Fréttablaðið - 02.12.2005, Side 88

Fréttablaðið - 02.12.2005, Side 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 edda.is Thelma Ásdísardóttir Til hamingju Thelma Kona ársins 2005 - Nýtt líf Ljósberinn 2005 Maður ársins - Karl Sigurbjörnsson, biskup „Myndin af Thelmu eins og hún er í dag: Hamingjusöm móðir, hugrökk og stolt kona: Kona ársins.“ Soffía Auður Birgisdóttir, Mbl. „Bók sem ætti að rata til allra og vera skyldulesning í hvers manns húsi.“ Vigdís Grímsdóttir, DV „Skilur lesandann eftir djúpt snortinn og fullan aðdáunar af Thelmu og baráttu hennar.“ Birta „Thelma Ásdísardóttir ætti að vera „maður ársins“ vegna hugrekkis síns að segja sögu sína ... ótrúlega áhrifarík frásögn, sem lætur engan ósnortinn. Og hefur enda haft áhrif, allt inn á borð ríkisstjórnar Íslands.“ Karl Sigurbjörnsson, biskup „Thelma er mjög hugrökk manneskja og andlega hvetjandi. Mér líður eins og ég sé að skrifa undir samning við Nóbelsverðlaunahafa!“ Eva Åslund, útgáfustjóri Bra böcker Útgáfuréttur seldur til Svíþjóðar AUGL†SINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA SÚSÖNNU SVAVARSDÓTTUR BAKÞANKAR Það fer að verða dálítið erfitt að halda í þá barnatrú að fólk fari út í stjórnmál til þess að láta gott af sér leiða eða til þess að laga til í óréttlátum heimi. ENN einu sinni megum við horfa upp á öryrkja standa í stappi við ríkisvaldið. Nú vegna þess að ekki hefur verið staðið við samn- inga sem voru gerðir síðast þegar þeir stóðu í stappi við þetta sama vald. Hvers vegna þurfa öryrkj- ar alltaf að fara dómstólaleiðina til þess fá að halda sjálfsvirð- ingu sinni þrátt fyrir heilsuleysi? Hver er tilgangur ríkisvaldsins? ÞAÐ er pirrandi að búa í sam- félagi þar sem sífellt er verið að brjóta á réttindum og gera aðför að mannlegri reisn. Það er orðið þreytandi að hlusta á sjálfsaðdá- un ráðamanna í ræðum um auk- inn hagvöxt og gott gengi krón- unnar þegar maður sér að það er á kostnað hinna sjúku. Fólki er fleygt út af sjúkrahúsum, dauðveiku, daginn eftir aðgerðir vegna þess að það er bara „svo“ hresst. Læknar á krabbameins- deild eru á vakt á þremur póstum í einu, heimaþjónusta aldraðra og sjúkra er skert vegna manneklu þar sem ríkið tímir ekki að borga, farið er að stafla öldruðum upp á öldrunarheimilum, hjúkrunar- fræðingar á nýrnadeild ganga út um áramótin. Samningar við ýmsa sérfræðilækna eru í uppnámi og útlit fyrir að hópar þeirra gangi fljótlega út úr heil- brigðiskerfinu. HVERS vegna er ekki hægt að hafa þessa hluti í lagi? Hvers vegna er svona mikilvægt að vera ein af ríkustu þjóðum heims ef ekki er hægt að nota pening- ana til þess að hlúa að þeim sem hafa eytt lífinu í að leggja sitt af mörkum til samfélagsins? Og þeim sem hafa veikst eða slasast við þá iðju? Hvað er eiginlega að þessum heilbrigðisráðherra? Við fáum nánast daglega nýjar frétt- ir af klúðrinu sem hans ráðuneyti stendur fyrir. Búinn að koma upp dýrasta spítalabákni Evrópu þar sem verið er að veita þjón- ustu sem er okkur til háborinnar skammar. SVEI mér ef það fer ekki að verða tímabært að opna rolu- deild á einhverjum spítalanum þar sem þeir daufustu úr röðum stjórnmálamanna geta fengið bót meina sinna - svo þeir endi ekki bara sem öryrkjar. Það væri nú ljótan. ■ Roludeild

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.