Fréttablaðið - 25.11.2005, Síða 76

Fréttablaðið - 25.11.2005, Síða 76
 25. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR44 Miðar í síma 511 4200 og á www.kabarett.is EKKI MISSA AF KABARETT! Allra síðustu sýningar 25. nóv. kl. 20 (aukasýning) 26. nóv. kl. 20 ALLRA ALLRA SÍÐASTA AUKASÝNING ����������������������������������������������������������������������� ����������� ������������ �������������� �� ����������� �������������������������������������������������������� ������������������������������������������ ������� ������������������������������������������������ ������ �� ��������� ��������������������� ������������� ������������ ��������������������������� ���������������������������������������������������������� ������������������������������� ����� Vegna gífurlegrar aðsóknar Lau. 26. nóv. kl. 14 Síðustu sýningar fyrir jól Frábær skemmtun fyrir alla aldurshópa Laugardagur 26. nóv. Laugardagur 3. des. Laugardagur 10. des. Landsbankinn er stoltur bakhjarl sýningarinnar. MIÐASALA: www.midi.is og í Iðnó s. 562 9700 ÉG ER MÍN EIGIN KONA Næstu sýningar: fös. 25.11 kl. 20 uppselt lau. 26.11 kl. 20 uppselt sun. 27.11 kl. 20 ósóttir miðar í sölu Ath. ósóttar pantanir seldar viku f. sýn. BÆKUR UMFJÖLLUN Dætur hafsins eftir Súsönnu Svav- arsdóttur er „blóðheit spennu- saga“ samkvæmt káputexta og vissulega má lesanda vera ljóst frá upphafi að hér er á ferð erót- ísk spennusaga sem er óvanalegt í íslenskri glæpasagnaflóru. Sagt er frá ritstjóranum Ragnhildi sem er pottþétt kona á fimmtugs- aldri sem telur sig hafa fullkomna stjórn á lífi sínu. Þegar föðursystir hennar, Herdís, er myrt á hrottalegan en að því er virðist táknrænan hátt, fær Ragnhildur dagbækur henn- ar í hendur þar sem hún uppgötv- ar nýja hlið á föðursystur sinni sem hún hafði fram að því talið óspennandi piparjúnku, en Her- dís reynist sverja sig meira í ætt við Afródítu en gamla kynkalda frænku. Ragnhildur uppgötvar þó ekki aðeins nýjan sannleik um fjölskyldu sína heldur verður rannsókn morðmálsins til þess að hún uppgötvar nýjar hliðar á sjálfri sér og kvenlegu eðli sínu og áttar sig um leið á því að stjórn hennar á lífi sínu er kannski ekki eins góð og hún hélt. Segja má að í Dætrum hafsins séu sagðar tvær sögur. Sagan af rannsókn morðmálsins og sagan af innri rannsókn Ragnhildar sem er mun fyrirferðarmeiri í bókinni. Sú rannsókn snýst um kynhvöt kvenna og aldalanga bæl- ingu hennar. Sögurnar tengjast þó þar sem morðið á Herdísi virðist tengjast kynhvöt hennar sem virð- ist vera sá hæfileiki sem sú kona hefur þróað hvað lengst. Mörgum spurningum er varpað fram, s.s. um tilhneigingu nútímakvenna til að „ofstjórna“ lífi sínu og hvort sú stjórnun hafi í för með sér bæl- ingu á ýmsum eðlislægum hvötum og bindi konur í raun í meiri fjötra en ella. Þetta tengir höfundur við ýmsa eðlisþætti grískra gyðja og bendir réttilega á að aðdráttarafl goðanna liggi að hluta til í því að þau hunsa mennskar reglur. Spennusagan sjálf nær aldrei miklu flugi og lausn hennar skiptir reyndar litlu fyrir söguna í heild. Sama má reyndar segja um lang- ar og miklar kynlífslýsingar sög- unnar þar sem allt er sagt og fátt skilið eftir fyrir ímyndunaraflið. Áhugaverðasti þráður sögunnar er hins vegar fjölskyldulíf Ragn- hildar þar sem höfundur vinnur með samskipti foreldra, barna og systkina sem kveikja í lesanda og vekja hann til umhugsunar um meðvirkni, togstreitu mæðgna og annað slíkt. Því hefði að ósek- ju mátt gera betri skil á kostnað lærastroka, tungufimi og annars munaðar. En þá værum við auðvit- að að tala um allt aðra sögu, síður erótíska. Sem slík er Dætur hafs- ins áhugaverð tilraun en kannski full blóðheit fyrir kalt Ísland? Katrín Jakobsdóttir Blóðhiti í hráslaga SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR DÆTUR HAFSINS Höf: SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR ÚTG: JPV Niðurstaða: Spennusagan sjálf nær aldrei miklu flugi og lausn hennar skiptir reyndar litlu fyrir söguna í heild.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.