Fréttablaðið - 02.12.2005, Blaðsíða 82
2. desember 2005 FÖSTUDAGUR66
FÓTBOLTI David Beckham er lang-
tekjuhæsti íþróttamaður Bret-
lands enn eitt árið, með tekjur upp
á 1.900 milljónir íslenskra króna
fyrir árið 2004. Þetta kom fram
í ársuppgjöri Footwork Product-
ions, fyrirtækisins sem Beckham
á og sér um öll hans fjármál. Upp-
hæðin er tæplega helmingi hærri
en hún var árið 2003 og sýnir
glögglega hversu stórt vörumerki
Beckham í rauninni er og hvernig
það stækkar með hverju ári.
Athygli vekur að „ekki nema“
450 milljónir má rekja til launa-
greiðslna frá liði hans Real
Madrid, sem þýðir að langstærstur
hluti upphæðarinnar er tilkomin
vegna auglýsingasamninga við
risafyrirtæki á borð við Adidas,
Vodafone, Castrol, Gillette, Pepsi,
Police-sólgleraugu og Diesel. Í ár
hefur Beckham misst samninga
sína við nokkur af fyrirtækjunum,
meðal annars Vodafone og Pepsi,
en hefur um leið skrifað undir
nýjan og mun betri samning við
Adidas. Þó telja fjármálasérfræð-
ingar að Beckham muni hafa tölu-
vert minni tekjur á árinu sem nú
er senn á enda.
Samkvæmt blaðinu Sunday
Times í Bretlandi voru Beckham
og kona hans Victoria í 621. sæti
yfir ríkustu hjón landsins árið
2004 með eignir upp á samtals
7,2 milljarða. Á ferlinum er Beck-
ham talinn hafa samtals þénað
um fimm milljarða króna. Og þau
hjón lifa hátt með allar sínar tekj-
ur því fyrir skemmstu var greint
frá því að parið borgaði 47 millj-
ónir fyrir þriggja mánaða hótel-
gistingu í Madríd. Það var tíminn
sem tók þau að finna hentuga íbúð
í borginni til að setjast að í. - vig
David Beckham græðir á tá og fingri:
Þénaði tæpa tvo
milljarða árið 2004
DAVID BECKHAM Það borgar sig greinilega að vera þekktasti knattspyrnumaður heims.
Iceland Express-deild karla:
ÍR-KR 77-84
Stig ÍR: Theo Dixon 22, Fannar Helgason 17,
Sveinbjörn Clausen 15, Ómar Örn Sævarsson 8,
Eiríkur Önundarson 8, Halldór Kristmannsson 5,
Ólafur J. Sigurðsson 2.
Stig KR: Omari Westley 21, Pálmi Sigurgeirsson
18, Níels Dungal 11, Fannar Ólafsson 11, Brynjar
Björnsson 10, Skarphéðinn Ingason 4, Steinar
Kaldal 1.
HAMAR/SELFOSS-HAUKAR 87-92
SNÆFELL-SKALLAGRÍMUR 75-74
GRINDAVÍK-FJÖLNIR 98-83
KEFLAVÍK-ÞÓR AK. 83-61
HÖTTUR-NJARÐVÍK 66-102
STAÐAN:
UMFN 8 8 0 672:483 16
KEFLAVÍK 7 6 1 636:589 12
GRINDAVÍK 8 6 2 797:683 12
KR 8 5 3 645:584 10
FJÖLNIR 8 5 3 740:712 10
SKALLAGRÍMUR 8 4 4 624:587 8
SNÆFELL 8 4 4 740:733 8
ÍR 8 3 5 651:705 6
ÞÓR A. 8 3 5 602:677 6
HAMAR/SELFOSS 8 2 6 666:784 4
HAUKAR 8 1 7 634:699 2
HÖTTUR 7 0 7 519:690 0
Iceland Express-deild kvk:
HAUKAR-KR 110-66
STAÐAN:
GRINDAVÍK 7 6 1 598:432 12
KEFLAVÍK 8 6 2 744:482 12
HAUKAR 6 5 1 498:324 10
ÍS 7 3 4 462:477 6
KR 8 1 7 389:744 2
BREIÐABLIK 8 1 7 467:699 2
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
KÖRFUBOLTI „Það er algjör óþarfi
fyrir okkur að vera að bíða og sjá
hvernig mótherjinn ætlar sér að
spila leikinn, en mér fannst við
vera að gera það full mikið í fyrri
hálfleik. En það er góð barátta hjá
okkur og við uppskárum gríðar-
lega mikilvægan sigur þegar upp
var staðið,“ sagði Herbert Arnars-
son, þjálfari KR, í leikslok.
ÍR-ingar byrjuðu vel á heima-
velli sínum í Seljaskóla í gærkvöld
og náðu fljótlega 5-0 forystu strax
í upphafi leiksins.
Eftir það var jafnræði með
liðunum það sem eftir lifði fyrri
hálfleiksins. Theo Dixon, leik-
maður ÍR, lét mikið að sér kveða
í fyrri hálfleik en skoraði í honum
15 stig og var að auki fastur fyrir
í varnarleiknum.
Pálmi Sigurgeirsson var hins
vegar án nokkurs vafa besti leik-
maður KR í fyrri hálfleik og skor-
aði í honum 18 stig, þar af þrjár
mikilvægar þriggja stiga körfur
með stuttu millibili.
Staðan í hálfleik var 44-39, ÍR
í vil, en í seinni hálfleik breyttist
leikurinn nokkuð. Dixon og Pálmi
létu lítið fyrir sér fara á meðan
barátta beggja liða var í algleym-
ingi, svolítið á kostnað gæðanna.
Bæði lið börðust vel en leik-
menn KR virkuðu í betra formi og
tókst að ná frumkvæðinu í leikn-
um og komast yfir í fyrsta skipti í
leiknum, 58-57.
ÍR-ingar reyndu hvað þeir gátu
að komast inn í leikinn aftur en
tilviljunarkenndur sóknarleik-
ur liðsins dugði skammt gegn
grimmum varnarleik KR þar sem
Fannar Ólafsson lét manna mest
finna fyrir sér.
Hinn ungi og bráðefnilegi
Brynjar Björnsson, sem er sautján
ára gamall, skoraði tvær þriggja
stiga körfur með stuttu millibili
þegar skammt var eftir og tókst
ÍR-ingum aldrei ógna liði KR það
sem eftir lifði leiks.
Sigurviljinn var meiri hjá
vesturbæjarliðinu og svo virðist
sem liðið sé búið að ná nauðsyn-
legu jafnvægi í leik sinn, eftir
ekki nóga góð byrjun.
magnush@frettabladid.is
Baráttan skóp góðan KR-sigur
ÍR tókst ekki að leggja KR að velli á heimavelli sínum í gær, þrátt fyrir að byrja
leikinn ágætlega. Lokatölur urðu 84-77, KR í hag.
OMARI WESTLEY Omari Westley lék ágætlega með KR í gær og greinilegt að hann hefur
fært liðinu nauðsynlegt jafnvægi, bæði í vörn og sókn.
KÖRFUBOLTI Haukar unnu sinn
fyrsta sigur í Iceland-Express
deild karla í gærkvöld þegar liðið
lagði Hamar-Selfoss að velli, 92-
87. Þetta var fyrsti sigur Hauka í
deildinni en Höttur er nú eina liðið
í deildinni sem ekki enn hefur
unnið leik, en Höttur tapaði 102-66
fyrir Njarðvík í gær. - mh
Iceland Express-deildin:
Fyrsti sigur
Hauka