Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.11.2005, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 05.11.2005, Qupperneq 50
 5. nóvember 2005 LAUGARDAGUR34 Laufás, Egilsstöðum Fallegastan gatan á Egilsstöðum og jafnframt sú elsta. Þarna bjó ég öll mín uppvaxtarár, lék mér úti ásamt vinum mínum langt fram á kvöld, naut þess í botn að búa við sundurskorna götuna þegar hita- veitan var lögð og hjóla á nýju mal- biki. Í dag finnst mér ekkert betra en sitja í garðinum heima á sumrin og uppgötva að ekkert hefur í raun- inni breyst nema ef vera skyldi að trén eru hærri og grænni og garð- sláttuvélarnar háværari. Löngumýri, Akureyri Við upphaf menntaskólagöngu minnar, leigði ég hér herbergi hjá mestu dáindishjónum, þeim Óla og Stínu. Fyrsta skóladaginn tókst mér næstum að villast í stórborg- inni Akureyri en náði fljótt tökum á Byggðaveginum, Þingvalla- strætinu og stræti Helga magra. Útskrifaðist með láði í vamba- saumaskap frá Stínu sem bjó til slátur fyrir hálfan heiminn og gerði bestu kúmenkleinur í heimi. Beykilundur, Akureyri Það var sumsé vel uppi á Brekku sem ég leigði mína fyrstu íbúð. Fyrri veturinn leigði ég með Rögnu Árnýju sem kom inn hjá mér einhvers konar tilfinningu fyrir tísku, en seinni veturinn, og jafnframt minn síðasta á Akur- eyri, bjó ég ein. Hreinn draumur í dós fyrir menntaskólastúdínu á leið út í lífið. Mig minnir að leigan hafi verið í kringum tíu þúsund krónur og það var enginn sími. Ljúfu dagar... Rue de l‘Oasis, Montpellier Mætti með baguettuna og spanjól- una á hausnum en fann hvergi blátt hjól og var því nauðbeygð til að ganga í 45 mínútur á hverjum degi í skólann. Leigði herbergi með hinni amerísku Dawn þar til hún bugaðist á endalausri forvitni madame Tessier sem laumaðist inn í herbergið okkar á daginn til að skoða allt í krók og kring. Monsieur Tessier kenndi mér að bera fram „Monsieur“ og „Oui“. Ég bý að því enn þann dag í dag! Kvisthagi, Reykjavík Lítið herbergi í kjallara í þessari dásemdargötu. Man best eftir rauðu tóbaksklútunum hans Guðmundar Jónssonar blaktandi á snúrunum utan við gluggann minn og sund- ferðum með nöfnu minni í ískulda alla morgna í Vesturbæjarlauginni. Hún lét mig synda á hraðbrautinni. Bólstaðarhlíð, Reykjavík Guðríður vinkona mín bjargaði mér í tvígang með því að leigja mér þessa fínu íbúð í Bólstaðar- hlíðinni. Stærsta stofa sem ég hef augum litið! Eða svo til. Dinglaði mér þarna ein í fyrra skiptið en í það seinna réðum við Herborg, æskuvinkona mín frá Egilsstöð- um, þarna ríkjum. Og við vorum flottastar, í blóma lífsins! 3, Rue Draparnaud, Montpellier Rambaði á þessa litlu götu á afmælisdaginn minn. Stór og fín íbúð en við sambýlingarnir máttum skúra, skrúbba og bóna áður en hún varð virkilega fín. Minnsta eldhús, en jafnframt það krúttlegasta, sem ég hef búið við. Nágranni okkar, madame Billot svaf á daginn og vakti á kvöldin. Var iðin við að kvarta og minnis- stæðust er kvörtunin um að við gengjum of mikið um... 7, Impasse Gunther, Strassborg Hvað get ég sagt? Einn dásamleg- asti vetur lífs míns. 30 fermetra íbúð sem ég deildi með annarri meyju, Margréti Helgu. Hefði aug- ljóslega ekki gengið upp annars. Annað lítið eldhús en það var svo sem allt lítið! Impasse Gunther getur, eins og nafnið ber raunar með sér, tæplega flokkast sem gata. Eiginlega frekar undirgöng. En þegar út úr þeim var komið, bar við himin turna dómkirkjunn- ar í Strassborg og við fætur rann áin Ill. Lærði að drekka hvítvín og fæ enn vatn í munninn bara við til- hugsunina um tarte flambée! Njálsgata, Reykjavík Get ekki sagt að ég hafi fallið fyrir Norðurmýrinni. En íbúðin og gatan þjónuðu sínum tilgangi þetta ár sem ég stoppaði heima. 2, Oba Sokak, Istanbúl Litir, lykt, tónlist... Man enn eftir ökuferðinni upp Beyoglu-hæðina að þessu litla horni þar sem ég átti eftir að búa næstu 16 mánuði. Á neðstu hæðinni, kaupmaðurinn á horninu, tveimur hæðum ofar íbúðin mín og þetta fyrsta kvöld var ekkert gler í öllum glugg- unum í stofunni. Hlýtt loftið streymdi inn og fyrir fótum mér, Istanbúl. 150, Rue de la Roquette, París Fyrsta afdrepið eftir Tyrkland. Lífleg risastór gata í 11. hverfi og íbúðin var líka frábær. Eini gallinn á gjöf Njarðar: Hún var á sjöundu hæð og engin lyfta. Hver ferð upp og niður var tilefni langra og strangra samningaviðræðna. 11, Rue Trousseau, París Loksins, loksins, íbúð með arni sem virkaði! Lítil og hugguleg gata í 11. hverfi. Steinsnar frá markaðnum og Le Baron rouge þar sem var tilvalið að staldra við eftir innkaupin á laugardags- morgnum og bragða á nýjustu vínum eigandans. Á neðstu hæð- inni bjó Marcel sem, til að stækka íbúðina sína, var búinn að ákveða að grafa sig niður um hæð... Holtsgata, Reykjavík Ég var ekkert sérlega upprifin af Holtsgötunni þegar ég fór þar um fyrst. En nú er ég ekki frá því að þetta sé besta gatan í bænum. Sjór- inn það fyrsta sem ég sé þegar ég stíg út á morgnana og það síðasta sem ég veit af þegar ég stíg inn í húminu á kvöldin. Gæti svei mér þá borið hér beinin. Og þó... Istanbúl fyrir fótum mér Fyrsta gata heimsborgarans Bjargar Björnsdóttur, kynningarstjóra hjá Þjóðleik- húsinu, var á Egilsstöðum þar sem hún hjólaði á nýju malbiki. Hún nýtur þess enn að sitja í garðinum heima á sumrin þar sem ekkert hefur breyst nema hæðin á trjánum. Anna Margrét Björnsson fékk að vita hvert leiðir hennar lágu eftir það. Áhrifavaldur Ragnars Sólbergs, söngvara hljómsveitarinnar Sign, er faðir hans heitinn Rafn Jónsson. Rafn, sem var liðtækur tromm- ari, lést á síðasta ári eftir lang- vinna baráttu við MND-sjúk- dóminn. Hann gerði garðinn m.a. frægan í hljómsveitunum Grafík, Sálinni hans Jóns míns og Bítlavina- félaginu auk þess sem hann gaf út nokkrar sólóplötur. „Hann ól mig upp og var í tónlist- inni sem maður leit alltaf rosalega mikið upp til. Hún var aðalsportið,“ segir Ragnar. „Hann kenndi mér og okkur bræðrum rosalega vel að gera það sem við vildum gera hvort sem það var rokk eða eitt- hvað annað. Það skiptir svo miklu máli að geta algjörlega elt eigin til- finningar. Hann var mikill áhrifa- valdur og ég hef alltaf verið mjög hrifinn af flestu sem hann hefur gert.“ Ragnar á erfitt með að nefna erlendan tónlistarmann sem hefur haft áhrif á hann. Þeir séu svo margir. „Við getum sagt að kallinn hafi verið aðaláhrifavaldur minn í tónlistinni líka. Ég held að hann sé næst því að vera áhrifavaldur þar ef maður á að nefna einhvern einn.“ Ragnar gaf nýverið út plötu með hljómsveitinni Sign, Thank God for Silence, en bróðir hans Egill er einnig meðlimur sveitarinnar. RAGNAR SÓLBERG Ragnar segir að faðir sinn heitinn hafi hjálpað sér að elta eigin tilfinningar. Fékk tónlistaruppeldi RABBI Rafn Jónsson, faðir Ragnars, var liðtækur trommari þar til hann greindist með MND- sjúkdóminn. GÖTURNAR Í LÍFI MÍNU } BJÖRG BJÖRNSDÓTTIR LAUFÁS LÖNGUMÝRI BEYKILUNDUR RUE DE L‘OASIS KVISTHAGI BÓLSTAÐARHLÍÐ RUE DRAPARNAUD IMPASSE GUNTHER NJÁLSGATA OBA SOKAK RUE DE LA ROQUETTE RUE TROUSSEAU HOLTSGATA ÁHRIFAVALDUR RAGNAR SÓLBERG Geggjaðir vinningar! PlayStation2 tölva • SingStar sett • BUZZ sett • SingStar 80´s Kippu af Coca Cola og margt fleira Sendu SMS sk eytið á númerið1900 og þú gætir unnið . BTC SBF Spurningarleikur PlayStation2 Nýjasti SingStar PlayStation2 PlayStation2 V in n in g ar v er ð a af h en ti r h já B T Sm ár al in d . K ó p av o g i. M eð þ ví a ð t ak a þ át t er tu k o m in n í SM S kl ú b b. 1 49 k r/ sk ey ti ð . 12. hve r vinnur!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.