Fréttablaðið - 02.12.2005, Blaðsíða 76

Fréttablaðið - 02.12.2005, Blaðsíða 76
60 2. desember 2005 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 30 37 5 1 2/ 20 05 Stórsýning Yamaha Á laugardag og sunnudag er þér boðið að koma og sjá helstu tryllitæki fjallanna. Frá kl. 12:00 til 16:00 báða dagana verður fjöldinn allur af Yamaha vélsleðum til sýnis. Ferðasleðar, vinnusleðar og fjallasleðar. Komdu á Nýbýlaveg 2 og sjáðu alvöru vetrarfarartæki. Nú mega skaflarnir fara að vara sig! www.yamaha.is FÓTBOLTI Hollenski framherjinn Jimmy Floyd Hasselbaink segir að hann og Eiður Smári Guðjohn- sen, fyrirliði íslenska landsliðsins og fyrrum samherji sinn hjá Chel- sea, hafi báðir stjórn á spilafíkn sinni í dag eftir að hafa eytt háum upphæðum í spilavítunum fyrir nokkrum árum. „Við gætum ekki verið frá- brugðnari hvor öðrum í útliti, ann- ars vegar svertingi frá Súrinam og hins vegar ljóshærður Íslend- ingur. En við erum ekki svo ólík- ir. Við höfum gaman af því að skemmta okkur og fórum að stu- nda fjárhættuspil vegna vanda- mála með kærustur okkar. Við vildum ekki fara heim svo að við fórum í spilavítin í staðinn,“ segir Hasselbaink í löngu viðtali við hið virta breska blað The Guardian sem tekið var í tilefni af útgáfu ævisögu hans. „Ég fer ennþá í spilavítin í dag en spila þá aðeins fyrir nokkur hundruð pund, hámark þúsund pund. Oftast fer ég aðeins í spila- vítin til að borða góðan mat með gömlum vinum. Ég held að Eiður Smári, eins og ég, hafi stjórn á fíkninni. Hann á von á sínu þriðja barni með konu sinni og það eru spennandi tímar fram undan hjá Chelsea,“ segir Hasselbaink meðal annars. Fyrir nokkrum árum kom- ust Hasselbaink, Eiður Smári og nokkrir aðrir félagar þeirra í Chelsea á forsíður gulu press- unnar í Bretlandi vegna meintrar spilafíknar sinnar og var full- yrt að Hasselbaink hefði tapað rúmum hundrað milljónum alls á meðan Eiður átti að hafa tapað tæpum fjörutíu milljónum. „Það var ekki svo mikið,“ segir Hassel- baink. „En ég tapaði háum upp- hæðum. Málið er hins vegar að mér var alveg sama. Eitt kvöldið vann ég átta milljónir í einni rúll- ettu og það var æðislegt. Síðan eyddi ég meira og beið eftir því að vinna meira. Þannig verður þetta að vítahring. Eitt kvöldið tapaði ég fjórum milljónum og það var þá sem ég áttaði mig á því að ég þyrfti að koma skikk á mín persónulegu mál til að vinna úr spilafíkninni. Auk þess hefur bankareikningurinn haft eitt- hvað að segja því hann rýrnaði stöðugt,“ segir Hasselbaink. vignir@frettabladid.is Við vildum ekki fara heim svo við fórum í spilavítin Jimmy Floyd Hasselbaink talar opinskátt um spilafíkn sína og Eiðs Smára í nýrri ævisögu. Hasselbaink segir að þeir hafi báðir stjórn á spilafíkninni í dag. FÉLAGAR Jimmy Floyd Hasselbaink og Eiður Smári Guðjohnsen náðu mjög vel saman, jafnt innan vallar sem utan, á þeim tíma sem þeir voru samherjar hjá Chelsea. Hermann Hreiðarsson segir það vera með ólíkindum hvernig hann og félagar hans hjá Charlton fóru að því að tapa leiknum gegn Blackburn í sextán liða úrslitum enska deildarbikarsins í fyrradag. Charlton komst í 2-0 fljótlega í síðari hálfleik en á síðustu tuttugu mínútunum náði Blackburn að skora þrívegis og tryggja sig áfram í áttaliða úrslitin. „Ég spurði mig oft að því eftir að ég kom heim hvernig í ósköpunum við fórum að því að tapa þessum leik,“ sagði Hermann hundsvekktur við Frétta- blaðið í gær. Alan Curbishley, stjóri Charlton, var harðorður í garð leikmanna sinna eftir leikinn. „Ég hef beðið þá um að halda hreinu en með svona varnarleik mun það ekki gerast. Einstaklingarnir inni á vellinum halda áfram að bregðast mér. Ég mun ekki líða þetta mikið lengur,“ sagði Curbishley við fjölmiðla eftir leikinn. Hermann segir að Curbishley hafi vissulega verið öskuvondur inni í klefa eftir leikinn. „En ég tók lítið sem ekkert eftir því þar sem það sauð svo í hausnum á mér sjálfum,“ segir Hermann en Charlton hefur nú tapað fimm leikj- um í röð. „Fyrsta markið hjá þeim var pot og annað markið kom eftir að einn leikmanna okkar hafði misst boltann nálægt miðlínu. Þar kom David Thompson aðvífandi, tók hann í fyrsta af fjörutíu metra færi og boltinn endaði í samskeytunum. Þá hugsaði ég: „Jæja, svona ætlar þetta að vera í dag - það má ekki einu sinni gera mistök fjörutíu metra frá markinu. Í þri- ðja markinu náðu þeir að stela boltanum af einum varnar- manna okkar og skoruðu upp úr því. Þeir skoruðu öll sín mörk eftir mistök okkar en þess fyrir utan þurfti Dean Kiely mark- vörður varla að verja skot,“ segir Hermann. „Annars spiluðum við okkar besta leik í langan tíma og lékum eins og við gerðum í fyrstu leikjum tímabilsins. Við áttum ekki skilið að tapa,“ bætti Hermann við. HERMANN HREIÐARSSON OG FÉLAGAR HJÁ CHARLTON: ÚR LEIK Í ENSKA DEILDABIKARNUM Það rauk úr hausnum á mér eftir leikinn Garðar í biðstöðu Ekkert hefur gerst í málum Garðars Gunnlaugssonar síðustu daga þar sem milligöngumaðurinn í samskiptum Vals og Dunfermline, Kenny Moyes, fékk slæma sýkingu á dögunum og liggur því á spítala þessa dagana. Hann er bróðir David Moyes, stjóra Everton, og sá á sínum tíma um mál bræðra Garðars, Arnars og Bjarka. HANDBOLTI KA mætir rúmenska liðinu Steaua Búkarest á morgun í Evrópukeppninni í handbolta, en liðsmenn KA hafa að undanförnu safnað peningum fyrir þátttöku- kostnaði í þessari keppni. Jónatan Þór Magnússon, fyrir- liði KA, segir góðan anda ríkja innan hópsins en býst við erfið- um leikjum gegn Rúmenunum. „Þetta leggst vel í okkur leik- menn. Við höfum þurft að hafa mikið fyrir því að vera með í þess- ari keppni. Það er ljóst að Steaua Búkarest er atvinnumannalið sem er sterkt og við þurfum að eiga góðan leik til þess að leggja það að velli. Við erum að reyna að fá fyrirtæki með okkur í að skapa góða umgjörð í kringum leikinn á morgun og það hefur gengið vel. Svo er bara að vona að fólk fjölmenni og styðji vel við bakið á okkur.“ Leikurinn hefst klukkan 15.30 í KA-heimilinu á Akureyri. - mh Evrópuævintýri KA-manna heldur áfram: KA mætir Steaua frá Búkarest á morgun JÓNATAN ÞÓR MAGNÚSSON Það mun mikið mæða á Jónatani á morgun en hann er fyrirliði liðs KA. FÓTBOLTI Ashley Cole, varnar- maður Arsenal, kveðst ekki hafa hugmynd um hvenær hann verði orðinn góður af þeim meiðslum sem hafa haldið honum frá keppni frá því í október. Cole braut bein í ristinni og var skipað að hvíla sig í mánuð, en batinn hefur verið mun hægari en búist var við. „Við metum stöðuna á tveggja vikna fresti og eins og er vantar mig ennþá töluvert upp á. Ég veit ekki hvað veldur en það tekur bein- ið einfaldlega sinn tíma að gróa,“ segir Cole, sem getur ekki einu sinni skokkað vegna sársauka. „Ég er í lyftingasalnum daglega og lyfti og hjóla til að halda mér í formi.“ - vig Ashley Cole enn meiddur: Ekki klár á næstunni ASHLEY COLE Er sárt saknað í herbúðum Arsenal. FÓTBOLTI Cesc Fabregas, spænski ungmennalandsliðsmaðurinn hjá Arsenal, vonast til þess að Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsen- al, fari ekki til Real Madrid eins og orðrómur hefur verið um að undanförnu. „Það er mikill munur á knatt- spyrnuumhverfinu á Spáni og á Englandi. Aðalmunurinn er þol- inmæðin sem leikmönnum og þjálfurum er sýnd á Englandi, því á Spáni er strax byrjað að gagn- rýna þig harðlega ef ekki gengur vel í tveimur eða þremur leikjum. Vonandi veltir Wenger þessum málum fyrir sér því hann er frá- bær knattspyrnustjóri sem hefur náð stórkostlegum árangri með Arsenal og verður að vera þar áfram við störf.“ - mh Fabregas um stöðu Wengers: Arsenal betri kostur CESC FABREGAS Fabregas vill ekki sjá Arsene Wenger fara til Real Madrid. > Mál skýrast í dag Stjórn knattspyrnudeildar Þróttar mun funda í dag með fyrirliða meistaraflokks karla, Páli Einarssyni, en deilur á mili Atla Eðvaldssonar, þjálfara liðsins, og Páls hafa leitt til þess að staða annars hvors þeirra er í hættu. „Ég mun funda með s t j ó r n knattspyrnudeildar um þessi mál í d a g . V o n - a n d i l e y s i s t þetta mál f a r s æ l l e ga . Það er von mín að þetta mál leysist sem allra fyrst. Ég vil að sjálfsögðu vera áfram hjá Þrótti,“ sagði Páll í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.