Fréttablaðið - 25.11.2005, Side 86
54 25. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
> Spilar líklega mikið
Garðar Gunnlaugsson, bróðir tvíburanna
Arnars og Bjarka Gunnlaugssona, reikn-
ar með því að spila mikið hjá skoska
félaginu Dunfermline, ef af för
hans til félagsins verður. „Það
eru mikil meiðsli í herbúðum
Dunfermline og ég reikna
með því að ég spili töluvert
ef af félagsskiptunum
verður.“ Kenny Moyes,
fyrrum umboðsmaður
Arnars og Bjarka, útveg-
aði Garðari möguleika á því
að fara til Dunfermline til
reynslu og þar stóð Garðar
sig vel og mun líklega
fara til skoska félagsins á
næstunni. „Ég er búinn að
samþykkja samningstilboð
og bíð spenntur eftir að
komast út.“
34 6. október 2005 FIMMTUDAGUR
� � LEIKIR
� 14.00 Ísland og Noregur mætast í
æfingaleik í handbolta í
Vestmannaeyjum.
� � SJÓNVARP
� 16.20 Evrópukeppni félagsliða á
Sýn. Útsending frá leik Halmstad og
Sampdoria
� 18.00 Íþróttaspjallið á Sýn. Fjallað
um heitustu mál dagsins.
� 18.12 Sportið á Sýn. Farið yfir
íþróttafréttir dagsins.
� 18.30 NFL-tilþrif á Sýn.
� 19.00 Gillette-sportpakkinn á Sýn.
� 19.30 Fifth Gear á Sýn.
� 20.00 Motorworld á Sýn.
� 20.30 Meistaradeildin á Sýn.
Fréttir af leikmönnum og liðum í
Meistaradeildinni.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
22 23 24 25 26 27 28
Föstudagur
NÓVEMBER
54-55 (34-35) Sport seinni 24.11.2005 16:46 Page 2
Í kvöld fer fram fyrsti leikurinn af þremur
á milli Íslands og Noregs í handbolta.
Hann fer fram í Vestmannaeyjum og
Eyjamenn með hinn vaska Hlyn Sig-
marsson í broddi fylkingar hafa blásið til
þjóðhátíðar í kringum
leikinn. Þeir munu
bjóða upp á heims-
klassaskemmtiatriði
ásamt því að
leikurinn verð-
ur sýndur
í beinni á
netinu í
gegnum
heimasíðu
ÍBV, ibv.
is. Um
skemmti-
dagskrána sér hinn góðlátlegi Banda-
ríkjamaður William Hung en það er
að undirlagi Hlyns að hann kemur til
landsins.
„Ég var að spá í að fá hann í fyrra
fyrir bikarleik hjá okkur
en þá gekk dæmið ekki
upp. Svo þegar í ljós
kom að við myndum fá
þennan landsleik ákvað
ég að reyna aftur að fá
hann og það gekk upp
að þessu sinni,“ sagði
Hlynur og bætti við
að aldrei hefði annað
komið til greina en að
bjóða upp á metnaðarfulla
dagskrá í kringum leikinn.
Margir spyrja sig eflaust að
því hvernig honum datt í hug að fá þenn-
an einstaka tónlistarmann til landsins.
„Ég hef verið aðdáandi Hungs í svolítið
langan tíma og hlusta ósjaldan á tónlist-
ina hans,“ sagði Hlynur en uppáhaldslag
hans með Hung er lagið sem gerði
Hung frægan She Bangs sem Ricky
Martin gerði upphaflega frægt. „Það
sem heillar mig við hann er að hann
þorir að vera hann sjálfur. Hann er
hreinn karakter. Maður horfir á hann
og þykir vænt um hann,“ sagði
Hlynur sem á von á að fylla
íþróttahúsið í Eyjum en það
tekur um 600 manns. Hann
er samt ekki viss um hvort
Hung eða landsliðið trekkir
meira að.
HLYNUR SIGMARSSON, FORMAÐUR HANDKNATTLEIKSDEILDAR ÍBV: SLÆR UPP VEISLU Í EYJUM
Leikurinn í beinni og Hung sér um fjörið
HANDBOLTI Handknattleiksmað-
urinn Einar Hólmgeirsson hefur
verið frystur af þjálfara sínum
hjá Grosswallstadt í síðustu leikj-
um og hefur aðeins fengið að spila
nokkrar mínútur í hverjum leik.
Einar hafði leikið mjög vel með
liði sínu í fyrstu leikjum þýsku
úrvalsdeildarinnar og skorað um
fimm mörk að meðaltali í leik. En
í síðustu fjórum leikjum hefur
Einar aðeins skorað samtals sex
mörk, sem má að stærstum hluta
rekja til skerts spilatíma.
„Þetta kom mér á óvart þar
sem mér fannst ég ekki hafa verið
að spila neitt illa áður en ég var
settur á bekkinn,“ segir Einar.
Núverandi samningur hans við
Grosswallstadt rennur út í lok
þessarar leiktíðar og segir Einar
að viðræður séu í gangi um áfram-
haldandi samning. „Þetta gæti
verið einhver taktík sem tengist
samningnum, ég veit það ekki,“
segir Einar og neitar því ekki að
hann hafi jafnvel hug á því að
breyta til.
Þýsku stórliðin Flensburg,
Hamborg og Magdeburg eru öll
sögð hafa mikinn áhuga á Einari
og eru líkleg til að bjóða honum
samning innan tíðar. „Ég gæti
hugsað mér að reyna fyrir mér hjá
sterkara liði en Grosswallstadt en
mér hefur liðið vel hjá liðinu og
get alveg hugsað mér að vera hér
áfram líka,“ bætir Einar við en
Grosswallstadt er um miðja deild
í Þýskalandi.
„Það er auðvitað hundfúlt að
vera frystur en ég verð að sætta
mig við þetta og vera þolinmóður.
Alexander (Peterson) hefur verið
að spila mikið í skyttunni í staðinn
fyrir mig og gert það frábærlega.
Svo að það er lítið hægt að gera.
Þetta er ákvörðun þjálfarans og
ég verð að kyngja henni.“
Það mun einmitt koma til með
að mæða mikið á þeim Einari og
Alexander í landsleikjunum þrem-
ur gegn Norðmönnum í dag og um
helgina, en Ólafur Stefánsson er
fjarri góðu gamni að þessu sinni.
Einar segist í fínu formi og að
íslenska liðið stefni á sigur í öllum
þremur leikjunum.
„Það er alltaf jafn gaman að
hitta strákana og það er mjög
góður andi í hópnum. Við ætlum
að halda áfram að byggja á því
sem við höfum verið að gera í
síðustu leikjum og vonum að það
skili okkur góðum úrslitum.“
vignir@frettabladid.is
Frystur af þjálfara sínum
hjá Grosswallstadt
Landsliðsmaðurinn Einar Hólmgeirsson hefur fyrirvaralaust verið settur út úr byrj-
unarliði Grosswallstad í þýsku úrvalsdeildinni og segir hann óvíst hvað taki við hjá
sér. Flensburg, Hamburg og Magdeburg hafa öll áhuga á því að fá Einar í sínar raðir.
EINAR HÓLMGEIRSSON Eftir fína frammistöðu framan af móti í Þýskalandi var Einar settur á
bekkinn af þjálfara sínum, algjörlega fyrirvaralaust. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI Jose Mourinho, knatt-
spyrnustjóri Chelsea, sagði eftir
sigurinn gegn Anderlecht í fyrra-
dag að það skipti hann engu máli
hvort að lið hans myndi hafna í
fyrsta eða öðru sæti G-riðilsins.
Chelsea mætir Liverpool á heima-
velli í síðustu umferð riðilsins og
verður Chelsea að sigra til að enda
í efsta sæti riðilsins. En af orðum
hans í fyrradag að dæma má gera
ráð fyrir því að Mourinho muni
hvíla einhverja af lykilmönnum
sínum.
„Ég held að það skipti engu máli
hvort við vinnum. Real Madrid og
Lyon gerðu jafntefli sem þýðir að
við getum lent á móti Real ef við
lendum í fyrsta sæti en Lyon ef
við lendum í öðru sæti. Í öðrum
riðli stendur valið á milli Bayern
München og Juventus. Þetta eru
allt góð lið og það er enginn munur
á efstu tveimur sætunum,“ sagði
Mourinho en bætti því við að hann
vildi að sjálfsögðu vinna Liverpool
í lokaleiknum.
„Já, við viljum vinna Liverpool
og Liverpool vill vinna okkur. Allir
vilja vinna. Það eina sem ég er að
segja er að ég sé ekki stóran mun
á fyrsta og öðru sætinu. Öll bestu
liðin, nema kannski Man. Utd, eru
komin áfram og andstæðingurinn
í 16-liða úrslitunum mun alltaf
verða gríðarlega öflugur.“ - vig
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, er rólegur yfir meistaradeildinni:
Enginn munur á fyrsta og öðru sætinu
JOSE MOURINHO Hreinskilni er eitthvað
sem hann skortir ekki.
KÖRFUBOLTI Magnús Jónsson,
sem situr í körfuknattleiksdeild
Hattar, segir það hafa verið sam-
eiginlega ákvörðun Kirk Baker
og körfuknattleiksdeildarinnar,
að hann myndi hætta sem þjálfari
liðsins.
„Það var ekkert eitt atriði sem
réð úrslitum. Aðstæður heima hjá
Baker í Bandaríkjunum voru ekki
góðar og það hentaði illa að hann
væri hér á landi. Svo var árangur-
inn ekki nógu góður og hann var
óánægður með það sjálfur. Við
vonumst til þess að breytingarn-
ar geti hresst upp á mannskapinn.
Nú er bara vonandi að það fari að
ganga betur innan vallar.
Magnús vonar líka að þakið
á íþróttahúsinu haldi vatni, en
fresta þurfti leik Hattar og Kefla-
víkur vegna leka í íþróttahúsinu.
„Þetta stendur allt til bóta og það
er nú þegar búið að gera bráða-
birgðaráðstafanir.“ - mh
KIRK BAKER Vonast er til þess að þjálfara-
skiptin bæti árangur Hattar, sem ekki hefur
verið góður til þessa.
ÍÞRÓTTAFÉLÖG Íþróttafélagið Þór
á Akureyri stendur afar illa fjár-
hagslega þessa stundina og er
líklegt að það verði gjaldþrota, ef
ekkert verður að gert.
Jón Heiðar Árnason, formað-
ur Þórs, vonast til þess að hægt
verði að leysa þá stöðu sem nú sé
komin upp. „Við munum reyna að
fá Akureyrarbæ til þess að kaupa
félagsheimilið Hamar af okkur.
Það er fyrst að fremst það sem er
íþyngjandi fyrir félagið. Það eru
mörg dæmi um að sveitarfélög
komi til móts við þarfir íþróttafé-
laga með þessum hætti.“ - mh
Vilja Akureyrarbæ til hjálpar:
Akureyrarbær
kaupi Hamar
Kirki Baker hættur:
Breytinga þörf
hjá Hetti
ÞÓR AK. Á leið í gjaldþrot?
FÓTBOLTI Enska úrvalsdeildar-
félagið Portsmouth rak í gær
franska stjórann Alain Perrin úr
starfi en hann hafði aðeins stýrt
liðinu í átta mánuði. Perrin bjarg-
aði Portsmouth frá falli á síðustu
leiktíð en undir hans stjórn hefur
liðið aðeins unnið tvo leiki í vetur
og það er of lítið.
Perrin er fyrsti stjórinn í
úrvalsdeildinni sem er rekinn í
vetur en langt er um liðið síðan
stjórar ensku deildarinnar hafa
lifað svo lengi án þess að nokkur
þeirra hafi fengið að fjúka.
Sir Bobby Robson hefur þegar
lýst yfir áhuga á að taka við liðinu
en þessi 72 ár gamli stjóri hefur
verið atvinnulaus síðan Newcastle
rak hann í ágúst 2004. Ekki er talið
líklegt að Portsmouth uppfylli
ósk hans þar sem þeir telji hann
hreinlega vera orðinn of gamlan
og horfa þeir til yngri stjóra.
Neil Warnock, stjóri Sheff.
Utd, er einnig sterklega orðaður
við stöðuna.
Alain Perrin rekinn:
Tekur Robson
við Portsmouth?
BOBBY ROBSON Vill taka við liði Ports-
mouth.
Víkingar framlengja
Höskuldur Eiríksson og Hörður Bjarna-
son hafa framlengt samninga sína til
ársins 2008. Báðir voru í lykilhlutverki
hjá Víkingi síðasta sumar og þá sérstak-
lega Höskuldur sem batt saman Víkings-
vörnina með einstaklega góðum árangri
enda fékk liðið aðeins á sig níu mörk.