Fréttablaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 8
8 25. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR
���������������������������
����������
�������������������
�����������������������
� � ������������������������������������
�
„Glæsilega fléttuð bók.“
� � ������������������
�������������
����������������
����������������
� � �������������
„Spennandi og trúverðug.“
� � ������������������������������
�
��������������������
��������������������������������������
� � ���������������������������
�����������������������
VEISTU SVARIÐ
1 Hvenær fær Landhelgisgæslan nýtt varðskip?
2 Hvað eru margir á biðlista eftir tæknifrjóvgun?
3 Við hvaða fyrirtæki gerði Alþjóða-knattspyrnusambandið (FIFA)
risasamning í vikunni?
DÓMSMÁL Lárus Már Hermanns-
son hefur verið dæmdur í fimm og
hálfs árs fangelsi fyrir að ráðast
á fyrrverandi sambýliskonu sína
með felgujárni á heimili hennar á
Akranesi sunnudaginn 28. ágúst.
Konunni voru einnig dæmdar
700.000 krónur í miskabætur.
Lárus, sem er 36 ára, hefur setið
í gæsluvarðhaldi frá því atburður-
inn átti sér stað.
Lárusi fipaðist og lét af árás-
inni þegar konan öskraði á hjálp,
en hafði þá veitt henni alvarlega
áverka. Á efri hæð hússins sváfu
börn Lárusar og konunnar, 14
ára stúlka og 11 ára piltur. Konan
komst upp, þar sem stúlkan
hringdi á Neyðarlínu. Klukkuna
vantaði þá fimm mínútur í níu að
morgni.
Þegar lögreglu bar að garði
voru þar fyrir konan og börnin, en
Lárus Már var á bak og burt. Sá
lögregla strax að konan var víða
meidd á höfði og blæddi mikið.
Felgulykillinn fannst bak við bað-
herbergishurð, en þar var tals-
vert blóð sjáanlegt og blóðslettur
á hurð, veggjum og gólfi. Þá segir
lögregla að talsvert blóð hafi verið
í svefnherbergi á annarri hæð, en
þar var konan þegar þeir komu.
Lárus hafði rætt við dóttur
sína í síma kvöldið áður og frétt
að móðir hennar væri á leið á
dansleik. Um tvö ár voru síðan
þau höfðu slitið samvistum eftir
að hafa verið saman í tólf ár. Um
nóttina fór hann til Akraness
og beið alla nóttina fyrir utan
hjá konunni. Hann sá til henn-
ar með manni um klukkan fimm
um morguninn og svo þegar hún
sneri aftur ein heim um klukkan
níu lét Lárus til skarar skríða.
Konan varð fyrst vör við hann
þar sem hún var inni á baðher-
bergi að bursta tennurnar og fékk
skyndilega höfuðhögg. Árásin var
hrottaleg og var konan viss um að
hennar síðasta væri runnið upp.
Hún hlaut marga djúpa skurði á
höfðuð og áverka á vinstri hönd og
handlegg sem hún reyndi að bera
fyrir sig. Læknir sagði árásina
hafa verið sérstaklega hrottalega
og konan sögð „sérstaklega lán-
söm að látast ekki við atlöguna“.
Geðlæknir sem skoðaði Lárus
eftir atburði taldi hann ábyrg-
an gjörða sinna þrátt fyrir að
vera haldinn hugvilluröskun af
afbrýðisemistoga. Fram kom að
hann hafði átt við þunglyndi og
drykkju að stríða og nokkrum
sinnum reynt sjálfsvíg. Hann
fannst nokkru eftir klukkan tíu
í malarnámu norðan við Hval-
fjarðargöng og var þá búinn að
leiða útblástur bifreiðarinnar inn
um hliðarrúðu á henni. Hann var
fluttur á sjúkrahús á Akranesi og
svo á geðdeild í Reykjavík, en var
svo úrskurðaður í gæsluvarðhald.
„Atlaga ákærða gegn Guðrúnu
Lilju var ófyrirleitin og beindist
gegn lífi hennar. Réð tilviljun ein
því að ákærði náði ekki markmiði
sínu. Á ákærði sér engar máls-
bætur,“ segir í dómi Héraðsdóms
Vesturlands en hann kvað upp
Símon Sigvaldason héraðsdóm-
ari. olikr@frettabladid.is
Lánsöm að
vera á lífi
Maður var dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi fyr-
ir árás á fyrrverandi sambýliskonu með felgulykli.
Hún var hætt komin. Börn þeirra voru á staðnum.
SVÖRIN ERU Á BLS. 62
FELGULYKILL GETUR VERIÐ SKAÐRÆÐISVOPN Myndin er sviðsett. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
STJÓRNMÁL Sturla Böðvarsson,
samgönguráðherra, sem staddur
er í Kína, ræddi við Shao Qiwei,
ferðamálaráðherra Kína, á fundi
í fyrradag.
Þar kom fram sameiginlegur
áhugi ráðherranna á að auka sam-
skipti þjóðanna á sviði ferðamála.
Kínverski ferðamálaráðherrann
sagði að gríðarleg tækifæri fæl-
ust í auknum fjölda ferðamanna
frá Kína fyrir ferðaþjónustuna á
Íslandi.
Shao Qiwie og Sturla Böðvarsson
ræddu einnig möguleg skipti sér-
fræðinga í ferðaþjónustu á milli
landa. - sk
Samgönguráðherra í Kína:
Samvinna á
sviði ferðamála
Eldur við Seljaskóla Eldur kom upp
við kennsluskúr Seljaskóla um klukkan
sjö í gærkvöld. Kveikt hafði verið í brúsa
með eldfimum vökva og kom nágranni
með handslökkvitæki og var búinn að
slökkva eldinn áður en slökkilið kom á
staðinn. Ekki er vitað hver kveikti í.
SLÖKKVILIÐIÐ
SIGRÍÐUR ANNA ÞÓRÐARDÓTTIR Sat fund
Eystrasaltsráðsins.
UMHVERFISMÁL Sigríður Anna Þórð-
ardóttir, umhverfisráðherra, sat í
fyrradag fund umhverfisráðherra
ríkja sem eiga aðild að Eystra-
saltsráðinu.
Fundurinn sem fram fór í Stokk-
hólmi var haldinn vegna mikillar
mengunar í Eystrasalti. Umhverf-
isráðherra lagði á fundinum
áherslu á að sjálfbær þróun væri
höfð að leiðarljósi við að endur-
heimta vistkerfi Eystrasalts. Þá
lagði ráðherrann einnig áherslu
á auknar rannsóknir og að fleiri
kæmu að verndun Eystrasalts. - sk
Umhverfisráðherra situr fund:
Mikil mengun
í Eystrasalti
KÆRUMÁL „Þetta er algjör steypa,
ég veit ekki um neina gaura sem
hafa komið þarna á mínum vegum.
Ég þekki enga gaura sem ættu að
hafa komið þarna,“ segir Ástþór
Magnússon, fyrrverandi forseta-
frambjóðandi. Ástþór hefur nú
kært ritstjórn DV fyrir að birta
um sig frétt með fyrirsögninni
„Ástþór sendi átta vopnaða hrotta
á leigjanda“. Hann krefst þess að
þeir blaðamenn sem hlut eiga að
máli verði dæmdir í tveggja ára
fangelsi.
Ástþór hefur einnig kært 23
verslunarstjóra í verslunum Bón-
uss fyrir að birta auglýsingar DV
í verslunum þar sem hann telur
það vera brot á almennum hegn-
ingarlögum að birta það sem hann
kallar tilhæfulausar lygar og róg-
burð á veggjum í verslunum.
Um efni fréttarinnar segist
Ástþór ekki hafa lesið hana. Hann
staðfestir að hann leigi út íbúð í
Vogaseli og segir leigjendurna
hvorki hafa borgað leigu né skil-
að tryggingavíxli. „Ég sendi þeim
símskeyti þar sem samningnum
er rift. Það eru einu samskipti
mín við þetta fólk. Kannski eru
nýjir eigendur ritsímans farnir að
fara um með vopnaðar sveitir til
þess að afhenda símskeyti,“ segir
Ástþór.
- saj
Ástþór Magnússon kærir ritstjórn DV og verslunarstjóra Bónusverslana:
Krefst tveggja ára fangelsis
ÁSTÞÓR MAGNÚSSON Ástþór segir fréttir
DV vera algjöra steypu og kveðst ekki
vera með neina gaura á sínum snærum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA