Fréttablaðið - 25.11.2005, Síða 65

Fréttablaðið - 25.11.2005, Síða 65
FÖSTUDAGUR 25. nóvember 2005 33 Ég hef um alllangt skeið fylgst með baráttumálum aldraðra. Þeir sem hafa verið í forsvari fyrir þeim hópi hafa látið vel í sér heyra og m.a. rætt við ráða- menn ríkisstjórnarinnar og sýnt fram á þá skerðingu sem aldr- aðir og öryrkjar hafa mátt þola í langan tíma, en alltaf talað fyrir daufum eyrum. Núverandi ríkisstjórn breytti lögum um málefni aldraðra árið 1995. Lögin sögðu að bætur til þessara hópa skuli fylgja kaup- gjaldsvísitölu en ekki launavísi- tölu eins og var áður.Þetta leiddi til þess að kjör þessara hópa hafa verið stórskert eftir þessar breyt- ingar. Skattleysismörkin eru allt- of lág eða alls 75.062 krónur, en væru 102.472 ef ekki hefði verið hreyft við vísitölunni á sínum tíma. Kerfið eins og það er upp- byggt í dag hegnir miskunnarlaust þeim sem hafa farið að lögum og greitt í lífeyrissjóð. Sá sem aftur á móti hefur svikist um og greitt í staðinn inn á bankabók eða keypt sér verðbréf stendur miklu betur að vígi. Hann tekur sparnað sinn út og greiðir aðeins 10 prósent fjármagnstekjuskatt meðan hin þjóðin (það eru tvær þjóðir í þessu landi) greiðir 38 prósent skatt. Það má einnig benda á tekju- tengingarnar og takmarkanirn- ar sem óspart eru notaðar á elli- lífeyrisþega og öryrkja. Ég vil benda öllum á sem greitt hafa í aukalífeyrissparnað að taka hann allan út fyrir 67 ára aldur og ávaxta sjálf á þann hátt sem hver vill. Fullan skatt verður að borga af þessu strax en þá er maður laus við skerðinguna sem verður hjá Tryggingastofnun ríkisins þegar þar að kemur. Ég lenti sjálf í því að taka þennan sparnað of seint út og sýp seyðið af því nú. Er ekki kominn tími til að ein- falda þennan óskiljanlega frum- skóg sem tryggingakerfið er nú. Á síðustu árum er svo oft búið að breyta lögum um málefni aldr- aðra að þetta er orðið að einum hrærigraut. Nú nýlega þegar aðilar vinnu- markaðarins gengu frá sam- komulagi um eingreiðslu 26.000 kr. ákvað ríkisstjórnin að þeir sem væru á atvinnuleysisbótum, örorkubótum og ellilífeyrisþegar skuli einnig fá þessar greiðslur, það er að segja þeir sem eru með óskerta tekjutryggingu. Í dag eru um 300 manns á öllu landinu með óskerta tekjutryggingu, það eru þeir sem fá ekkert úr lífeyr- issjóði. Lífeyrissjóður Suðurnesja (nú Suðurlands) sendi sjóðsfélögum nýverið bréf um skerðingu upp á 16 prósent sem gildir frá 1.októb- er. Þann 1. janúar á þessu ári ske- rti sjóðurinn bæturnar um 5 pró- sent. Samtals er þetta 21 prósent skerðing á árinu. Þeir sem eru að fá greiðslur úr sjóðnum í dag finna óþyrmilega fyrir því þegar svona miskunnarlaust og án fyr- irvara er vegið að afkomu fólks. Áhyggjulausa ævikvöldið fyrir aldraða sem talað er um á tylli- dögum er orðið að martröð. Var ekki sagt í haust á alþingi þegar uppgötvaðist um klúðrið á lögum um eftirlaunafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir alþing- ismenn, að það mætti ekki skerða alþingismenn sem nú þegar væru farnir að fá eftirlaunagreiðsl- ur? Það gilda víst aðrar reglur á þeim bæ! Höfundur er lífeyrisþegi í Lífeyrissjóði Suðurlands. Áhyggjulaust ævikvöld orðið að martröð GUÐRÚN E. ÓLAFSDÓTTIR SKRIFAR UM KJÖR ALDRAÐRA 1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.