Fréttablaðið - 05.11.2005, Síða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
BAKÞANKAR
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR
Lýstu upp
skammdegið
Opið til 20:00 virka daga | Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | www.IKEA.is
5002.V.B
s
met sy S
AEKI
re tn I
©
1.990,-
295,-
Smurbrauð
með rækjum
GLÄNSA ljósakrans ø40 sm
GLÄNSA ljós
23x28 sm 990,-
JULEN sprittkerti
ø3,5x4 sm 10 stk.
GLÄNSA sería 40 p
heildarlengd 8,9 m 490,-
GLÄNSA ljós
25x180 sm 1.290,-
JULEN flotkerti
ýmsar gerðir ø7 sm 4 stk.JULEN lukt fyrir kubbakerti
30 sm 990,-
JULEN kertastjaki 33 sm 990,-
JULEN kubbakerti 10 sm 190,-
GLÄNSA ljós
birkispónn 30x30 sm
GLÄNSA ljósasería stjörnur
ýmsir litir 1,6x1 m 1.290,-
1.490,-
250,-
190,-
Eins og Bandaríkjastjórn er einni lagið hefur henni núna
tekist á tiltölulega skömmum tíma
að efna til styrjaldar gegn óvinum
sem finnast ekki og tapa henni.
Og stórveldið tapaði ekki fyrir
hinum opinbera óvini, því hann
er einhvers staðar í hellum í Pak-
istan eins og púki í neðra, heldur
hefur Bandaríkjastjórn tekist
að tapa stríði sínu algerlega upp
á eigin spýtur. Hún hefur tapað
fyrir sjálfri sér.
LÍTUM á. Um og upp úr 11. sept-
ember 2001 var blásið í lúðra af
skiljanlegum ástæðum og fljót-
lega var ráðist í það sem kallað
hefur verið stríð gegn hryðjuverk-
um. Það er líklega í fyrsta skipti
sem ráðist er með vopnavaldi ekki
gegn annarri þjóð heldur gegn
verknaði, því ekki var stríðið kall-
að stríð gegn hryðjuverkamönn-
um, eins og hefði verið réttara,
heldur gegn hryðjuverkum sem
slíkum.
GOTT og vel. Sjálfsagt hefur ein-
hverjum spunadoktorum fundist
betra að hafa óvininn óljósan og
hugtakið opið, enda hefur síðar
komið í ljós að það var vel við
hæfi, því Bandaríkjastjórn hefur
einmitt ekki ráðist til atlögu bein-
línis við hryðjuverkamennina
heldur einræðisherra í Írak sem
kom hryðjuverkum lítið við.
EN stríðið er tapað, segi ég, vegna
þess að upphaflega var lagt upp
með það að nauðsynlegt væri að
fara í stríð - meðal annars með
illa ígrunduðum stuðningi ríkis-
stjórnar þessa lands - til þess að
verja ákveðin gildi, eins og lýð-
ræði og mannréttindi. Í ófá skipti
hefur maður horft á leiðtoga hins
frjálsa heims svokallaða segja
þetta orð „lýðræði“ með mikl-
um tilþrifum, líkt og hann kunni
ekki fleiri orð, til þess að réttlæta
stríðsrekstur sinn. Ef maður hefði
verið bláeygur og barnalegur eins
og ríkisstjórn Íslands hefði maður
kannski sagt: „Já, þetta er aldeil-
is góð hugmynd. Að fara í stríð
gegn vondu mönnunum til þess að
breiða út mannréttindi og frelsi.
Við erum með!“ En í stað þess
að rjúka til með nokkurn veginn
slíkum upphrópunum, viðstöðu-
laust og án umhugsunar, voru þeir
margir sem sögðu að hugmyndin
um að núverandi Bandaríkja-
stjórn myndi taka að sér að breiða
út frelsi og mannréttindi væri eins
og að fá kókaínbaróninn Escobar
til þess að fara fyrir átaksverk-
efni gegn vímuefnaneyslu.
HVAÐ hefur ekki komið á daginn?
Fangar eru fluttir í leynileg fang-
elsi á vegum Bandaríkjastjórnar
til pyntinga. Fólki er haldið án
dóms og laga í fangageymslum
svo mánuðum og árum skiptir.
Einhver stórbrotnustu og ósvífn-
ustu mannréttindabrot á síðari
tímum eiga sér stað að frumkvæði
Bandaríkjastjórnar í stríði sem
átti að breiða út mannréttindi.
Fyrir vikið eru mannréttindi nán-
ast orðin hjóm eitt. Innantóm orð.
Nákvæmlega þannig hafa Banda-
ríkjamenn sjálfir orðið hættuleg-
asti óvinurinn í sínu eigin stríði.
Og nú hafa þeir tapað fyrir sjálf-
um sér.
Tapað stríð