Fréttablaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 46
■■■■ { suðurland } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Við fjöruborðið, Stokkseyri
Veitingastaðurinn Við fjöruborðið á Stokkseyri hefur lengi verið þekktur
bæði fyrir humarréttina sína og skemmtilegt andrúmsloft. Þar er boðið upp
á meira en magafylli; staðurinn er samtvinnaður fjöruborðinu sem húsið
stendur við og bera innréttingarnar vott um það, en fiskinet eru notuð til
skreytinga.
„Þetta er afar kósí hjá okkur og staðurinn er sérstaklega rómantískur á
veturna,“ segir annar af tveimur eigendum, Jón Tryggvi Jónsson.
Staðurinn byrjaði sem kaffihús árið 1996 en tveimur árum síðar var
tekið að elda humar, fyrst undir berum himni. Svo var tekið að bæta við
húsið og nú tekur staðurinn mest 230 manns í sæti í þremur sölum sem
bera nöfnin Himinninn, Hafið og Tjaldið.
„Humarinn stendur alltaf fyrir
sínu. Hann er pönnusteiktur í hvít-
lauk og smjöri, kemur í skelinni og
við berum hann fram með kúskús,
salati og kartöflum úr Þykkvabæn-
um. Við leggjum mikið upp úr því að hafa hráefnið alltaf ferskt og flott,“
segir Jón Tryggvi.
Riverside, Hótel Selfossi
Veitingastaðurinn Riverside, sem
þýða mætti sem Við árbakkann, á
Hótel Selfossi, er sá nýtískulegasti
af þeim sem við fórum á. Hér er
útsýnið yfir Ölfusána stórkostlegt,
enda gluggarnir margir og stórir, og
á þessum tíma árs sér fólk oft norð-
urljósin dansa yfir Ingólfsfjallinu,
að sögn Óla Guðmundssonar sölu-
stjóra.
Riverside, sem var opnaður fyrir
rúmu ári síðan, er stílhreinn og
skemmtilegur veitingastaður sem
tekur 250 manns í sæti í einum
ílöngum sal. Beinhvítir leðurklæddir
stólar og hvítir borðdúkarnir stinga
skemmtilega í stúf við kóngablátt
teppið á gólfinu og við barinn eru
beinhvítir leðursófar, þar sem gott er
að fá sér koníak eftir matinn.
Á föstudögum er boðið upp á
jólahlaðborð á veitingastaðnum og
leikur Lis Gammon þá á pianó og
syngur undir borðhaldi. Á laugar-
dagskvöldum er jólahlaðborð annars
staðar í hótelinu, en veitingastaður-
inn er samt sem áður opinn og býður
upp á rétti af matseðlinum.
Rauða húsið, Eyrarbakka
Í skemmtilegu húsi á Eyrarbakka, sem áður hýsti verslun og síðar röra-
verksmiðju, er afar notalegur veitingastaður, Rauða húsið. Upphaflega var
veitingahúsið opnað árið 2001 í mun minna húsi sem áður þjónaði sem
barnaskóli Eyrbekkinga, en í vor flutti staðurinn sig um set.
„Það hús var einfaldlega of lítið, ekki nema 200 fermetrar, en þetta
hús er 730 fermetrar og tekur rúmlega 200 manns í sæti,“ segir Pétur
Andrésson, annar af tveimur eigendum hússins, og bætir við að salirnir séu
þrír og enginn þeirra því yfirþyrmandi að stærð. Aðalsalurinn á miðhæð
hússins er ákaflega notalegur, gerð-
ur upp í gamaldags stíl með viðar-
gólfum, listum í lofti og jólastjörn-
um í gluggum. Hann minnir helst
á stofu á heimili efnafólks á fjórða
áratugnum enda löguðu eigendurn-
ir sig eftir þeim stíl og fóru meðal
annars á antíksölu í Danmörku til
að útvega ljósin í þennan sal.
Auk hefðbundins matseðils,
þar sem fiskréttir skipa heiðurs-
sess, býður staðurinn þessa dagana
upp á jólahlaðborð um helgar þar
sem Nanna Rögnvaldardóttir, mat-
gæðingur og ritstjóri gestgjafans.
is, hefur lagt hönd að hönnun mat-
seðilsins.
6
Girnilegir kvöldverðir á Suðurlandi
Fréttablaðið heimsótti þrjá eðalveitingastaði á Suðurlandi sem allir hafa sinn sjarma, þó mjög ólíkir séu. Ekki er hægt að gera upp á milli þeirra
þegar kemur að matseldinni en allir sérhæfa sig í humarréttum, eins og sést af myndunum.
Humar veitingastaðarins Við fjöruborðið á
Stokkseyri er vel þekktur. Humarinn kostar
á bilinu 2.600 krónur til 3.900 krónur, eftir
því hvaða réttur er valinn.
Humar og fleiri gómsætir réttir sem fást
á veitingastaðnum Við fjöruborðið á
Stokkseyri.
Halldór Halldórsson, yfirkokkur á Riverside, leggur hér lokahönd á gómsætan sesamristaðan kjúkling á salati. Sem aðalréttur kostar kjúkl-
ingasalatið 2.050 krónur.
Fiskréttur dagsins er breytilegur á Rauða húsinu eftir því hvaða
fiskur er girnilegastur í boði hjá sjómönnum á Suðurlandi.
Þessi gufusoðni lax, sem er borinn fram með gljáðu grænmeti
og greipaldin-saffran sósu, kostar 2.200 krónur á kvöldin en
1.690 í hádeginu.
Humarinn hjá Rauða húsinu
kostar 5.400 krónur sem aðal-
réttur en 3.200 krónur ef minni
skammtur er pantaður. Myndin
sýnir stærri skammtinn.