Fréttablaðið - 05.11.2005, Page 78
5. nóvember 2005 LAUGARDAGUR62
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT 2 þökk 6 á fæti 8 spíra 9 spil 11 frá
12 niðurfelling 14 dans 16 utan 17 sarg 18 X
20 smáorð 21 innyfli.
LÓÐRÉTT 1 málmhúða 3 skyldir 4 smíða
óvandlega 5 kóf 7 lífshlaup 10 líða vel 13
tunnu 15 sóða 16 erlendis 19 tveir eins.
LAUSN
grunnur c
HRÓSIÐ
...fær Elva Ósk Ólafsdóttir fyrir
frábæran leik í dönsku þáttaröð-
inni Erninum.
ELVA ÓSK ÓLAFSDÓTTIR
Dávaldurinn Sailesh er kominn
til landsins en hann heldur tvær
sýningar í dag og í kvöld. Sú fyrri
er fyrir alla fjölskylduna þar sem
þeir Auddi og Sveppi úr Strákun-
um verða honum innan handar.
Miðnætursýningin er hins vegar
ekki ætluð ungu fólki en það er
óðum að seljast upp á hana.
Ísleifur B. Þórhallsson flyt-
ur kappann inn og segir hann
dávaldinn mjög ánægðan með að
vera kominn hingað aftur. „Það
er enginn lygi þegar ég segi að
hann elskar landið og vill koma
hingað eins oft og mögulegt er,“
segir Ísleifur. Í tilefni af komu
Sailesh hefur verið gefinn út fjög-
urra tíma mynddiskur þar sem
finna má óséð efni af samkomum
dávaldsins. „Þarna er heimildar-
mynd sem einblínir á þátttakend-
ur og upplifun þeirra,“ segir hann
en einnig verður hægt að sjá upp-
töku frá Extreme-sýningunni sem
haldin var á Broadway en að sögn
Ísleifs verður hún ekki endurtek-
in í bráð.
Sailesh gerði víðreist á fimmtu-
daginn þegar hann var nýlentur.
Þá mætti hann í útvarpsviðtöl
en mestu lukku vakti þó heim-
sóknin í Menntaskóla Kópavogs.
„Það er alltaf mikið stuð þegar
hann mætir í framhaldsskólana
og krökkunum finnst gaman að
horfa á kunningja og vini gera
sig að fíflum. Þátttakendur verða
síðan stjörnurnar í skólanum um
nokkurt skeið,“ segir Ísleifur en
bætir jafnframt við að hann hafi
forðast að bóka Sailesh eins mikið
og áður. „Hann vildi fá að anda og
fær meðal annars að fara í Bláa
lónið í fyrsta skipti.“ - fgg
SAILESH Í MK Heimsókn dávaldsins gerði
stormandi lukku meðal framhaldsskóla-
nemenda sem glaðir tóku þátt í uppátækj-
um hans.
Dáleiddi framhaldsskólanema
LÁRÉTT: 2 takk, 6 il, 8 ála, 9 níu, 11 af, 12
afnám, 14 samba, 16 út, 17 urg, 18 tíu, 20 að,
21 iður.
LÓÐRÉTT: 1 tina, 3 aá, 4 klambra, 5 kaf, 7 lífs-
tíð, 10 una, 13 ámu, 15 agða, 16 úti, 19 uu.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Egill Helgason mælir í véfréttarstíl á blogginu sínu, þar sem hann segir
frá þegar hann var inntur eftir því á
dögunum hvort hann vildi fara á þing.
„Ég hugsaði mig aðeins um og sagði
svo - sennilega ekki.“
Að eigin sögn leiðist Agli mjög á fundum, því samkvæmt hans rey-
nslu eru alltaf „einn eða tveir vitleys-
ingar sem taka samkomuna í gíslingu
með þrasi og málalengingum“. Hafa
gárungarnir á orði að svipaða lýsingu
megi ekki síður heimfæra á ónefndan
sjónvarpsþátt.
Um skeið hefur það verið vinsæll sam-
kvæmisleikur að reyna að
ráða í pólitíska afstöðu
Egils og hvaða flokk hann
muni „sennilega ekki“
bjóða sig fram fyrir.
Sjálfur lýsti hann því
í viðtali við Blaðið
fyrir skemmstu að
hann skipti iðu-
lega um skoðun
en hallaðist dálítið
til hægri um
þessar mundir.
1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8
Félagarnir Eiríkur Jónsson, blaðamaður á DV, og Reynir Traustason, ritstjóri
Mannlífs, hafa látið gamminn geisa í
laugardagsmorgunþætti sínum á Tal-
stöðinni á milli klukkan 9 og 12. Þáttur
kappanna í síðustu viku vakti mikla
athygli en þar fór Halldór Ásgrímsson,
forsætisráðherra, á áður óþekktum
kostum og amaðist meðal annars yfir
því hvernig Pálmi Gestsson leikari túlkar
ráðherrann af vankunnáttu. Það má því
eiga von á hverju sem er í þættinum í
dag en allt bendir til þess að þessi þátt-
ur verði sá síðasti í það minnsta með
þessu sniði. Það hefur hins vegar verið
ákveðið að breyta laugardagsþættinum
í sjónvarpsþátt með tilkomu NFS-sjón-
varpsstöðvarinnar. Fréttasjónvarpsstöðin
mun að miklu leyti taka yfir útsendingar
Talstöðvarinnar og því er ekki annað
fært en að skella Eiríki og Reyni í
mynd þannig að sjón verður bráðum
sögu ríkari fyrir þá
sem hingað til
hafa einungis
getað hlustað
á þessa
æringja í blaða-
mannastétt á
laugardags-
morgnum.
Stöð 2 mun í desember hleypa af
stokkunum nýjum spurningaþætti
sem ber heitið Meistarinn en í
verðlaun verða fimm milljónir
íslenskra króna. Það verður Logi
Bergmann Eiðsson sem stjórn-
ar þættinum en hann er spyrils-
hlutverkinu að góðu kunnur eftir
að hafa stjórnað Gettu betur við
góðan orðstír í sjö ár.
„Meistarinn verður klassískur
spurningaþáttur þar sem reynir
á þrjú grundvallaratriði slíkr-
ar keppni: þekkingu, kænsku og
heppni,“ útskýrir Logi, sem verður
allt í öllu í þættinum. „Þetta verð-
ur blanda af því besta, mjög stór
þáttur og ákaflega spennandi,“
heldur hann áfram. Meistarinn
verður öllum opinn sem náð hafa
20 ára aldri. „Það fara fram próf á
Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði og
Reykjavík laugardaginn 12. nóv-
ember þannig að menn hafa viku
til að lesa sér til,“ upplýsir Logi en
22 komast í þáttinn. Meistarinn er
maður á mann keppni og verður
útsláttarfyrirkomulag. Logi lofar
því að þeir sem falla út fari ekki
úr sjónvarpssal slyppir og snauð-
ir. Það kemur til með að reyna á
pókerfés Loga, en hann hefur
engar áhyggjur af því enda með
sjö ára reynslu að baki. Það verð-
ur enginn einn sem semur spurn-
ingarnar heldur koma margir að
gerð þeirra sem verður til þess að
víðtækur fróðleikur er æskilegur.
Logi segir að Stöð 2 muni
leggja allt í sölurnar til þess að
þátturinn verði sem glæsilegast-
ur. „Það verður engu til sparað,“
lofar Logi og segist ennfrem-
ur ekki óttast samkeppnina.
„Spurningaþættir eru klassískt
efni og það er aldrei of mikið af
þeim,“ segir hann, en auk Meist-
arans geta sjónvarpsáhorfendur
valið um Popppunkt og Spark auk
Gettu betur sem hefst snemma á
næsta ári.
Logi segir að hann sé sáttur við
arftaka sinn, Sigmar Guðmunds-
son, sem á fimmtudaginn var ráð-
inn spyrill Gettu betur. „Hann
er toppmaður í alla staði,“ lýsir
Logi yfir og tekur skýrt fram að
þátturinn sé ekki settur til höfuðs
framhaldsskólakeppninni. „Hann
verður engu að síður á besta tíma
en það hefur ekkert verið ákveðið í
þeim efnum.“ freyrgigja@frettabladid.is
MEISTARINN: NÝR SPURNINGAÞÁTTUR STÖÐVAR 2
Logi Bergman tekur við
kunnuglegu hlutverki
LOGI BERGMANN Hefur ekki sagt skilið við spurningakeppnir þótt hann hafi flutt sig um set
og mun stjórna nýjum spurningaþætti Stöðvar 2 sem hefur fengið heitið Meistarinn.
Að lesa bækur. Af hverju að horfa á sjónvarpið þegar maður getur
lesið bækur? Sjónvarpið er algjör orkusuga en bækurnar hið gagn-
stæða. Það er best í heimi að hita sér te, kveikja á kertum, skríða
undir teppi og gleyma sér í ímynduðum heimi bókanna.
Pelsar. Nú er tíðin til að spranga um í stórkostlega hlýjum og
loðnum pelsi. Þá er hægt að fá á góðu verði í búðum sem
selja notaðar flíkur. Pelsinn er líklega besta vetrarflíkin því hann
er ekki bara hlýr heldur einnig ógurlega smart.
Skóhlífar. Ef þið ætlið að spóka ykkur í háhæl-
uðum skóm á Íslandi í nóvember þá er vísara
fyrir ykkur að fjárfesta í skóhlífum. Þær eru gam-
aldags fyrirbæri en ennþá einstaklega hentugar
og síðast en ekki síst hrikalega fansí og flottar.
Inni/Úti. Já það er komið að því, þessi dálkur er
kominn út í kuldann og mun ekki birtast hér lengur.
Mest úti við dálkinn er þó fólk sem hefur tekið hann
alvarlega og hætt bókstaflega að klæðast flíkum af því
að þær birtust í Úti-hólfinu. Verið sjálfstæðari en það!
Inni- og Úti dálkar eru eins og stjörnuspárn-
ar, einungis ætlaðar til dægradvalar.
Hringlandi armbönd. Svona armbönd með fullt af áföstu litlu
drasli eru ekki kúl lengur. Það eina sem þau gera er að pirra
eigandann með endalausu hringleríi. Skartgripir í dag eiga að
vera einfaldir og stórir og lausir við litla
hringlandi smáhluti.
Rykfrakkar. Þessar elskur eru eiginlega ekki boðlegar
lengur í þessum kulda og eru því úti þangað til í sumar. Erfitt
er þó að dæma rykfrakkann í allsherjar útisetu þar sem hann
kemur einfaldlega alltaf í tísku aftur. Þó er hægt að leggja
honum í nokkra mánuði núna.
INNI ÚTI