Fréttablaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 70
25. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR38
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að
ofan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Margrét Pétursdóttir
Dvalarheimilinu Skjaldarvík, áður
Tjarnarlundi 6a, Akureyri,
lést laugardaginn 19. nóvember. Jarðarförin fer fram frá
Akureyrarkirkju mánudaginn 28. nóvember kl. 13.30.
Þórir Sigurbjörnsson Sigrún María Gísladóttir
Pétur Sigurbjörnsson Elín Hafdal
Anna Fríða Kristinsdóttir Gunnar Anton Jóhannsson
Baldur Hólm Kristinsson
Gullveig Ósk Kristinsdóttir Kristján Sveinsson
Snorri Viðar Kristinsson Ágústa Kristín Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi,
Herbert Tryggvason
áður til heimilis að Norðurbyggð 18,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Skjaldarvík 28. október.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Innilegar þakkir til starfsfólks í Kjarnalundi og Skjaldar-
vík fyrir góða umönnun.
Kristbjörg Ingvarsdóttir
Ingólfur Herbertsson
Ívar Herbertsson Þórey Friðfinnsdóttir
Brynja Herbertsdóttir
og afabörn.
Ástkær móðir okkar, fósturmóðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Kristrún Jóhannsdóttir
frá Skálum á Langanesi, Dalbraut 27,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 22.
janúar. Útförin verður auglýst síðar.
María Vilhjálmsdóttir
Helga A. Vilhjálmsdóttir
Friðrik J. Vilhjálmsson
Selma Vilhjálmsdóttir Þorgils Harðarson
Dagur Vilhjálmsson Stella S. Vilhjálmsson
Oddný Vilhjálmsdóttir
Kolbrún H. Sigurjónsdóttir Garðar I. Tryggvason
Valgerður Briem Sigurður R. Gíslason
ömmubörn og langömmubörn.
Móðir mín,
Sigríður Þórðardóttir
Tryggvagötu 30, Selfossi,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands mánudaginn
21. nóvember.
Hafsteinn Kristjánsson.
Sími 460 1760
johann@isi.is
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
www.steinsmidjan.is
MERKISATBURÐIR
1783 Síðustu bresku hermenn-
irnir yfirgefa New York-borg.
1897 Púertó Ríkó fær sjálfstæði
frá Spáni.
1940 Breska herstjórnin á Íslandi
lýsir allt hafsvæði milli
Vestfjarða og Grænlands
hættusvæði.
1952 Leikritið Músagildran eftir
Agöthu Christie er frum-
sýnd í London.
1963 Forseti Bandaríkjanna, John
F. Kennedy, er jarðsunginn í
Washington.
1973 Gríska forsetanum George
Papadopoulos er steypt af
stóli.
1982 Þyrla rekst í loftnetsvír og
brotlendir skammt frá Sjón-
varpshúsinu við Laugaveg í
Reykjavík.
CHARLES KETTERING (1876-1958)
LÉST ÞENNAN DAG.
„Ef þú vilt drepa niður
einhverja hugmynd, láttu
þá nefnd fjalla um hana.“
Charles Kettering var bandarískur
uppfinningamaður. Hann fann meðal
annars upp sjálfvirku kveikjuna í bíla.
Á þessum degi árið 1970 framdi hinn heimsþekkti
japanski rithöfundur Yukio Mishima sjálfsmorð eftir
að hann fékk ekki hljómgrunn hjá almenningi fyrir
oft á tíðum öfgakenndar pólitískar skoðanir sínar.
Mishima fæddist árið 1925. Hann var heltekinn
af því sem hann áleit andlegt íburðarleysi nútímalífs.
Hann hefði heldur kosið Japan líkt og það var fyrir
heimsstyrjöld þar sem ströng þjóðernishyggja og
hefðir réðu ríkjum en ekki vestræn efnishyggja.
Hann stofnaði mjög umdeildan einkaher, byggð-
an upp af hundrað stúdentum sem áttu að verja keis-
arann ef til uppreisnar vinstrisinna kæmi.
Þann 25. nóvember skilaði hann útgáfustjóra
sínum síðasta handriti að fjögurra binda verki um líf
Japana á 20. öldinni. Þá hélt hann ásamt nokkrum
fylgismönnum sínum og hertók skrifstofur hershöfð-
ingja í hernaðarlegri byggingu í Tókýó. Hann hélt stutta
ræðu af svölum yfir um þúsund hermönnum þar sem
hann hvatti þá til vopna. Hermennirnir tóku ræðunni
fálega og sá Mishima sér þá einu leið færa að fremja
seppuku, sjálfsmorð samkvæmt japanskri hefð, þar
sem hann stakk sjálfan sig á hol með sverði.
ÞETTA GERÐIST > 25. NÓVEMBER 1970
Rithöfundur fremur sjálfsmorð
YUKIO MISHIMA
ANDLÁT
Guðríður Konráðsdóttir, Fram-
nesvegi 28, Reykjavík, andaðist
á Landspítalanum Fossvogi
miðvikudaginn 16. nóvember.
Pálína Kristín Þorbjörns-
dóttir Waage, Austurvegi 15,
Seyðisfirði, andaðist á Sjúkrahúsi
Seyðisfjarðar fimmtudaginn 17.
nóvember.
Hólmfríður Hanna Magn-
úsdóttir hjúkrunarfræðingur,
Tryggvagötu 26, Selfossi, andaðist
laugardaginn 19. nóvember.
Margrét Pétursdóttir, dval-
arheimilinu Skjaldarvík, áður
Tjarnarlundi 6a, Akureyri, lést
laugardaginn 19. nóvember.
Sigríður Þórðardóttir, Tryggva-
götu 30, Selfossi, andaðist á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
mánudaginn 21. nóvember.
Svanur Ingi Kristjánsson húsa-
smíðameistari, lést á Hrafnistu
í Hafnarfirði þriðjudaginn 22.
nóvember.
JARÐARFARIR
11.00 Ingibjörg H. Agnars, Aust-
urbrún 4, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Laugarnes-
kirkju.
11.00 Róbert Þór Ragnarsson,
Hveralind 6, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju.
13.00 Anna Sigríður Finnsdóttir,
Hraunbæ 122, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Graf-
arvogskirkju.
13.00 Guðmundur Guðmunds-
son, húsasmiður, Hraunbæ
176, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Árbæjarkirkju.
13.00 Gyða Erlingsdóttir, Þórðar-
sveigi 1, áður Framnesvegi
55, verður jarðsungin frá
Fríkirkjunni í Reykjavík.
13.00 Ingibjörg Jónsdóttir Kolka
verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju.
13.00 Valgerður Marteinsdóttir,
Gullengi 21, verður jarð-
sungin frá Laugarneskirkju.
14.00 Ívar Magnússon, fyrrver-
andi verkstjóri, Lyngbraut 9,
Garði, verður jarðsunginn
frá Keflavíkurkirkju.
14.00 Jóhanna Ólafsdóttir, frá
Beitistöðum, Garðabraut
22, Akranesi, verður jarð-
sungin frá Akraneskirkju.
14.00 Þrúður Helgadóttir,
Freyvangi 17, Hellu, verður
jarðsungin frá Oddakirkju.
15.00 Guðríður Guðleifsdóttir,
Markarflöt 28, áður búsett í
Ólafsvík, verður jarðsungin
frá Vídalínskirkju í Garðabæ.
15.00 Petra Mogensen, Miðleiti
5, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni.
15.00 Þorbjörg Sveinsdóttir, frá
Vík í Mýrdal, verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju.
AFMÆLI
Inga María
Valdimarsdóttir
leikkona er 34 ára.
„Ég er voða mikið afmæl-
isbarn og held yfirleitt
eitthvað upp á það en nú
verður þetta stórafmæli
og mikið fjör,“ segir Þórey
Sigþórsdóttir leikkona,
sem býður stórum hópi
vina og kunningja til veislu
á morgun. „Ég hlakka
mikið til enda nánast engin
afföll af fólki,“ segir Þórey
glaðlega en hún hefur ekki
alltaf verið svo heppin í
afmælisundirbúningnum.
Þegar hún var nýlega
útskrifuð úr leiklistarskóla
og var að leika í einni af
sínum fyrstu leiksýning-
um lenti hún í því að missa
röddina. Henni var fyrir-
lagt að þegja í heila viku
og varð meira að segja að
aflýsa einni sýningu sem
Þóreyju þótti að vonum sárt
en afmælið bar upp á sama
tíma. „Ég hélt því samt til
streitu að halda boðið og
komst að því að það skiptir
engu máli hvort afmælis-
barnið geti talað við gest-
ina eða ekki,“ segir Þórey
hlæjandi og bætir við að
fólki hafi þótt þetta nokkuð
dæmigert fyrir hana.
Þórey kvíðir því síður
en svo að verða fertug. „Ég
hlakka ekkert minna til og
finnst aldurinn alls ekki
yfirþyrmandi,“ áréttar
hún en segir þetta auðvitað
nokkur tímamót.
Þórey starfar sjálfstætt
og veit því aldrei hvað bíður
hennar handan við hornið.
„Ég er í þannig vinnu að
ég er alltaf á krossgötum,“
segir Þórey kímin en í
augnablikinu starfar hún
sem stundakennari við
Listaháskólann þar sem
hún kennir hópi nemenda,
sem eru í listakennara-
námi, raddbeitingu með
aðferðum leiklistarinnar.
Eftir áramót ætlar hún að
kenna þriðja bekk í leik-
listarskólanum raddbeit-
ingu. Þess utan kennir
hún á ýmsum námskeiðum
auk þess sem hún vinnur í
Maður lifandi enda segist
hún vera dottin í matar-
pælingar upp á síðkastið.
„Fertugsárið hefur ein-
kennst af nýju mataræði
og góðum lífsstíl,“ upplýsir
Þórey glaðlega. Hún hefur
lítið leikið síðustu ár en fór
síðast með hlutverk í kvik-
myndinni Kaldaljós.
Það er hefð hjá Þóreyju
að kveikja á gamalli spila-
dós á afmæli allra á heim-
ilinu. Dósina, sem spilar
afmælissönginn, fékk hún
að gjöf frá ömmu sinni
og afa þegar hún var lítil
stúlka og verður ekki
brugðið út af hefðinni í dag
frekar en aðra afmælis-
daga síðustu áratugi. ■
ÞÓREY SIGÞÓRSDÓTTIR LEIKKONA: ER FERTUG Í DAG
Hlakkar alltaf til
VAKNAR VIÐ AFMÆLISSÖNGINN Þórey með forláta spiladós sem hún fékk að gjöf frá ömmu sinni og afa þegar
hún var lítil stúlka. Allir á heimilinu eru vaktir á afmælisdegi sínum með afmælissöngnum sem dósin spilar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1835 Andrew Carnegie góðgerðar-
maður.
1881 Angelo Roncalli, Jóhannes
páfi XXIII.
1914 Joe DiMaggio hafnabolta-
kappi.
1960 John F. Kennedy yngri.