Fréttablaðið - 02.12.2005, Page 2
2 2. desember 2005 FÖSTUDAGUR
Yfirgripsmesta
verk sem út
hefur komið
um íslenska
málnotkun.
�������������������������������������
��������������������������������������������
ORÐABÓK FRAMTÍÐARINNAR
Bókin er yfir 1600 bls. í stóru broti.
����������
������������
����������
������������������
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
SPURNING DAGSINS
Jón Hilmar, er þetta sannkall-
aður spennutryllir?
„Ja, það þykja sjálfsagt nýmæli þegar
orðabækur eru lesnar eins og glæpa-
sögur.“
Jón Hilmar Jónsson ritstýrir Stóru orðabókinni
um íslenskt málfar sem velti Vetrarborginni
eftir Arnald Indriðason úr efsta sæti sölulista
Pennans.
VINNUMARKAÐUR Fimm Brasilíu-
menn, sem komu hingað til lands
í sumar ásamt fleirum til að setja
upp gifsveggi, sögðu í vitnaleiðsl-
um fyrir Héraðsdómi Reykjaness
í byrjun vikunnar að þeim hefði
verið lofað 120 þúsund krónum á
mánuði fyrir fimm daga vinnu-
viku, 500 krónum á tímann í auka-
vinnu, og húsnæði. Einn átti líka
að fá hádegismat.
Mennirnir sögðu að
Magnús Guðmunds-
son, eigandi Nýgifs,
hefði ekki stað-
ið við orð sín.
Hann hefði
aldrei borgað
þeim á réttum tíma
og aldrei heil mán-
aðarlaun í einu. Hann
hefði borgað þeim 5-10 þúsund krón-
ur öðru hvoru og einum mannanna
þrjátíu þúsund og fimmtíu þúsund.
Einn þeirra kvaðst hafa fengið 810
evrur, rúmlega sextíu þúsund krón-
ur, kvöldið áður en mennirnir áttu
að halda heim. Magnús hefði látið
þá vinna 167 tíma samtals hvern án
þess að greiða fyrir það.
Hann „reddaði okkur stund-
um einhverjum smá pen-
ing,“ sagði einn
m a n n a n n a
fyrir Héraðs-
dómi.
M e n n -
irnir sögð-
ust hafa gert
athugasemdir
við Magnús út
af laununum og
hann hefði sagt
þeim að hafa ekki
áhyggj- ur. „Við stoppuðum
meðal annars vinnuna í einn dag,
því við áttum ekkert að borða,“
sagði einn mannanna og tveir
sögðu að Magnús hefði þá hótað að
senda lögregluna á þá og senda þá
úr landi allslausa. Einn sagði: „Við
vorum svöng, við vorum átta saman
á vinnustað með eitt klósett.“
Brasilíumennirnir sögðu að
þeim hefði verið lofað að búa fjór-
ir saman í íbúð en þeir hefðu búið
átta á sama stað. Þeir hefðu unnið
fyrir ÍAV, fyrirtæki á Akranesi og
líka heima hjá verkfræðingi, vini
Magnúsar.
Í vitnaleiðslunum kemur fram
að ekki hafi verið gerður skrifleg-
ur ráðningarsamningur við menn-
ina og þeir ekki fengið launaseðla.
Eitt sinn hafi þeir verið látnir
skrifa undir óútfyllt blað og sagt
að það væri til að þeir fengju
dvalarleyfi.
Magnús hefur sagt Brasilíu-
mennina hafa valdið sér tjóni með
óvönduðum vinnubrögðum. Menn-
irnir sögðu fyrir Héraðsdómi að
þeir hefðu strax bent honum á að
hráefnið væri ekki nógu gott, gifs-
ið myndi ekki festast á veggi og
loft nema notað væri límið Bianco
til að festa það. ghs@frettabladid.is
Við vorum svangir
Brasilíumennirnir sem unnu við að setja upp gifsveggi fyrir Nýgifs fengu aldrei
greidd mánaðarlaun. Ekki var gerður við þá skriflegur ráðningarsamningur.
Þeir lögðu eitt sinn niður vinnu vegna þess að þeir áttu ekki peninga fyrir mat.
HÚS BRASILÍUMANNANNA Brasilíumennirnir bjuggu á nokkrum stöðum meðan þeir voru í vinnu hjá Nýgifs. Þar á meðal hefur Fréttablaðið
heimildir fyrir því að þeir hafi búið í risinu í þessu húsi við Herjólfsgötu 34 í Hafnarfirði. Á neðstu hæðinni var kaffistofa fyrir starfsmenn á
byggingarsvæðinu við hliðina og á miðhæðinni voru skrifstofur fyrir verktakafyrirtækið sem þar var að byggja. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
KANNANIR Samfylkingin tapar
fylgi sjötta mánuðinn í röð sam-
kvæmt nýrri mælingu Þjóðar-
púls Gallup. Að öðru leyti eru
litlar breytingar á fylgi flokka í
könnuninni, sem unnin var dag-
ana 26. til 28. nóvember.
Samfylkingin mælist með
rúmlega 25 prósenta fylgi, en
var með um 28 prósenta fylgi í
síðustu könnun Þjóðarpúlsins.
Framsóknarflokkurinn mæl-
ist með tæplega ellefu prósenta
fylgi, en var með um níu pró-
sent síðast.
Sjálfstæðisflokkurinn mæl-
ist með tæp 43 prósent, eykur
fylgið um tvö prósentustig.
Frjálslyndi flokkurinn mælis
svo með 3,5 prósenta fylgi,
aðeins minna en í síðustu könn-
un Þjóðarpúlsins.
Þá eykst fylgi Vinstri grænna
lítillega milli mánaða, en það fer
úr tæpum sautján prósentum í
tæp átján prósent. ■
Þjóðarpúls Gallup:
Samfylkingin
tapar enn fylgi
VIÐURKENNING Thelma Ásdísardótt-
ir, sem nýlega hreif þjóðina með
sér fyrir það hugrekki að segja
frá þeirri reynslu sinni er hún var
misnotuð af föður sínum og öðrum
mönnum, mun í dag hlotnast sú við-
urkenning að vera Ljósberi ársins.
Það er skammt stórra högga á milli
því í fyrradag var hún valin kona
ársins af tímaritinu Nýju lífi við
hátíðlega athöfn í Iðnó.
Að vali Ljósberans stendur
samstarfshópur sem hefur það að
markmiði að styrkja heilbrigðan
lífsstíl barna og unglinga. - jse
Mannúðarmál:
Thelma er ljós-
beri ársins
VINNUMARKAÐUR Guðmundur
Ómar Guðmundsson, formaður
Félags byggingarmanna í Eyja-
firði, segir tvö fyrirtæki á Akur-
eyri, SS Byggi og Glugga, greiða
tékkneskum starfsmönnum fyrir-
tækjanna lægri laun en lögbundn-
ir lágmarkstaxtar kveði á um.
„Fyrirtækin fengu starfs-
mennina fyrir milligöngu sömu
erlendu starfsmannaleigunnar
og þau hafa bæði verið treg til að
veita upplýsingar um kjör Tékk-
anna og þá sérstaklega SS Bygg-
ir. Samkvæmt þeim gögnum sem
við höfum í höndunum eru launin
verulega lægri en lágmarkslaun
eiga að vera og munar þar tugum
prósenta í sumum tilfellum,“ segir
Guðmundur Ómar.
Sigurður Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri SS Byggis, telur
að fyrirtækið sé ekki að hlunn-
fara starfsmennina. „Við greiðum
starfsmannaleigunni umsamda
upphæð en ef í ljós kemur að við
erum að brjóta á réttindum Tékk-
anna verða launin leiðrétt,“ segir
Sigurður.
Eyþór Jósepsson, fram-
kvæmdastjóri Glugga, segir
fyrirtækið hafa skilað öllum
umbeðnum gögnum en hann er
óhress með framgöngu Guð-
mundar Ómars í málinu. „Hann
fullyrðir við hina og þessa að við
séum lögbrjótar og í stað þess
að leysa málin vill hann heldur
skapa illindi. Í því liggur hans
metnaður,“ segir Eyþór. - kk
Félag byggingarmanna í Eyjafirði segir brotið á erlendum starfsmönnum:
Segja launin vera langt
undir lágmarkstaxta
IÐNAÐARMENN Á AKUREYRI Vegna skorts á
iðnaðarmönnum á Akureyri fengu SS Byggir
og Gluggar starfsmenn fyrir milligöngu
erlendrar starfsmannaleigu en formaður
Félags byggingarmanna Eyjafirði segir fyrir-
tækin brjóta á réttindum þeirra.
BAUGSMÁL Bogi Nilsson ríkis-
saksóknari hefur með bréfi til
dómsmálaráðherra, dagsettu 24.
nóvember, sagt sig formlega frá
saksókn í þeim átta ákæruliðum
Baugsmálsins sem enn eru til
meðferðar í Héraðsdómi Reykja-
víkur.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra hafði áður þennan sama dag
óskað eftir því bréflega að Bogi
upplýsti og staðfesti formlega að
hann hefði vikið sæti í umrædd-
um hluta málsins.
Bogi segir í svarbréfi sínu til
dómsmálaráðherra sama dag að
vanhæfisástæður sínar eigi við
ákæruliðina átta ekkert síður en
hina 32 sem vísað var frá dómi.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafði
áður komist að þeirri niðurstöðu
að Bogi hefði aldrei sagt sig form-
lega frá meðferð ákæruliðanna
átta. Af þeim sökum hefði ekki
verið formlega rétt staðið að því
að setja Sigurð Tómas Magnússon
saksóknara í þeim hluta málsins.
Sigurður kærði þessa niður-
stöðu til Hæstaréttar og er búist
við niðurstöðu dómsins á næstu
dögum.
Bréfaskrifin fela í sér að Sig-
urður Tómas hlýtur nú formlega
að teljast bær til þess að fjalla um
ákæruliðina átta. Taki hann sæti
hafa verjendur lýst því að þeir
muni krefjast dómsúrskurðar
um hæfi dómsmálaráðherra til að
skipa Sigurð. - jh
Bréfaskipti dómsmálaráðherra og ríkissaksóknara taka af tvímæli um saksókn:
Tilkynnir vanhæfi bréflega
BOGI NILSSON RÍKISSAKSÓKNARI
Bogi telur sig hafa verið vanhæfan í öllu
Baugsmálinu en staðfestir það formlega í
nýju bréfi til dómsmálaráðherra.
DÓMSMÁL Hæstiréttur þyngdi í gær
um hálft ár refsingu manns sem
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í
apríl í tveggja ára fangelsi fyrir að
nauðga konu sem hann hafði áður átt
í sambandi við. Þá stóð ákvörðun um
700.000 króna miskabætur.
Nauðgunin átti sér stað á heim-
ili mannsins 8. nóvember í fyrra,
en þangað kom konan til að segja
honum að sambandi þeirra væri
endanlega lokið. Réðist maðurinn á
hana og lagði hníf að hálsi hennar
meðan á nauðguninni stóð.
Maðurinn bar að hann og konan
hefðu sammælst um að eiga samfar-
ir í síðasta sinn og það hafi gengið
eftir umrætt kvöld. Dóminum þótti
hann ekki trúverðugur, - óká
Nauðgunardómur þyngdur:
Notaði dúkahníf
við nauðgun
SKJÖLIN ÚR HÉRAÐSDÓMI
REYKJANESS Mennirnir mættu fyrir
Héraðsdóm Reykjaness á mánudaginn
og sögðu frá því að Magnús Guðmunds-
son, eigandi Nýgifs, hefði hótað að siga á
þá lögreglunni og senda þá allslausa úr
landi þegar þeir óskuðu eftir að fá borgað.
THELMA ÁSDÍSARDÓTTIR
BAGDAD, AP Uppreisnarmenn í borg-
inni Ramadi í vesturhluta Íraks
skutu eldflaugum að stjórnarbygg-
ingum og bandarískum varðstöðv-
um í gær. Engan sakaði þó í árás-
unum sem helst virðast hafa verið
framdar í áróðursskyni. Skömmu
eftir uppþotin héldu grímuklæddir
skæruliðarnir hver sína leið.
Samtök súnníklerka hafa hvatt
mannræningja í landinu til að láta
fimm gísla af Vesturlöndum lausa
hið fyrsta. Fjórir menn eru í haldi
samtakanna Herdeildir hinna rétt-
látu sverða og þýsk kona er jafn-
framt í haldi uppreisnarmanna.
Þýsk stjórnvöld hafa ekki ljáð máls
á að semja við mannræningjana. ■
Róstusamt í Ramadi:
Skæruliðar
aðsópsmiklir