Fréttablaðið - 05.11.2005, Síða 56
5. nóvember 2005 LAUGARDAGUR40
Tíu ára drengur, af tælensku bergi
brotinn, finnst í frosnu blóði sínu
við fjölbýlishús á köldu janúarsíð-
degi. Það fer ekkert á milli mála
að stráknum hefur verið ráðinn
bani eftir að stungusár finnst á
líkama hans.
Rannsóknarlögreglumaðurinn
Erlendur gengur vitaskuld beint
í málið ásamt aðstoðarfólki sínu
Sigurði Óla og Elínborgu. Það ligg-
ur beinast við að álykta að morðið
tengist kynþáttafordómum þó ekki
sé heldur hægt að útiloka barna-
níð þannig að Erlendur og félagar
beina sjónum sínum að rasískum
kennara við skóla drengsins og
helstu barnaperrum hverfisins.
Rannsóknin skilar þó fyrst í stað
litlu og lögreglufólkið verður
að víkka sjóndeildarhringinn og
gera ráð fyrir fleiri og dapurlegri
möguleikum.
Arnaldur svíkur ekki
Það er best að segja það bara strax
að Arnaldur Indriðson svíkur ekki
fjölmarga aðdáendur sína með
þessari nýjustu sakamálasögu
sinni. Hann er á sínu hefðbundna
róli og spinnur morðgátuna af
sömu leikni og hann hefur gert í
síðustu bókum sínum um Erlend.
Spennan hefur samt oft verið
meiri enda hægir eðli glæpsins
einhvern veginn á taktinum. Þetta
dregur þó vitaskuld ekkert úr
harmleiknum og Arnaldur byrj-
ar söguna með miklum krafti og
sýnir á áhrifamikinn hátt hversu
stílfimur hann er orðinn í byrjun
bókar þegar líkið finnst.
Ömurleikinn grúfir yfir morð-
inu og öllum sem því tengjast og
það er aldrei skemmtilegra að lesa
Arnald en þegar hann nær mynd-
rænu flugi og leikur sér að því að
blása lífi í aðstæður og atburði
fyrir sjónum lesandans.
Félagslegt drama
Vetrarborgin minir á Grafarþögn
að því leyti að félagslegt fjöl-
skyldudrama hverfist um glæpinn.
Aðlögunarerfiðleikar nýbúa koma
mikið við sögu og árekstrar þeir-
ra við framandi umhverfi og for-
dóma setja sinn svip á söguna og
hafa að sjálfsögðu áhrif á atburða-
rásina. Glæpurinn týnist þó aldrei
í sósíaldramanu og maður leggur
ekki bókina frá sér fyrr en Erlend-
ur er búinn að leysa málið og koma
lögum yfir morðingjann.
Félagslegi vinkillinn er þó ekki
síður áhugaverður og það er
gaman að því hvernig íslenska
sakamálasagan hefur á nokkrum
árum orðið samtímaspegill og það
form sem rithöfundar kjósa að
spinna saman við raunsæisbók-
menntir. Arnaldur er síður en svo
einn um þetta og mér sýnist nán-
ast hver einasti krimmahöfundur
sem gefur út bók fyrir þessi jól
blanda samfélags- og þjóðmálum
inn í sakamál sín, þó með ólík-
um hætti sé. Það er ekkert nema
gott um það að segja að íslenskir
glæpasagnahöfundar skuli jafn
fúslega axla félagslega ábyrgð í
verkum sínum og smygla þjóð-
félagsádeilu inn í vitund lesenda
í Trójuhesti sakamálasögunnar
sem hingað til hefur verið fundin
frekar léttvæg.
Þjóðin elskar Erlend
Arnaldur er óumdeildur kóngur í
þessum bransa og það þarf eng-
inn að ímynda sér annað en að
hann muni selja Vetrarborgina í
jafn mörgum bílförmum og fyrri
bækur sínar. Hann er þó ekki sá
yfirburðahöfundur sem sölu-
tölurnar gera hann að og bækur
hans um Erlend rista ekki mikið
dýpra en verk hinna íslensku
sósíalkrimmahöfundanna. Að
einhverju leyti hlýtur þetta að
vera spurning um heppni og að
vera réttur maður á réttum stað á
réttum tíma. Og það verður ekki
tekið af Arnaldi að hann hefur
hitt í mark og skapað með Erlendi
persónu sem mun líklega lifa með
þjóðinni eins og Bjartur í Sumar-
húsum.
Þessi þunglyndi skarfur, sem
er andlegur þríburi Taggarts og
Frost, glímir við drauga fortíðar
og í hverri bók gefur Arnaldur
lesendum aðeins meiri innsýn í
sálarlíf hans. Þetta er að ég held
orðinn aðalspennuvaldurinn í
verkum Arnaldar og bækur hans
eru ekki síst lesnar upp til agna
vegna forvitni um Erlend frekar
en glæpanna sem slíkra.
Félagar Erlendar, Elínborg og
Sigurður Óli, eru enn hálfgerð-
ar pappalöggur sem dregnar eru
einföldum dráttum en það gæti
verið að breytast. Elínborg er
aðalskuggavera þessarar bókar
en fær nokkrum sinnum ráðrúm
til að hafa áhyggjur af dóttur sinni
sem er með flensu.
Sigurður Óli hefur hingað til
verið marflöt og leiðinleg persóna
en hann fær óvenju mikið vægi í
Vetrarborginni og nær að vekja
áhuga og samúð þó enn vanti
mikið kjöt utan á beinin.
Arnaldur sækir í sig veðrið
með hverri bók þannig að þó hann
hafi unnið flesta þá sigra sem
hann getur unnið er hann enn að
þróa og skerpa stíl sinn og með
meiri áherslu á persónur sínar á
hann tvímælalaust eftir að bæta
einhverjum rósum til viðbótar í
yfirfullt hnappagatið.
Þórarinn Þórarinsson
[ BÆKUR ]
UMFJÖLLUN
Erlendur klikkar ekki
Aðkoman er einsog maður ímynd-
ar sér við frumsýningu Hollywood
kvikmynda í Bandaríkjunum. Rauð-
ur dregill, gríðarleg kastljós utan
á svölum Sheraton glæsihótelsins
í Frankfurt í Þýskalandi, smok-
ing klæddir dyraverðir og engum
hleypt inn sem ekki er með boðs-
kort með áprentuðu nafni. Þeir sem
segjast hafa týnt því eru leiddir
fyrir spariklædda ritara með tölvu
sem fletta því upp − hér þýðir ekk-
ert að vera boðflenna.
Innandyra eru margir stórir
salir fullir af fólki, ótal barir með
litríkum drykkjum, hljómlistar-
menn leika áreitislausa tónlist út í
hornum, alvöru svertingjar sjá um
djassinn; ljósmyndarar hlaupa um
og taka myndir af frægu fólki sem
varpað er á risatjöld jafnóðum, og
strax í fyrsta salnum er svo mikið
af fínum réttum að óvanur gest-
ur borðar á sig gat og er fræddur
þurrlega á því að þetta sé aðeins
„forréttaherbergið“.
Svona er forlagsboð þýsku Bert-
elsmann útgáfunnar á bókakaup-
stefnunni í Frankfurt á hverju ári,
nú síðast 20. október. Mikið fjær for-
lagskynningu á Súfistanum verður
varla komist, og eitt er víst: ekkert
í þessu boði minnir á bækur.
Útibú um hálfan heiminn
En kannski þarf ekki að minna
gesti og starfsmenn Bertelsmann
á þær. Samsteypan starfrækir
tugi forlaga í Þýskalandi einu, en
á útibú um hálfan heiminn − þar
á meðal sjálft Random House í
Bandaríkjunum. Og svo á þetta
fyrirtæki, sem byrjaði sem frið-
sæll þýskur bókaklúbbur, líka
blöð, tímarit og sjónvarpsstöðvar.
Bertelsmann notar þetta boð til
að sýna mátt sinn og megin á bóka-
messunni, sem oftast er kölluð svo.
Og bókamessan í Frankfurt er stæ-
rsta bókakaupstefna í heimi. Átta
gríðarstórar sýningarhallir, á þrem
hæðum hver, voru fylltar meir en
nokkru sinni fyrr í ár, þegar nýtt
þátttökumet var sett. 7200 sýnend-
ur kynntu útgáfu sína, fulltrúar 101
lands mættu til leiks. Starfsfólk við
bókaútgáfu, sem sækir sýninguna
heim, er á fjórða tug þúsunda.
Ef einhver heldur að bókagerð
sé deyjandi starfsgrein á okkar
rafvæddu tímum sannfærist hann
um annað á þessum stað.
Skiptist í ótal undirsýningar
En stærðin veldur því líka að
enginn getur þóst vita „hvernig
sýningin var“, hvaða bækur sættu
mestum tíðindum, hvaða viðskipti
voru merkilegust. Hún skiptist
eiginlega í ótal undirsýningar.
Þjóðverjar eru heimamenn og
halda sig mest í sínum sýning-
arhöllum, enda streyma þangað
venjulegir lesendur síðustu tvo
dagana að kynna sér nýjar bækur;
enski heimurinn hefur nánast höll
útaf fyrir sig og Norðurlandabú-
ar hópa sig saman á öðrum stað,
verða svolítið einsog elskulegir
en ögn drýgindalegir sveitamenn
að leika heimsborgara hver fyrir
annan.
Minnkandi gildi messunnar
En þrátt fyrir þessa miklu aðsókn
fer viðskiptaleg þýðing mess-
unar líklega minnkandi. Það er
orðið miklu auðveldara að vera í
sambandi við alla sína helstu við-
skiptafélaga erlendis í gegnum
tölvuna á skrifstofunni. Umboðs-
menn falbjóða væntanlega Nób-
elsverðlaunahafa jafnóðum með
fréttabréfum á netinu, samningar
fara á milli í rafpósti, það er hægt
að senda bók í prentun hvert sem
er í heiminum rafrænt, án þess að
hafa nokkurn tímann stigið fæti
inn fyrir viðkomandi smiðju eða
hitt einhvern sem þar starfar.
Sígilt bókaform Gutenbergs
virðist klára sig ótrúlega vel í
gegnum tölvuvæðinguna, rafræn-
ar bækur er til dæmis ennþá alger
aukageta forlaga, en sjálf viðskipt-
in eru gerbreytt og þjappast ekki
utan um nokkrar alþjóðlegar sýn-
ingar einsog áður.
Af hverju reynir þá hver einasti
útgefandi sem vettlingi getur valdið
að fara á þessa kaupstefnu, ef hann
getur gert öll sín kaup utan henn-
ar? Þar koma boðin og veislurnar
til skjalanna. Á þeim gefst einstakt
tækifæri til að sjá framan í fólk
sem menn hafa verið að versla við,
skiptast á sögum, fá tilfinningu
fyrir viðkomandi fyrirtæki.
Innihaldið þrátt fyrir allt
Bækur eru þrátt fyrir allt inni-
haldsvara, og rétt einsog mörg-
um lesendum finnst gaman að sjá
og heyra sinn uppáhaldshöfund,
þykir útgefendum gaman að hitt-
ast og máta sig hver við annan;
bókakaupstefnan er tískusýning
andans. Þess vegna reyna líka allir
að halda boð og þau eru af öllum
stærðum og gerðum, frá litla for-
laginu sem býður upp á volgt hvít-
vín og aldrað kex á sýningarbásn-
um sínum og til stórveislunnar
sem lýst var hér í upphafi.
Litla forlagið býður örugglega
upp á jafn merkilegar bækur, en
á móti kemur að Bertelsmann er
eina bókaútgáfan sem á sinn eigin
gervihnött. Halldór Guðmundsson
Úr sirkus bókanna
� � KVIKMYNDIR
� 16.00 Kvikmyndasafn Íslands sýn-
ir írönsku myndina Gabbeh frá árinu
1996 í leikstjórn Mohsen Makhmal-
baf, eins þekktasta leikstjóra Írana.
Þetta er önnur þriggja mynda sem
Friðrik Þór Friðriksson kvikmynda-
leikstjóri valdi til sýninga í Bæjarbíói í
vetur.
� � TÓNLEIKAR
� 12.00 Eyþór Ingi Jónsson organisti
heldur hádegistónleika í Akureyrar-
kirkju. Á efnisskránni eru verk eftir
Johann Sebastian Bach og Pablo
Bruna.
� 15.00 Hljómsveitin IceMarimba frá
Tónlistarskóla Hafralækjarskóla í S-
Þingeyjarsýslu heldur tónleika í Saln-
um í Kópavogi. Á dagskránni er
framandi og skemmtileg tónlist, að-
allega frá Zimbabwe og Suður-Afríku.
� 17.00 Minningartónleikar um séra
Árna Berg Sigurbjörnsson verða
haldnir í Áskirkju.
� 21.00 Færeyski sextettinn Ygg-
drasil heldur hljómleika í Kaffi
Reykjavík í Reykjavík
� 22.00 Ylfa Lind verður með út-
gáfutónleika á Classic Rock í Ármúla
og spilar lögin af sinni fyrstu plötu,
sem heitir „Petite Cadeau“.
� � LEIKLIST
� 20.00 Stúdentaleikhúsið frumsýn-
ir Blóðberg eftir P.T. Andersson í
Loftkastalanum í leikstjórn og leik-
gerð Agnars Jóns Egilssonar.
� � OPNANIR
� 17.00 Listakonan Guðrún Bene-
dikta Elíasdóttir opnar sýninguna
Bergnumin á Thorvaldsen Bar, Aust-
urstræti.
� � SKEMMTANIR
� 22.00 Harmonikufélag Reykjavíkur
og Harmonikufélag Selfoss efna til
harmonikuballs í Glæsibæ við Álf-
heima.
� 23.00 Hinn einni sanni Geirmund-
ur Valtýsson skemmtir gestum
Kringlukráarinnar.
� Stórsveitin Logar frá Vestmannaeyj-
um verður með dansleik í Klúbbnum
við Gullinbrú.
� Hermann Ingi jr. skemmtir á Café
Catalinu.
� � SAMKOMUR
� 16.00 Spurningakeppnin Svör við
öllu fer fram í Bókabúð Máls og
menningar við Laugaveg. Spyrill les
upp 30 spurningar og fá þátttakend-
ur auð blöð og penna. Að spurning-
unum loknum er farið yfir lausnir og
fenginn sigurvegari. Í þetta fyrsta
skipti sem keppnin fer fram í vetur
verður spurt úr bókum Arnalds Ind-
riðasonar.
38 1. júlí 2005 FÖSTUDAGUR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
2 3 4 5 6 7 8
Laugardagur
NÓVEMBER
Slangan 4.11.2005 16:08 Page 2
BÓKAMESSAN Í FRANKFURT