Fréttablaðið - 10.11.2005, Síða 73
FIMMTUDAGUR 10. nóvember 2005 53
Allt þetta
í einum
pakka
DVP-NS30
SONY DVD SPILARI
• Spilar R-1,R-2 (sjónvarp þarf að styðja NTSC)
• Spilar
CD/CDR/CDRW/VCD/SVCD/MP3/JEPG
DVD-R/DVD+R/DVD-RW/DVD+RW
• Dolby Digital DTS
Verð áður
12.950 krónur
HTSS600
SONY HEIMABÍÓ
• Útvarpsmagnari 600W RMS
• S-Master Digital magnari
• Dolby Digital,DTS,Dolby Pro Logic II
• 5 hátalarar + Bassahátalari
Verð áður
49.950 krónur
KLV30HR3S
SONY 30"LCD SJÓNVARP
• 30" LCD sjónvarp
• 1280x720 pixel upplausn
• Textavarp
• Virtual Dolby BBE Surround
• Stillanlegur borðfótur
Verð áður
199.950 krónur
Skýrari mynd en þú átt að venjast
...og aðeins 1 fjarstýring fyrir öll tækin.
á mánuði* í 12 mán
uði
eða 199.950 krón
ur staðgreitt.
Listaverð 262.850
krónur
Heildarpakkinn!
16.662 kr.
*Miðað við 12 vaxtalausar jafnar greiðslur á Visa eða Mastercard skuldabréf. 0,5% stimpilgjald bætist við samningsfjárhæðina og greiðist með jöfnum greiðslum yfir samningstímann.
Kaupauki Kaupauki
42”30”
Í vínframleiðslu eru löndin í Evrópu kölluð einu nafni
gamli heimurinn en víngerðarlönd utan Evrópu, þar
sem víngerð er nýtilkomnari, eru kölluð nýi heim-
urinn. Víngerð í nýja heiminum hefur sótt ævin-
týralega í sig veðrið undanfarin ár, þar eru aðstæð-
ur til víngerðar oft hentugri, veðurfar stöðugra og
framleiðsluhættir nýtískulegri. Vínframleiðendur
eru einnig ekki fastir á klafa strangra reglugerða
og hefða sem hefta framfarir. Hér á landi sem ann-
ars staðar hafa nýja heims vínin notið mikilla vin-
sælda, einkum fyrir hagstætt verð miðað við gæði.
Hefur hinum rótgrónu vínlöndum reynst erfitt að
keppa við nýja heiminn og er þetta einkum áber-
andi í flokki ódýrustu vína þar sem segja má að nýja
heims-vínin mali keppinauta sína frá gamla heimin-
um ef borið er saman verð og gæði. Santa Rita vínin
frá Chile eru góðir fulltrúar nýja heimsins og hér á
landi fást fjölmörg vín þessa þekkta framleiðanda
og kosta þau allt frá 1.190 kr. og upp í 4.890 kr. fyrir
ofurvínið Santa Rita Casa Real.
Santa Rita 120 Chardonnay
Fölgult. Höfugt, þurrt, ferskt og sýruríkt með grös-
ugum keimi. Gott með fiski, hvítu kjöti, pasta og
salati. Er með bestu kaupum á markaðnum að mati
Morgenavisen í Danmörku. Afbragðs fordrykkur.
Verð í Vínbúðum 1.190 kr.
Santa Rita 120 Cabernet Sauvignon
Frísklegt og ávaxtaríkt vín sem er tilvalið í úti-
leiguna og með grillinu.
Dökkfjólurautt, þungt með bökuðum berja-, eikar-
og kryddkeim og ræður við flestan mat.
Verð í Vínbúðum 1.190 kr. í 750 ml flöskum og 1.400
kr. fyrir fjórar smáflöskur í hentugri öskju.
VEITINGASTAÐURINN
BAN THAI,
LAUGAVEGI 130, OFAN VIÐ
HLEMM
Hvernig er stemningin? Ban Thai
er staðsett rétt fyrir ofan
Hlemm í fremur óálit-
legu svörtu húsi. Þegar
inn er komið tekur hins
vegar við afar hlýlegt
andrúmsloft. Heiðgulir
veggir, mikið um taílenska skraut-
muni, flögg, styttur og meira að
segja myndir af taílenska kónginum.
Semsagt dáldið mikið „kitsch“ en
afar hressandi og notalegt. Staður-
inn er á tveimur hæðum, og á þeirri
efri er afar skemmtilegt herbergi
sem hægt er að leigja fyrir hópa, þar
sem setið er að taílenskum hætti á
púðum við lágt borð. Starfsfólk er
allt hið vinalegasta og uppáklætt í
skrautleg þjóðleg föt, og tónlistin er
ljúft taílenskt popp.
Matseðillinn: Ban Thai hefur frá-
bært orð á sér sem veitingastaður og
er hiklaust besti taílenski veitinga-
staðurinn á landinu. Orðspor hans
hefur líka náð út fyrir landsteinana
og margir gestir sem þekkja til Taí-
lands segja staðinn bjóða upp á
alveg „ekta“ taílenska matreiðslu.
Matseðillinn er mjög fjölbreyttur
og langur og hægt er að velja um
ótalmarga rétti, allt frá súpum og
taílenskum salötum, forréttum ýmis-
konar upp í karrí-, grænmetis-, fisk-
og kjötrétti. Bjór á best við taílensk-
an mat og hér er meðal annars hægt
að fá hinn bragðgóða Singha bjór frá
Taílandi sem er tilvalinn til að slökkva
mesta eldinn sem myndast af sterk-
um kryddum. Auk þess er hægt að fá
viskí, sem Taílendingar sjálfir drekka
gjarnan með mat, en þeir sem eru
ekki alveg eins ævintýragjarnir geta
pantað sér rauðvín eða hvítvín með
matnum.
Vinsælast: Eigendur staðarins eru
gjarnir á að vara fólk við styrkleik
matarins, sem er, eins og í Taílandi,
afar mikill. Þeir sem þola illa sterk-
an mat geta því beðið um að tóna
hann niður. Hins vegar eru margir af
vinsælustu réttum staðarins einmitt
afar sterkir og má þar nefna Larb,
sem er taílenskt salat með annað-
hvort kjúklingi eða svínahakki, fersk-
um kryddjurtum og chilli, Öskur
tígursins, sem eru ótrúlega ljúffeng-
ir snöggsteiktir nautakjötsstrimlar
ásamt sætri ídýfu, og grænt og rautt
karrí – hvort um sig einstaklega
bragðgott og ilmandi af sítrónu-
grasi, taílenskum basil og engifer.
Veitingahúsið er auk þess með úrval
klassískra rétta eins og vorrúllur,
fiskikökur, núðlur og hið sívinsæla
Masaman karrí. Ban Thai býður
einnig upp á einstaklega bragðgóða
humarsúpu sem ætti hiklaust að
prófa á köldum vetrarkvöldum.
Ekta taílensk
upplifun
SANTA RITA: Með bestu kaupum á markaðnum