt markmið allra opinberra aðila í þessu ferli eru hagsmunir barnsins. Sameiginlegt forræði var ekki löglegt á Íslandi fyrr en árið 1992, og dagsektirnar komu til skjalanna á þessari öld. Þegar leitað er til sýslumanns: * Í umgengnisdeilum getur hvort foreldri fyrir sig farið til sýslumanns og beðið um löglegan umgengnisúrskurð. * Sýslumaður byrjar á sáttaumleitunum, kallar á báða foreldra í viðtal og býður sáttaráðgjöf hjá sálfræðingi. Ef ástæða þykir til er Barnavernd kölluð til, og eftir viðræður og heimsóknir leggur hún sýslumanni til umsögn sína, en tekur engar ákvarðanir. * Þegar báðir foreldrar hafa tjáð sig og málið er talið fullrannsakað, úrskurðar sýslumaður um umgengni eða vísar málinu áfram til dómstóla. Þetta er að meðaltali sex til níu mánuðum eftir að málið fyrst kemur til sýslumanns. Hægt er að kæra úrskurð sýslumanns. * Ef sýslumaður úrskurðar um umgengni en forsjárforeldrið beitir umgengnistál- mun, geta dómstólar beitt þvingun- arúrræðum og sektað viðkomandi. Sýslumaður sér um að innheimta þessa dagsekt, allt að 30.000 krónum fyrir dag hvern frá og með deginum sem foreldrið beitir umgengnistálmun, og rennur sektin í ríkissjóð. Afar fágætt er að farið sé í fjárnám, en sektin er ekki innheimt nema foreldrið sem ekki fær að sjá barnið fari fram á það. Eftir að foreldrið sem hefur umgengnisrétt hefur hitt barnið einu til þrisvar sinnum, þá fellur uppsöfnuð sekt niður. Ef úrskurður sýslumanns er kærður, er ekki hægt að fara fram á dagsektir fyrr en málinu er lokið hjá dómsmálaráðuneytinu. * Ef dagsektir virka ekki, getur fulltrúi sýslumanns sótt barnið á heimili for- sjárforeldrisins í svokallaðri aðfaragerð, og farið með það til hins foreldrisins. Þessu úrræði hefur aldrei verið beitt í Reykjavík. * Við 12 til 14 ára aldur barnsins fer umgengnin eftir vilja barnsins, og ekki er hægt að beita dagsektum ef barnið neitar að hitta foreldri sitt. „Í sambúð er gert ráð fyrir að báðir foreldrar taki ábyrgð á börnunum. Ýmsar rannsóknir benda til þess að sameiginlegt forræði leysi úr ágreiningi foreldra í mörgum tilvik- um. Þegar svo er ekki, þá er ágrein- ingurinn oftar en ekki jafn harður,“ segir Garðar Baldvinsson, fyrrum formaður Félags ábyrgra feðra, sem segist hafa árlega fengið yfir 400 forræðis- og umgengnismál inn á borð til sín. Einungis 2,5 prósent barna fara í forsjá feðra við sambúðarslit. Rúm- lega helmingur barna fer í forsjá beggja foreldra við sambúðarslit og hjónaskilnað. Forsjárnefnd, sem skipuð var fyrir átta árum, skilaði af sér skýrslu í vor, þar sem hún lagði meðal annars til að meðlög og barnabætur foreldra með forsjá væru fryst á meðan umgengni foreldris við barn væri torvelduð, og tekur Garðar undir það. Jafnframt vilji félagið að þessi mál fari fyrir sérstakan dóm- stól eða stofnun, sem eingöngu sæi um forsjár- og umgengnismál, og tæki ekki lengri tíma en þrjá mán- uði til þess að kveða upp úrskurð. Sameiginleg forsjá leysir oft ágreining GARÐAR BALDVINSSON Félag ábyrgra feðra hefur viljað að við sambúðarslit verði börn sjálfkrafa undir sameiginlegu forræði for- eldra sinna, nema óskað sé eftir öðru. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON „Mál þar sem forsjárforeldrið neitar hinu foreldrinu um að hitta barn þeirra eru kannski ekki algeng, en þau eru heldur ekkert óalgeng,“ segir Ingi- mundur Sveinn Pétursson, formaður Félags einstæðra foreldra, en félagið býður lögfræðiaðstoð í deilum sem þessum. Yfirleitt telur foreldrið sem hindrar umgengnina að það sé að gera rétt og liggja misjafnar ástæður að baki þeirri trú. Til dæmis getur áfengis- eða fíkni- efnamisnotkun, jafnvel þótt neyslan fari ekki fram þegar barnið er nærri, sem og trúarbragðaágreiningur valdið því að forræðisforeldrið telji að barnið sé betur statt án hins foreldrisins. Þó er það til að forsjárforeldrið sé í hefndar- hug og noti barnið til að ná sér niðri á fyrrverandi maka sínum. Ingimundur nefnir dæmi um að báðir foreldrar hafi hringt í hann og gefið hvort sína söguna, báðar jafn trúverðugar. „Sýslumaður er í ofboðs- lega erfiðri aðstöðu þegar annar bendir á hinn. Ég hefði ekki hugmynd um hvernig leysa skyldi svona mál,“ segir Ingimundur. „En það er auðvitað ekkert skrítið að barnið vilji ekki hitta foreldri sitt, ef forsjárforeldrið er búið að hamra á því í nokkur ár að hitt for- eldrið sé ekki nógu gott.“ Umgengni hindruð í góðri trú INGIMUNDUR SVEINN PÉTURS- SON Formaður Félags einstæðra foreldra. www.zendium.no STYRKIR VARNIRNAR Í MUNNINUM zendium inniheldur mild efni sem vinna með náttúrulegum hreinsi- eiginleikum munnholsins. Nýja zendium tannkremið inniheldur ensím, zink og colostrum (broddmjólk) og veitir tönnunum mjög góða vörn gegn bakteríum. Með zendium tannkremi verður tannhirðan hvort tveggja í senn, mild og árangursrík. Prófið einnig nýja tannkremið Fresh+White Hvítari tennur Frísklegt bragð Inniheldur zink sem vinnur gegn andremmu zendium er milt á bragðið og freyðir lítið en er engu að síður öflugt tannkrem. zendium virkar vel þótt það freyði lítið vegna þess að góð tannhirða snýst ekki um mikla froðu og bragð. Getur milt tannkrem verið árangursríkt? Án triclosan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.