Fréttablaðið - 02.12.2005, Blaðsíða 4
4 2. desember 2005 FÖSTUDAGUR
LÖGREGLA Reykvíkingur um fer-
tugt er sakaður um að áreita ung-
lingsstúlkur með SMS-sending-
um, klámfengnum skilaboðum
og myndum af sjálfum sér. Þá er
hann sagður notast við spjallforrit
á netinu við svipaða iðju.
Hörður Jóhannesson, yfirlög-
regluþjónn í Reykjavík, staðfestir
að mál mannsins sé til skoðunar
hjá embættinu.
Sjálfur ber maðurinn af sér
sakir og segir að myndir sem voru
í farsíma í hans eigu, sem komið
var til lögreglu, séu komnar frá
fyrri eiganda símans.
Maðurinn býr við nokkra
félagslega einangrun og leiddist
ungur út á afbrotabraut. Frá átján
ára aldri hefur hann fengið á
þriðja tug refsidóma, flesta fyrir
auðgunarbrot en einnig fyrir brot
á umferðarlögum. - óká
Sakaður um áreiti:
Sendir stúlkum
dónaskilaboð
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 1.12.2005
Gengisvísitala krónunnar
63,01 63,31
109,08 109,62
74,21 74,63
9,954 10,012
9,28 9,334
7,795 7,841
0,525 0,528
89,69 90,23
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
104,6155
BRUSSEL, WASHINGTON, AP Þingnefnd
á Evrópuþinginu gagnrýndi í gær
ríkisstjórnir Evrópusambands-
ríkja harkalega fyrir að bregð-
ast ekki með fullnægjandi hætti
við upplýsingum sem fram hefðu
komið um starfsemi bandarísku
leyniþjónustunnar CIA á evrópskri
grundu. Í ályktun sem samþykkt
var í borgararéttindanefnd þings-
ins segir að ásakanir um að CIA
reki leynifangelsi í Austur-Evrópu
og fljúgi með fanga fram og aftur
um evrópska lofthelgi og flugvelli
séu nú „ekki véfengdar“.
„Ég er alls ekki sannfærð um að
það sé verið að gera nóg af hálfu
stjórnvalda aðildarríkjanna til að
komast til botns í þessu og finna
hvað satt er,“ sagði Sarah Lud-
ford, meðlimur nefndarinnar úr
Frjálslynda demókrataflokknum
í Bretlandi. „Við höfum nú full-
nægjandi sönnunargögn um flug á
vegum CIA. Nú verðum við að fá
að vita hverjir voru um borð í þess-
um flugvélum og hvert þær fóru,“
sagði hún.
Á þriðjudag sendi breska stjórn-
in, sem gegnir formennskunni í
ESB þetta misserið, stjórnvöldum
í Washington bréf þar sem bent er
á þær áhyggjur sem ásakanir um
þessa meintu starfsemi CIA hafa
valdið í Evrópu og kurteislega
farið fram á skýringar. Fátt hefur
verið um svör frá ráðamönnum
vestanhafs fram til þessa. Sean
McCormack, talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins, vildi
á miðvikudag hvorki játa því né
neita hvort ásakanirnar ættu við
rök að styðjast. Hann vildi heldur
ekki svara því hvort svörin sem
Evrópumenn myndu fá við spurn-
ingum sínum yrðu til að skýra
málið til fullnustu. Condoleezza
Rice utanríkisráðherra heimsæk-
ir nokkrar höfuðborgir í Evrópu
í næstu viku og víst þykir að þá
komist hún ekki undan því að gefa
einhver svör.
Breska blaðið The Guardian
greindi frá því í gær að í ljós væri
komið að meintar CIA-flugvélar
hefðu átt viðkomu á evrópskum
flugvöllum mun oftar en talið
hefði verið fram til þessa. Blaðið
hefði heimildir fyrir því að þessi
flug hefðu verið fleiri en 300 síðan
árið 2002. Getum hefur verið leitt
að því að slíkar vélar hafi millilent
yfir 60 sinnum á Íslandi.
audunn@frettabladid.is
Þrýsta á um svör við
fangaflugsásökunum
Vaxandi óánægju gætir nú víða í Evrópu yfir því að hægt virðist ganga að kom-
ast að því hvað sé hæft í ásökunum um fangaflug og leynifangelsi CIA. Í nafni
ESB hefur breska stjórnin farið fram á skýringar frá bandarískum stjórnvöldum.
EVRÓPUÞINGIÐ Þingnefnd sakar ráðamenn ESB-ríkja um að standa sig illa í að afla skýr-
inga á ásökununum. NORDICPHOTOS/AFP
VINNUMARKAÐUR „Þetta er ekki
opinbert mál, það er alveg ljóst,
og þar með er það ekki lögregla
eða ákæruvald sem fara með það,“
segir Jón Sigurður Ólason, yfirlög-
regluþjónn á Akranesi.
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, hefur
lýst undrun sinni yfir því að lög-
reglurannsókn yfir fyrirtæki þar í
bæ virðist ekki ætla að hafa neina
eftirmála af hálfu lögreglunar þrátt
fyrir að ljóst þyki að brotið sé á lít-
háískum starfsmönnum þess. „Allt
sem varðar ógreidd laun, vanefnd-
ir eða túlkun á kjarasamningum er
einkamál og fer fyrir héraðsdóm. Í
slíkum tilfellum er langalgengast
að fólk leiti réttar síns hjá stéttar-
félögum, sem eru flest með lög-
menn sem fara svo í málið,“ segir
Jón Sigurður.
„Þar liggur hundurinn grafinn,“
segir Vilhjálmur, „og okkar við-
brögð verða þau að við munum fara
yfir þetta mál með okkar lögfræð-
ingi þannig að þessu máli er langt
frá því að vera lokið. Lögreglan fór
í þetta af miklu afli en hitt þykir
mér verra að hún skuli ekki hafa
umboð til að láta kné fylgja kviði,“
segir Vilhjálmur.
Þetta mál, sem spannst út af
grunsemdum um að Trésmíði Hjör-
leifs Jónssonar á Akranesi stæði
ólöglega að sínum starfsmanna-
málum, hefur undið upp á sig.
Það er nú komið á borð fjögurra
stofnana og eins verkalýðsfélags.
Heilbrigðiseftirlitið hafði gert
nokkrar athugasemdir við húsnæði
starfsmannanna og segir Laufey
Sigurðardóttir heilbrigðisfulltrúi
að vinnuveitandi hafi frest fram á
mánudag að finna þeim annað hús-
næði.
Mál Litháanna á Akranesi í hnút eftir að rannsókn lögreglu lauk:
Lögfræðingar taka næsta skref
STARFSMANNABÚSTAÐURINN Vinnuveitandinn Hjörleifur Jónsson þarf að vera búinn að
finna starfsmönnum sínum annað húsnæði fyrir mánudag.
SINGAPÚR Til stóð að hengja Nguy-
en Truon Van, 25 ára gamlan Ástr-
ala af víetnömsku bergi brotinn, í
fangelsi í Singapúr
í nótt. Hann var
tekinn með 400
grömm af heróíni
á alþjóðaflugvelli
borgarinnar árið
2002.
Þrátt fyrir mik-
inn þrýsting frá
Áströlum ljáðu
singapúrsk stjórn-
völd ekki máls á að náða Van, en
Phillip Ruddock dómsmálaráð-
herra segir dóminn „villimann-
legan“. Að sögn BBC smyglaði
hann efnunum til að losa bróður
sinn undan fíkniefnaskuld.
420 manns hafa verið hengdir í
Singapúr síðan 1991, flestir fyrir
fíkniefnasmygl. ■
Ástrali í Singapúr:
Tekinn af lífi
fyrir smygl
TÓNLIST Hljómsveitin Kimono er
lent í hremmingum í Berlín, en
þangað flutti sveitin starfsemi
sína í haust. Þar var þá fyrir önnur
hljómsveit með sama nafni og
gerir hún tilkall til þess.
„Það er nú ekki alveg ljóst
ennþá hversu alvarlegt þetta
er,“ segir Ásmundur Jónsson hjá
Smekkleysu, sem gefur út tónlist
Kimono. „Síðast voru þeir að kanna
réttarstöðu sína, því þeir hafa
notað nafnið í mörg ár og verið til
mun lengur en þessi hljómsveit.
Hins vegar er hin þýska Kimono
skrásett vörumerki, að minnsta
kosti í Þýskalandi.“
Ásmundur segir alþekkt að hlj-
ómsveitir lendi í slíkum málum.
„Þegar Tenderfoot kom til Amer-
íku voru þar fyrir fimm sveitir
samnefndar og hún varð að breyta
nafninu í Without Gravity.“
Kimono flutti sig til Þýska-
lands í september, en spilaði hér
síðast á Iceland Airwaves. - óká
Kimono lent í lagaflækjum:
Önnur hljóm-
sveit á nafnið
KIMONO (IS) Hljómsveitin neyðist þessa
dagana til að auðkenna sig með (IS) úti í
Þýskalandi.
Búðarþjófur í fangelsi Hæstirétt-
ur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur frá því í sumar þar sem kona
á fimmtugsaldri var dæmd í níutíu daga
fangelsi fyrir búðarþjófnað. Hún hefur
þrisvar áður verið dæmd fyrir þjófnað,
tvisvar með skilorðsbindingu. Konan stal í
mars í Hagkaupum í Kringlunni hjólaborði,
DVD spilara, mínútugrilli og leikföngum,
alls að verðmæti 43.978 krónur.
HÆSTIRÉTTURNGUYEN TRUON
VAN