Fréttablaðið - 10.11.2005, Page 8
8 10. nóvember 2005 FIMMTUDAGUR
DÓMSMÁL Tæplega fertugur karl-
maður var dæmdur til eins og hálfs
árs fangelsisvistar í Héraðsdómi
Reykjavíkur á þriðjudag. Ákæru-
efni er hótanir, meðal annars í
garð barnsmóður, líkamsárás á
lögregluþjón og eignaspjöll.
Landssamband lögreglumanna
sendi í gær frá sér tilkynningu þar
sem harmað er hversu væga refs-
ingu héraðsdómur hefði ákveðið.
Lögreglumenn telja að með þess-
um dómi fái brotamenn þau skila-
boð að ekki teljist alvarlegt að
ráðast á lögreglumenn. Landssam-
bandið telur einsýnt að með þessu
sé bæði öryggi lögreglumanna og
almennings stefnt í hættu. Þetta
þykir lögreglumönnum vera ólíð-
andi ástand.
Maðurinn hafði hótað barns-
móður sinni lífláti með textaskila-
boðum. „Hæ, ef þú leyfir mér ekki
að sjá börnin aftur þá skal ég skjóta
þig í hausinn, 2. eða 3. desember og
þá ertu dauð og ég líka og þá eiga
börnin ekki pabba eða mömmu bæ
bæ,“ sagði í skilaboðunum.
Einnig bar hann bréf í hús í
Reykjavík þar sem hann hótar enn
lífláti. „Ef hún hringir ekki í mig
næsta föstudag þá ert þú dauður.
Ég á kúbein og klippur og hagla-
byssu og ég nota þetta næstu helgi
ef hún hringir ekki í mig næsta
föstudag,“ stóð í einu bréfanna.
Við handtöku í júní lagði hann
svo til lögreglumanns með hnífi,
tvívegis í nárann. Í dóminum
segir að með þessari háttsemi hafi
maðurinn stofnað lífi lögreglu-
mannanna í hættu á augljósan og
ófyrirleitinn hátt og tilviljun hafi
ráðið að ekki hlutust alvarlagir
áverkar af.
Maðurinn hefur átt við geð-
hvarfa- og áfengissýki að stríða
en þegar litið var til vottorða frá
læknum þótti dóminum ástæða til
að ætla að hann væri sakhæfur
og telur geðlæknir að hann geri
greinarmun á réttu og röngu.
Í dómnum er litið til þess
að í lögum sé gert ráð fyrir að
fangelsisyfirvöldum sé heim-
ilt að vista fanga á sjúkra-
stofnun ef þurfa þyki enda eigi
fangar rétt á að njóta viðeigandi
heilbrigðisþjónustu. - saj
Hótaði að bana
barnsmóður sinni
Geðhvarfasjúkur maður sem réðst á lögreglu með hnífi og hótaði barnsmóður
sinni lífláti var dæmdur í átján mánaða fangelsi á þriðjudag. Landssamband
lögreglumanna harmar það hve refsingin er væg.
LÖGREGLA Maðurinn réðst á lögreglu með hnífi og hótaði barnsmóður sinni lífláti.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DANMÖRK Það hefur færst í aukana
að gosdrykkjum sem framleiddir
eru í Danmörku sé smyglað inn
í landið. Gosið er flutt úr landi
til Svíþjóðar og Þýskalands og
fæst þá endurgreiddur skattur af
vörunni. Síðan er vörunni smyglað
inn í landið aftur og selt í sjoppur
og veitingastaði á töluvert lægra
verði en löglega fengið gos.
Eftirlit með þessum innflutn-
ingi er erfitt að sögn talsmanns
skattyfirvalda í Politiken í gær.
Flöskurnar líti alveg eins út og
þær löglegu og því þurfi að kanna
bókhald þeirra sem selja gos til
finna út hvort varan sé illa feng-
in eða ekki. Ráðherra skattamála
í Danmörku, Kristian Jensen,
segir í viðtali við Politiken að
gosdrykkjaframleiðendur verði
að koma yfirvöldum til hjálpar og
benda á grunsamlega kaupendur.
Talið er að danska ríkið verði af
tæpum 100 milljónum danskra
króna á ári vegna þessa. - ks
JOLLY COLA Danskt gos er flutt úr landi og síðan smyglað inn í landið aftur.
Danska ríkið tapar hundruð milljóna árlega vegna „ólöglegra“ gosrykkja:
Danir smygla dönsku gosi
HEILBRIGÐISMÁL „Of lítil nýliðun
hjá barna- og unglingageðlæknum
er óheillavænleg þróun og getur
ógnað starfsemi Barna- og ungl-
ingageðdeildar Landspítalans
til framtíðar ef ekkert verður að
gert,“ segir Ólafur Ó. Guðmunds-
son, yfirlæknir Barna- og ungl-
ingageðdeildar.
Hann segir helstu ástæðuna
vera ófullnægjandi stöðu sér-
greinarinnar innan læknadeildar
Háskóla Íslands og stjórnskipu-
lega stöðu hennar innan Land-
spítalans. Hann segir enn fremur
að málaflokkurinn hafi mátt búa
við langvarandi fjársvelti sem hafi
haft þau áhrif að læknakandídatar
velji sér önnur sérsvið.
„Til að tryggja lágmarks nýlið-
un og framþróun sérgreinarinnar
er nauðsynlegt að forsjá kennsl-
unnar sé á hendi Barna- og ungl-
ingageðdeildar. Þannig mætti
skapa læknanemum, unglæknum
og sérfræðilæknum betri aðstöðu
til þess að sinna rannsóknum á
geðheilbrigði barna og unglinga
og auka þannig líkur á að þeim
sem ákveða að helga sig þess-
ari sérgrein fjölgaði á ný,“ segir
Ólafur. - jse
Barna- og unglingageðdeild Landspítalans:
Of fáir læknanemar í
geðlækningum barna
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON
Ólafur segir að Barna- og unglingageð-
deildin hafi mátt búa við fjársvelti og það
ástand hafi fælt nýliða frá sérgreininni.