Fréttablaðið - 02.12.2005, Blaðsíða 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
edda.is
Thelma Ásdísardóttir
Til hamingju Thelma
Kona ársins 2005
- Nýtt líf
Ljósberinn 2005
Maður ársins
- Karl Sigurbjörnsson, biskup
„Myndin af Thelmu eins og hún er í
dag: Hamingjusöm móðir, hugrökk
og stolt kona: Kona ársins.“
Soffía Auður Birgisdóttir, Mbl.
„Bók sem ætti að rata til allra og vera
skyldulesning í hvers manns húsi.“
Vigdís Grímsdóttir, DV
„Skilur lesandann eftir djúpt snortinn
og fullan aðdáunar af Thelmu og
baráttu hennar.“
Birta
„Thelma Ásdísardóttir ætti að vera „maður ársins“
vegna hugrekkis síns að segja sögu sína ... ótrúlega
áhrifarík frásögn, sem lætur engan ósnortinn. Og hefur
enda haft áhrif, allt inn á borð ríkisstjórnar Íslands.“
Karl Sigurbjörnsson, biskup
„Thelma er mjög hugrökk manneskja og
andlega hvetjandi. Mér líður eins og ég sé að skrifa
undir samning við Nóbelsverðlaunahafa!“
Eva Åslund, útgáfustjóri Bra böcker
Útgáfuréttur seldur
til Svíþjóðar
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
SÚSÖNNU SVAVARSDÓTTUR
BAKÞANKAR
Það fer að verða dálítið erfitt að halda í þá barnatrú að fólk
fari út í stjórnmál til þess að láta
gott af sér leiða eða til þess að
laga til í óréttlátum heimi.
ENN einu sinni megum við horfa
upp á öryrkja standa í stappi við
ríkisvaldið. Nú vegna þess að
ekki hefur verið staðið við samn-
inga sem voru gerðir síðast þegar
þeir stóðu í stappi við þetta sama
vald. Hvers vegna þurfa öryrkj-
ar alltaf að fara dómstólaleiðina
til þess fá að halda sjálfsvirð-
ingu sinni þrátt fyrir heilsuleysi?
Hver er tilgangur ríkisvaldsins?
ÞAÐ er pirrandi að búa í sam-
félagi þar sem sífellt er verið að
brjóta á réttindum og gera aðför
að mannlegri reisn. Það er orðið
þreytandi að hlusta á sjálfsaðdá-
un ráðamanna í ræðum um auk-
inn hagvöxt og gott gengi krón-
unnar þegar maður sér að það
er á kostnað hinna sjúku. Fólki
er fleygt út af sjúkrahúsum,
dauðveiku, daginn eftir aðgerðir
vegna þess að það er bara „svo“
hresst. Læknar á krabbameins-
deild eru á vakt á þremur póstum
í einu, heimaþjónusta aldraðra og
sjúkra er skert vegna manneklu
þar sem ríkið tímir ekki að borga,
farið er að stafla öldruðum upp á
öldrunarheimilum, hjúkrunar-
fræðingar á nýrnadeild ganga
út um áramótin. Samningar
við ýmsa sérfræðilækna eru í
uppnámi og útlit fyrir að hópar
þeirra gangi fljótlega út úr heil-
brigðiskerfinu.
HVERS vegna er ekki hægt að
hafa þessa hluti í lagi? Hvers
vegna er svona mikilvægt að
vera ein af ríkustu þjóðum heims
ef ekki er hægt að nota pening-
ana til þess að hlúa að þeim sem
hafa eytt lífinu í að leggja sitt
af mörkum til samfélagsins? Og
þeim sem hafa veikst eða slasast
við þá iðju? Hvað er eiginlega að
þessum heilbrigðisráðherra? Við
fáum nánast daglega nýjar frétt-
ir af klúðrinu sem hans ráðuneyti
stendur fyrir. Búinn að koma
upp dýrasta spítalabákni Evrópu
þar sem verið er að veita þjón-
ustu sem er okkur til háborinnar
skammar.
SVEI mér ef það fer ekki að
verða tímabært að opna rolu-
deild á einhverjum spítalanum
þar sem þeir daufustu úr röðum
stjórnmálamanna geta fengið bót
meina sinna - svo þeir endi ekki
bara sem öryrkjar. Það væri nú
ljótan. ■
Roludeild