Fréttablaðið - 02.12.2005, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 02.12.2005, Blaðsíða 20
 2. desember 2005 FÖSTUDAGUR20 nær og fjær „ORÐRÉTT“ „Ég var nýbúinn að kynnast þess- ari íþrótt þegar mér var kippt inn í sænska landsliðið ásamt Jóni Páli Hreinssyni þar sem við vorum í Hyrisalmi í Lapplandi á meðan heimsmeistaramótið í mýrarbolta fór þar fram,“ segir Jóhann Bæring Gunnarsson, for- maður Mýrarboltafélags Íslands. „Við Jón Páll komumst fljótt að því að þetta er hið skemmtileg- asta sport og innleiddum þetta á Ísafirði ásamt Rúnari Karlssyni fyrir tveimur árum. Það tókst með slíkum ágætum að í fyrra, þegar Evrópumótið var haldið á Ísafirði í annað sinn, tóku 120 leikmenn þátt og þar af voru einnig nokkur kvennalið,“ segir hann stoltur. Reglurnar er þær sömu og í knattspyrnu en aðstæðurnar eru þó nokkuð frábrugðnar því sem knattspyrnumenn eiga að venj- ast því leikmenn vaða drullu upp í ökkla og jafnvel upp í hné. Sex menn eru í hverju liði og hvor hálf- leikur er tólf mínútur en þó viður- kenndi formaðurinn að stundum væri leiktíminn styttur þegar líða tæki á keppnina og þrekið er af skornum skammti hjá drullugum og þjökuðum leikmönnum. „Hins vegar er þetta svo prúðmannlega leikin íþrótt að enginn hefur slas- ast frá því hún var endurvakinn í Finnlandi árið 1998,“ útskýrir Jóhann Bæring. Hann segir Finna hafa komið þeim orðrómi af stað að skíða- göngugarpar hafi fundið upp þessa íþrótt þegar þeir komu saman að hausti og aðstæður buðu ekki upp á skíðagöngu. „Hins vegar höfum við heimildir fyrir því að þetta hafi verið leikið hér á Vestfjörð- um eins og flestir vita sem lesið hafa Gísla sögu Súrssonar en þar segir að menn hafi leikið knattleik úti í mýri. Íþróttin er því loksins komin aftur í heimamýri,“ segir Jóhann Bæring. jse@frettabladid.is Knöttur úti í mýri JÓHANN BÆRING GUNNARSSON, FORMAÐUR MÝRARBOLTAFÉLAGS ÍSLANDS BARIST Í MÝRINNI Þó undarlegt megi virðast er mýrarboltinn svo prúðmannlega leikinn að engin slys hafa orðið á fólki frá því íþróttin var endurvakin 1998. Nokkur slys urðu þó þegar vestfirskir víkingar stunduðu þessa íþrótt til forna. Tóm leiðindi „Ég veit ekki hvað hann var að æsa sig svona mikið yfir því að ég hafi lagt í þetta stæði. Hann er ekki einu sinni í hjólastól.“ Björn Elías Halldórsson sjómaður sem lagði í stæði fyrir fatlaða fyrir utan verslun í Reykjavík og hlaut að launum skammir frá Þóri Karli Jónassyni, fyrrverandi formanni Sjálfsbjargar. DV. Nákvæmur „Fáninn mun vera aðeins til hliðar við skrifara þingsins og um fimm gráðu halli mun vera á stönginni.“ Guðmundur Hallvarðsson þingmað- ur, enn og aftur um íslenska fánann í þingsalnum. Morgunblaðið. Þórunn Björnsdóttir, stjórnandi Barnakórs Kársnesskóla, hlaut í gær Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna á Íslandi sem voru veitt í fyrsta sinn. Verðlaununum fylgdi ein millj- ón króna sem nýtt verður til hljóðritunar efnis sem kórinn hefur frumflutt. Með verðlaun- unum vill Velferðarsjóður barna þakka Þórunni fyrir hennar framlag til barnamenningar á Íslandi en hún hefur stýrt kórn- um í þrjátíu ár. Velferðarsjóður barna hefur úthlutað alls um 300 milljónum króna til markvíslegra verkefna á þeim rúmu fimm árum sem hann hefur verið starfræktur. Í stjórn sjóðsins sitja Bjarni Ármannsson bankastjóri, Kári Stefánsson forstjóri og Sólveig Guðmundsdóttir lögmaður. Ingibjörg Pálmadóttir, fyrr- verandi heilbrigðisráðherra, er framkvæmdastjóri sjóðsins. ■ Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna veitt í fyrsta sinn: Þórunn kórstjóri verðlaunuð KÁRI STEFÁNSSON, ÞÓRUNN BJÖRNSDÓTTIR OG INGIBJÖRG PÁLMADÓTTIR Verðlaunaféð, ein milljón króna, rennur til hljóðritunar efnis sem Barnakór Kársnesskóla hefur frumflutt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ALLT Í GÓÐU Pandahúnninn Su Lin, sem er rúmlega þriggja mánaða gamall, þurfti að gangast undir reglubundna læknisskoðun á heimili sínu í dýragarðinum í San Diego í Bandaríkjunum í gær. Ekkert óeðlilegt kom í ljós við skoðunina; Su Lin er sumsé bæði fílhraust og við hestaheilsu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Fyrir skemmstu var Mýrarboltafélag Íslands stofnað á Ísafirði. Umheimurinn hefur hingað til staðið í þeirri trú að finnskir gönguskíðamenn eigi heiðurinn að þessari sívaxandi íþrótt. Nýkjörinn formaður Mýrarboltafélagsins veit sem er að íþróttin á sér alvestfirskar rætur. 1 dálkur 9.9.2005 15:20 Page 7 „Það er nú ekki mikið um bústörf einmitt núna en oddvitinn hefur margt á sinni könnu nú sem endranær,“ segir Ólafur Eggertsson, kornbóndi á Þorvaldseyri og oddviti sveitarstjórnar á Rang- árþingi eystra. „En þó verður maður að hugsa um og fóðra skepnurnar. Það er náttúrlega keppikefli bænda núna að framleiða meira og meira. En sumarið var nokkuð gott, engin teljandi afföll í uppskerunni og nú er svo komið að kornbændur ætla að blása til enn frekari sókn- ar. Ég var einmitt að koma frá Finnlandi þar sem bændur og aðrir sem vinna að kornrækt voru að kynna sér nýjustu tækni á þessu sviði. Það verður því að minnsta kosti meira bygg á næsta vori heldur en því síðasta en ég ætla að sjá til með það hvort ég auki við mig í hveitinu.“ Aðspurður hvort hann ætli ekki að fara að koma sér upp bruggaðstöðu svo hann geti bruggað úr bygginu bregst kornbóndinn hvumsa við: „Nei, ég skal gera eins vel og ég get til að brauðfæða þjóðina en ég ætla ekki að fara að auka á bölið í samfélaginu, það mega aðrir sjá um það.“ Oddvitinn getur hins vegar ekki alltaf hugsað um bygg og bústörf því nóg er að gera í sveitarfélaginu. „Innan skamms verður tekin í notkun viðbygging við Hvolsskóla, það er 1.300 fermetra viðbygging og eldra húsnæðið var tekið í gegn í leiðinni. Það var orðið tímabært að stækka við skólann.“ „Svo er nóg að gera í menningunni, hér er búið að endurvekja leikfélagið og svo muna nú flestir eftir djassveislunni sem boðið var upp á í Skógum. Það er orðinn árlegur viðburður að djassað sé undir Eyjafjöllum á þessum tíma,“ segir Ólafur. HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ÓLAFUR EGGERTSSON KORNBÓNDI UNDIR EYJAFJÖLLUM Vil frekar brauðfæða þjóðina en brugga Bíræfinn huldumaður í Hafnarfirði Kúkar í skóla- töskur barnanna Foreldrar vilj a DNA-rannsók n DV2x15 - lesið 1.12.2005 19:30 Page 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.