Fréttablaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 37
FÖSTUDAGUR 25. nóvember 2005 5 Svölurnar hafa gefið út sitt árlega jólakort. Ágóði af sölu kortanna mun renna til MS-félagsins og endur- hæfingarstöðvarinnar að Reykjalundi. Svölurnar, félag fyrr- verandi og núverandi flugfreyja, hefur gefið út jólakortið sitt fyrir árið 2005. Aðalfjár- öflun félagsins er sala jólakortanna og eru þau seld fimm saman í pakka og kosta fimm hundruð krón- ur. Ágóðinn mun meðal annars renna til styrktar MS-félaginu og endurhæfingar- stöðinni að Reykjalundi í tilefni af sextíu ára afmæli stofnunarinnar auk annarra tilfallandi verkefna. Erna Guðmundsdóttir, mynd- listarkona og félagi í Svölunum, mynd- skreytti kortið. Jólakortin eru til sölu hjá félags- konum. Hægt er að panta þau á netfangi Svalanna svolurnar@simnet. is og einnig fást þau í verslunum víða á höfuðborgarsvæðinu. ■ Jólakort Svalanna FÖSTUDAGURINN 25. NÓVEMBER 18.00 Tónlistardeild Listahá- skóla Íslands heldur jólatónleika í Skemmtihúsinu við Laufásveg 22. LAUGARDAGURINN 26. NÓVEMBER 12.00 Jólaþorpið í Hafnarfirði verður formlega opnað með pompi og prakt. 13.00 Jólamarkaður verður í Bjark- arási hæfingarstöð í Stjörnugróf 9 í Reykjavík til klukkan 16. Þar verða til sölu listmunir úr Smiðjunni. Fulltrúar frá Ási vinnustofu verða einnig með sinn varning og léttar veitingar verða til sölu. 17.00 Útgáfutónleikar Guðrúnar Gunnarsdóttur og Friðriks Ómars ásamt níu manna stórhljómsveit undir stjórn Ólafs Gauks í Salnum í Kópavogi. Verða einnig á sama tíma á sunnudag. 18.00 Tíðagjörð í Selfosskirkju vegna aðfangadags aðventu í umsjá séra Gunnars Björnssonar. SUNNUDAGURINN 27. NÓVEMBER Fyrsti sunnudagur í aðventu. Fjölbreytt dagskrá í flestum kirkjum landsins. líður að jólum } Alls konar tónlist EINS OG ALLTAF FYRIR JÓLIN ER MIKIÐ FRAMBOÐ AF TÓNLEIKUM OG ÖÐRUM HÁTÍÐLEGUM OG SKEMMTILEGUM UPPÁKOMUM UM ALLT LAND. Góðir hálsar, skreytum hús með grænum baunum, falalalafel og svo fram- vegis. Eru þessi jól ekki löngu búin, annars? Samkvæmt mínu tímatali byrjuðu þau fyrir meira en mánuði, um miðjan október, í Litlu-Svíþjóð en þangað fer ég stundum til að sníkja kjötboll- ur. Ég hafði frétt af gómsætum fiskrétti í hlaðborðinu og fór til að kanna málin. Og viti kettir og menn, það voru bara komin jól! Ég fór auðvitað alveg í panikk, ég meina, jólin eru mín vertíð og þá ætti ég ekki að hafa undan að sinna skyldum mínum, liggja í leyni fyrir utan Mæðrastyrks- nefnd og klóra í söfnunarbauk- ana hjá Hjálpræðishernum. Ég var ekki byrjaður að brýna klærnar og datt einna helst í hug að miðdegislúrinn hefði reynst aðeins of langur. En svo reynd- ist ekki vera. Jólin voru bara komin - MIKLU fyrr en venju- lega. Og ég verð að segja að ég er FÚLL! Þessi jólaaukning um meira en mánuð felur í sér gríð- arlegt aukavinnuálag fyrir mig og Spillikötturinn sem stundum hefur komið mér til hjálpar á álagstímum er í prófum fram í miðjan desember. Jólalýðs- félagið lyftir ekki loppu til að verja réttindi vor og passa að vér fáum þá greitt fyrir þetta aukaálag. Ég sá meira að segja einn jólasveininn fremja alvar- legt verkalýðsbrot á dögunum þegar hann kveikti á jólaljósum utan hefðbundins og umsamins vinnutíma. Ég meina - hvað er að gerast? Ég veit allavega hvað ég ætla að gera. Ég mun krefj- ast þess að kjötbollurnar í Ikea verði fiskibollur - að minnsta kosti fram að jólum! Lifið heil! Jólin eru þrotin og lifi þau vel... Mín skoðun JÓLAKÖTTURINN TEKUR TIL MJÁLMS Erna Guðmundsdóttir myndlistarkona myndskreytti jólakort Svalanna í ár. �������������� ������� ���������� ���� ���� ������� ������ �������� ����� �������� ���������� ��� �� �������������� ��������������
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.