Fréttablaðið - 10.11.2005, Page 33
FIMMTUDAGUR 10. nóvember 2005 33
Það er nauðsynlegt fyrir börnin að borða vel á morgnana.
Þess vegna viljum við gefa þeim morgunkorn sem þeim
finnst gott á bragðið.
Weetos eru vítamín- og járnbættir heilhveitihringir með
góðu súkkulaðibragði. Þeir eru jafnframt sykurminnsta
súkkulaðimorgunkornið sem völ er á.
* samkvæmt innihaldslýsingu á Cocoa Puffs pökkum
48% minni sykur en í Cocoa Puffs*
Heilhveitihringir
Gott súkkula›ibrag›
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
18
9
4
7
Er Samfylkingin að breyta um
stefnu í sjávarútvegsmálum? Radd-
ir þess efnis hafa heyrst síðan Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, formaður
Samfylkingarinnar, flutti ræðu á
nýafstöðnum aðalfundi LÍÚ. En
stefna Samfylkingarinnar í þessum
málum er óbreytt. Ingibjörg Sól-
rún lagði hins vegar áherslu á það
á aðalfundi LÍÚ, að sættir næðust
milli útvegsmanna og þjóðarinnar
um sjávarútvegsmálin. Til þess að
svo gæti orðið yrðu útvegsmenn að
hætta að ræða um fiskinn í sjónum,
auðlindina, sem sína séreign. Fisk-
urinn í sjónum væri sameiginleg
auðlind þjóðarinnar og það vær-
i samdóma álit allra flokka að það
ætti að festa í stjórnarskrá landsins,
að svo væri. (Nú er það lögfest).
Á landsfundi Samfylkingarinnar
2003 var eftirfarandi samþykkt:
„Samfylkingin stefni að því að
endurheimta sameiginlega auð-
lind þjóðarinnar, fiskinn í sjónum,
með markvissri innköllun og end-
urúthlutun veiðiheimilda þar sem
opnaður er aðgangur að veiðirétt-
inum með jafnræði og réttlæti að
leiðarljósi. Þessi leið færir kom-
andi kynslóðum aftur réttinn til
arðs og aðgangs að sameiginlegri
auðlind, tryggir nýliðun í útgerð
og færir íbúum sjávarbyggðanna
á ný réttinn til að nýta þá auðlind
sem skóp þær“. Þessi stefna Sam-
fylkingarinnar er enn í fullu gildi.
Í síðustu kosningum lagði Sam-
fylkingin fram fyrningarleiðina til
þess að ná framangreindri stefnu,
sem landsfundur hafði markað.
Samkvæmt þeirri leið átti að ná
markmiðum flokksins á löngum
tíma. Stefnan er skýr en leiðirnar
geta verið margar. Fyrningarleið-
in er ekki heilög leið að áliti Sam-
fylkingarinnar. Fleiri leiðir koma
til greina að markinu.
Ingibjörg Sólrún lagði áherslu á
það á aðalfundi LÍÚ, að sanngjarnt
afgjald yrði að koma fyrir afnot
útvegsmanna af hinni sameiginlegu
auðlind. Það lága gjald, sem þegar
hefur verið samþykkt, dugar hver-
gi nærri að mínu áliti. Auk þess er
lífsnauðsyn að opna greinina fyrir
nýjum aðilum. Það er einn helsti
galli núverandi kerfis að greinin
er lokuð nýjum aðilum. Nýir aðilar,
sem vilja hefja útgerð sitja ekki við
sama borð og þeir sem fengu úthlut-
að fríum veiðiheimildum, þegar
kerfinu var komið á. Það verður að
opna leið fyrir nýja aðila inn í kerf-
ið. Ekki dugar að bjóða þeim kvóta
á því uppsprengda verði, sem gildir
í dag.
Samfylkingarmenn ætla ekki að
breyta fiskveiðistjórnarkerfinu það
ört, að um byltingu verði að ræða.
Við viljum breyta kerfinu en gera
það á löngum tíma þannig að unnt
verði að aðlagast breytingunum.
Það er nauðsynlegt að ná sátt um
fiskveiðistjórnunarkerfið. Um það
ríkir engin sátt í dag.
Fiskurinn í sjónum er sameign þjóðarinnar
UMRÆÐAN
SJÁVARÚTVEGS-
STEFNA SAMFYLK-
INGARINNAR
BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON
VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR
Nýir aðilar, sem vilja hefja
útgerð sitja ekki við sama borð
og þeir sem fengu úthlutað fríum
veiðiheimildum,þegar kerfinu
var komið á. Það verður að opna
leið fyrir nýja aðila inn í kerfið.
AF NETINU
Kennitöluflakk
Flestar Norðurlandaþjóðir og aðrar
Evrópuþjóðir takmarka svigrúm stjórn-
enda sem lenda í gjaldþroti til þess að
stofna og stýra nýjum fyrirtækjum með
það að augnamiði að koma í veg fyrir
svik og kennitöluflakk. Við erum eftirbát-
ar í þessum efnum og verðum að skoða
árangur annarra þjóða og stoppa í götin.
Það er gleðiefni að gagnrýnisraddir heyr-
ist nú inni í ráðuneytunum en þær þurfa
að ná inn á hið háa Alþingi til þess að
hafa nauðsynleg áhrif á viðskiptalífið.
Davíð Guðjónsson á deiglan.com
Skilningur eða afsökun
Vandinn sem frönsk stjórnvöld þurfa að
glíma við er nefnilega ekki hvort aðgerðir
óeirðarseggjanna hafi verið réttlætanleg-
ar, heldur hvort hægt sé að koma í veg
fyrir að þær eigi sér stað. Þessa afstöðu,
sem Egill Helgason kallar „afsökun-
aráráttu“ held ég að nær væri að kalla
áráttu-fyrir-því-að-leysa-vandamál-í-
stað-þess-að-kenna-einhverjum-um-og-
kalla-hann-svo-illum-nöfnum.
Finnur Dellsén á murinn.is
Lélegur leikari
Sé horft um öxl og aðgerðir Davíðs sem
forsætisráðherra skoðaðar í ljósi orða
hans í þessari grein kemur upp í huga
manns tvö orð: hrópandi ósamræmi.
Hann virti að vettugi sjónarmið meiri-
hluta almennings um fjölmiðlafrumvarp-
ið. Davíð fór offari gegn Baugsmönnum
í skattrannsóknarmálinu. Þetta eru bara
tvö dæmi um hvernig hann sýndi engan
skilning.
Davíð er leikari. Og hann hefur skipt um
hlutverk. Góður leikari er sannfærandi og
samkvæmur sjálfum sér. Lélegur leikari
er ósannfærandi, klúðrar leikritinu og
verður sér til athlægis. Og boðskapurinn
verður að engu.
Sverrir Ingi Gunnarsson á djoflaeyjan.
com
Flokkshugsun og fúsk
Af öllu þessu leiðir: Sagnfræðingar jafnt
sem aðrir fræðimenn mega ekki með
þátttöku sinni í fræðilegum verkefnum
gefa fúski og flokkshugsun hins pólitíska
valds í slíkum efnum heilbrigðisvottorð
því þá eru þeir að grafa sínum eigin
fræðilegu viðmiðunum gröf. Slíkri hættu
verður formaður Sagnfræðingafélagsins
framar öðrum að vara við en ekki gera
lítið úr.
Halldór Bjarnason á kistan.is
Blóðlaus ráðherra
Geir H. Haarde tók ekki síma þegar fjöl-
miðlar vildu ræða við hann um fanga-
flugvélarnar sem misnotuðu Ísland til
að flytja meinta hermdarverkamenn til
landa sem eru uppvís að því að beita
pyntingum við yfirheyrslur. Hann hefur
enn ekki fordæmt misnotkun Íslands
í þessu skyni. Eina lífsmark hans er að
senda kurteisan tölvupóst til bandarískra
stjónvalda og óska eftir upplýsingum um
málið. Er hann blóðlaus?
Össur Skarphéðinsson á http://web.
hexia.net/roller/page/ossur/.
1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 1