Fréttablaðið - 25.11.2005, Qupperneq 26
25. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR26
RV2045_2dx150 Pillivuyt 29.6.2005 9:01 Page 1
Postulín, glös og hnífapör
– fyrir brúðhjón og betri veitingahús
FRANCEP
U
IL
VLI YT
Mán
udag
a til
föstu
daga
frá k
l. 8:0
0 til
18:00
Laug
arda
ga fr
á
kl. 10
:00 t
il 14:
00
Opnu
nartí
mi
í ver
slun
RV:
R
V
20
45
Ásýnd og yfirbragð miðbæj-
arins á Akureyri mun taka
gagngerum stakkaskiptum
á næstu árum. Aðlaðandi
íbúðarbyggð, fjölbreyttri
menningu og iðandi mann-
lífi er ætlað að renna saman
í eitt og sólrík og skjólgóð
svæði munu veita Akureyr-
ingum og gestum þeirra
tækifæri og ástæðu til að
staldra við í miðbænum.
Stýrihópur sem skipaður var í
kjölfar verkefnisins Akureyri í
öndvegi hefur skilað af sér tillög-
um um hvernig staðið skuli að upp-
byggingu miðbæjarins á Akureyri
og á morgun hefst í Amtsbóka-
safninu opin kynning á tillögu að
nýju skipulagi fyrir miðbæinn.
Samkvæmt þeirri tillögu verð-
ur miðbænum umbylt á næstu
árum í því augnamiði að laða fólk
og fyrirtæki að hjarta bæjarins en
honum er ætlað að verða þunga-
miðja mannlífs og menningar á
Akureyri um ókomin ár.
Tillagan byggir á óskum bæjar-
búa sem fram komu á fjölmennu
íbúaþingi á Akureyri í fyrra og
verðlaunahugmyndum í alþjóð-
legri hugmyndasamkeppni á
meðal arkitekta sem haldin var í
kjölfar þingsins.
Helsti hvatamaður að uppbygg-
ingu miðbæjarins var Ragnar
Sverrisson, kaupmaður í JMJ á
Akureyri, en ráðgjafarfyrirtæk-
ið Alta kom að verkefninu strax í
upphafi og fylgir því enn eftir.
Framkvæmdin er stórhuga og
um margt einstök, jafnt á inn-
lendan sem erlendan mælikvarða.
Byggð verður þétt og byggingar
munu mynda aðlaðandi borgar-
umhverfi þar sem tekið verður
tillit til minja og sögu Akureyr-
ar, landslags og nálægðarinnar
við sjóinn. Lögð verður áhersla á
vistleg göturými og torg, heillega
götumynd með samfelldum húsa-
röðum og skjólsæl og sólrík rými.
Íbúðarbyggð, verslun og þjón-
usta munu blandast saman í eitt
í nýjum miðbæ og þar eiga Akur-
eyringar að geta búið, starfað og
fundið afþreyingu, auk þess sem
miðbænum er ætlað að draga til
sín ferðamenn.
Allar byggingar verða fremur
lágreistar, flestar aðeins fjög-
urra til fimm hæða, en einstaka
byggingar verða sex til sjö hæða.
Verslanir og þjónustufyrirtæki
verða almennt til húsa á jarðhæð-
um bygginganna en íbúðir og ýmis
atvinnustarfsemi á efri hæðum.
Alls er gert ráð fyrir 335 nýjum
íbúðum í miðbænum en með til-
komu þeirra mun íbúum í hjarta
bæjarins fjölga um hátt í þúsund.
Þrjúhundruð ný bifreiðastæði
verða neðanjarðar en bifreiða-
stæði verða einnig við götur og
innan lóða og áhersla verður lögð
á góða sambúð byggðar, bifreiða
og gangandi umferðar.
Við hönnun gatna, torga og
opinna svæða verður tekið mið af
gangi sólar og veðurfari og þess
gætt að valin svæði henti til sam-
veru og hátíðarhalda utandyra.
Samkvæmt nýju skipulagi er
ekki gert ráð fyrir breyttri land-
notkun á Oddeyri en til lengri
tíma litið er hugsanlegt að sú
atvinnustarfsemi sem þar er víki
fyrir annarri byggð.
Uppbygging miðbæjarins á
Akureyri mun taka mörg ár en
bæjaryfirvöld leggja áherslu á að
framkvæmdir hefjist sem fyrst
á afmörkuðum svæðum. Strax á
næsta ári hefjast framkvæmdir
á ákveðnum skipulagsreitum og á
sama tíma verður hafist handa við
gerð sjávarsíkis sem gjörbreyta
mun ásýnd miðbæjarins.
Hjarta bæjarins glætt lífi
AÐLAÐANDI BORGARUMHVERFI Sjávarsíkið verður í framtíðinni eitt helsta auðkenni Akur-
eyrar og mun draga fólk að miðbænum.
Íbúðarbyggð og almennings-
garður verða þar sem nú er aðal
íþróttavöllur bæjarins. Lágreist
íbúðabyggð verður meðfram Gler-
árgötu en skemmtigarður á miðju
íþróttavallarsvæðinu, og til vest-
urs, með göngutengingu að versl-
unarmiðstöðinnni Glerártorgi.
Hagkaup hefur haft augastað
á lóðinni sunnan íþróttavallar-
ins en samkvæmt nýju skipulagi
er ekki gert ráð fyrir verslun á
þessu svæði. Hagkaupsmenn hafa
þó enn ekki gefið upp alla von og
hafa óskað eftir því að bæjaryfir-
völd endurskoði afstöðu sína.
Kristján Þór Júlíusson bæjar-
stjóri segir að ekki hafi verið
tekin ákvörðun um staðsetningu
nýs íþróttavallar en segir að sú
ákvörðun verði tekin fyrir sveit-
arstjórnarkosningarnar á næsta
ári. ■
Almenningsgarður:
Íþróttavöllur-
inn mun víkja
GRÆNN REITUR Almenningsgarður verður
þar sem íþróttavöllurinn er nú og Hag-
kaupsmenn hafa enn augastað á lóðinni
sunnan vallarins.
Matvöruverslun í miðbænum mun
bæði styrkja íbúðarbyggð og draga
að fólk í hjarta bæjarins sem aftur
mun efla aðrar verslanir og þjón-
ustufyrirtæki á svæðinu. Sam-
kvæmt nýju miðbæjarskipulagi
eru tveir skipulagsreitir ætlaðir
undir stórmarkað, Sjallareitur og
Glerárgötureitur, en ekki hefur
verið tekin ákvörðun um hvort
báðir reitirnir verði nýttir undir
stórmarkað.
Rífa þarf byggingar á Sjalla-
reitnum og þurfa húsin á milli
Sjallans og Strandgötu að víkja,
að undanskildum þeim húsum
sem standa næst Strandgötu. ■
Segull sem dregur að fólk
GLERÁRGÖTUREITUR Hugsanlegt er að stórmarkaður rísi norðan Útvarpshússins, á milli
Skipagötu og Glerárgötu, en þar eru nú bifreiðastæði.
SJALLAREITUR Húsin í hægri jaðri myndarinnar munu standa áfram en byggingarnar á miðri myndinni
þurfa að víkja fyrir stórmarkaði eða öðrum nýbyggingum.
Á íbúaþinginu í fyrra kom fram
að Akureyringar vilja ekki háhýsi í
miðbæinn og því er gert ráð fyrir
að byggð verði fremur lágreist.
Gerðar verða sérstakar kröfur
um ásýnd framhliða bygginga og
gefnar út leiðbeiningar um lita-
og efnisval.
Frumleg og litskrúðug lýsing
mun setja sterkan svip á mið-
bæinn en gert er ráð fyrir að
hægt verði að breyta litum eftir
því sem tilefnin kalla á. Lýsingin
mun gera byggingar og bæjarlif
að síbreytilegum umhverfislista-
verkum og miðbærinn mun á
stundum fá á sig draumkennt
yfirbragð.
LÍFIÐ Í LITUM Hægt verður að breyta lýsingunni og taka þá mið af árstíma eða sérstökum uppákomum í miðbænum.
Menningarhús mun rísa við
sjávarsíðuna, norðan síkis,
og stefna bæjaryfirvöld á að
fjölga menningarviðburðum
í miðbænum og efla afþrey-
ingu almennt. Samhliða þeirri
uppbyggingu er þess vænst
að ferðamönnum fjölgi og þar
með verði fleiri stoðum skot-
ið undir menningartengda
atvinnusköpun.
Nýbyggingar munu rísa á
landfyllingu við Torfunef og
hugsanlegt að hár turn rísi
norðan síkisins en það er sam-
kvæt þeirri tillögu sem hlaut
fyrstu verðlaun í alþjóðlegu
hugmyndasamkeppninni um
uppbyggingu miðbæjarins.
Nýtt menningarhús rís
NÝ ÁSÝND Á rauðu reitina koma nýbyggingar en þeir
svörtu sýna byggingar sem nú þegar eru til staðar.
Menning rhús mun rísa á rauða hringlaga reitnum
við sjávarsíðuna.
FRÉTTASKÝRING
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
kk@frettabladid.is
Síbreytileg umhverfislistaverk