Fréttablaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 54
■■■■ { suðurland } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■14
GÆÐI Í GEGN
Íslensku LOOK-pönnurnar njóta alþjóðlegrar hylli sem hágæðaáhöld í
eldhúsinu. Þær eru léttar og meðfærilegar, enda steyptar úr áli sem líka
tryggir hámarkshitaleiðni. LOOK-pönnurnar aflagast ekki með aldrinum
svo orkunýtingin er ævinlega eins og um nýja pönnu væri að ræða.
Síðast en ekki síst er nýjustu tækni beitt við húðun LOOK-panna svo
ending, þægindi og notagildi eru tryggð.
Við leggjum metnað okkar í öflugt þróunarstarf sem skilar sér í
bættum eldunareiginleikum og þar með betri árangri í eldhúsinu.
LOOK-pönnurnar eru nú betri en nokkru sinni.
Íslenska kokkalandsliðið velur eingöngu LOOK-pönnur og -potta
FRAMLEIÐSLA
ÍSLENSK
Hagbók ehf.
Eyrarvegi 37, pósthólf 5, 802 Selfossi
Sími: 480-3340 GSM: 693-0901 Fax: 482-1003
Heimasíða: www.hagbok.is
E-mail: hagbok@hagbok.is
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Þuríðarbúð var reist af Stokkseyr-
ingafélaginu í Reykjavík árið 1949
til minningar um Þuríði Einarsdótt-
ur formann og horfna starfshætti.
Hún var endurhlaðin árið 2001.
Þuríður, sem fæddist árið 1777
og lést árið 1863, var mikill víking-
ur. Hún fór í sinn fyrsta róður ellefu
ára gömul á bát föður síns en sautj-
án ára varð hún háseti upp á fullan
hlut, þá á bát bróður síns.
Þuríður stundaði sjósókn í tæpa
hálfa öld, yfirleitt sem formaður á
bátum, en árið 1843 neyddist hún
til að hætta sjósókn vegna heilsu-
leysis, þá 56 ára að aldri.
Vegna vinnu sinnar klæddist
hún karlmannsfötum og fékk til
þess leyfi sýslumanns. Þuríður þótti
góður formaður, útsjónarsöm, var-
kár en þó áræðin og vinsæl meðal
háseta, en einstakt þótti að kona
væri formaður á bát.
Á Stokkseyri skiptu sjóbúðir eins
og Þuríðarbúð tugum á seinni hluta
19. aldar. Þær voru hlaðnar úr torfi og
grjóti. Bálkar voru meðfram veggjum
og í þeim sváfu tveir og tveir saman
og voru þeir kallaðir lagsmenn. Sjó-
búðirnar voru allt í senn; svefnskáli,
matstofa og dagstofa vermanna.
Þuríðarbúð var endurhlaðin árið
2001 undir stjórn Guðjóns Krist-
inssonar hleðslumeistara og býður
sveitarfélagið stundum upp á fróð-
lega og skemmtilega leikþætti í
búðinni á sumrin.
Klæddist karlmannsfötum
Þuríðarbúð líkist ótal öðrum sjóbúðum
sem var að finna við strendur Suðurlands
á 19. öld.
Þuríðarbúð á Stokkseyri. Fréttablaðið/Heiða