Fréttablaðið - 02.12.2005, Blaðsíða 75
Söngkonan Madonna hefur
jafnað met Elvis
Presley varðandi
flestar smáskíf-
ur sem náð
hafa á topp tíu
lista Billboard-
listans. Þau hafa
nú bæði gefið
út 36 smáskífur
sem náð hafa inn
á topp tíu listann.
Það tók Madonnu
21 ár að ná
þesum árangri en
Elvis Presley náði
sama árangri á
um 16 árum.
[ TÖLVULEIKIR ]
[UMFJÖLLUN]
James Bond From Russia with
Love er fyrsti Bond-leikurinn sem
gerður er eftir klassískri Bond-
mynd. Þetta fer leiknum vel en allt
útlit hans, föt, bílar og bygging-
ar eru í stíl sjöunda áratugarins.
Sjálfur Sean Connery ljáir leiknum
rödd sína og andlit sem spillir ekki
fyrir stemmingunni en söngkonan
Natasha Bedingfield fer í hlutverk
Bond-stúlkunnar.
Leikurinn byggir á söguþræði
myndarinnar en bætir við fjölda
atriða sem falla vel að þræðinum
og eru góð viðbót. From Russia
with Love er blanda af hasar-, skot-
og bílaleik, þar sem leikmenn ferð-
ast víða og þurfa að skjóta á óvinina
með einhverjum af vopnum leiks-
ins. Þar á meðal eru skammbyssa,
haglari, vélbyssur og svo auðvitað
hin ómissandi sprengjuvarpa. Auk
vopna getur Bond nýtt hinar ýmsu
græjur og er hann til dæmis með úr
sem skýtur geisla, skjalatösku sem
er hægt að breyta í öfluga vélbyssu
og ermahnappa sem senda frá sér
hátíðnihljóð til að trufla óvinina.
Á hverju borði leiksins safna leik-
menn stigum sem hægt er að nota
síðar til að uppfæra vopn og græj-
ur til þess að þau verði öflugri. Ein
græja sem menn þekkja úr mynd-
inni er einnig notuð mikið í leikn-
um, en það er eldflaugabakpoki
sem Bond notar til að svífa um á en
þau atriði leiksins eru vel heppnuð.
Bílaatriði leiksins eru vönduð, enda
notuð sama grafíkvél og er í Need
for Speed-leikjunum. Bond þarf að
bruna um ýmis svæði en bílinn er
með vélbyssur og sprengjur.
Leikurinn er spilaður í þriðju per-
sónu og gengur vel upp en leikur-
inn minnir mikið á Bond-leikinn
Everything or Nothing í spilun.
Auk þess að spila einn í gegnum
söguþráðinn geta leikmenn spilað
allt að fjórir saman í fjölspilun-
armöguleika, og getur það orðið
sæmilega fjörugt en langt frá þvi
að vera fullkomið. Leikurinn hefði
mátt vera lengri og einnig hefði
mátt fara nýjar leiðir en Bond-leik-
irnir hafa staðnað töluvert. Þeir
sem hafa gaman af James Bond
eiga eftir að skemmta sér konung-
lega í From Russia with Love, aðrir
ættu að leita á önnur mið. Bond
hefur engu gleymt en hefur heldur
ekki lært neitt nýtt.
Ólafur Þór Jóelsson
Sverrir Bergmann
Ekkert nýtt frá James Bond
JAMES BOND: FROM RUSSIA WITH LOVE
X - BOX, PS2 OG GAMECUBE
Aldurstakmark: 16 ára
Niðurstaða: Ágætis hasarleikur fyrir
aðdáendur James Bond. Aðrir ættu að leita á
önnur mið.
Bjarni Arason heldur útgáfutón-
leika á Nasa á mánudag. Með honum
á sviðinu verður níu manna stórsveit
undir stjórn Þóris Úlfarssonar. Sér-
stakir gestir verða Raggi Bjarna og
Björn Jörundur Friðbjörnsson.
Bjarni Ara gaf nýverið út plötuna
Svíng þar sem hann syngur þekkt
íslensk og erlend dægurlög, sem
sett hafa verið í nýjan búning. „Ég
leitaðist við að taka lög sem voru
þekkt fyrir að vera í öðrum búningi
og snúa þeim í stórsveitarstíl,“ sagði
Bjarni Ara. Bjarni segist lengi hafa
heillast af svokallaðri bigband-tón-
list. „Áður en ég byrjaði að syngja
spilaði ég sjálfur í bigbandi á tromp-
et. Þannig að þetta er svona „back
to the basics“ núna. Ég hef alltaf
heillast af þessari músík og það er
ekkert nýtt.“
Tónleikarnir á mánudag hefjast
klukkan 21.00. Miðaverð er 1500
krónur og fer miðasala fram í Skíf-
unni og á midi.is Þess má geta að
tónleikarnir verða teknir upp fyrir
Stöð 2 og sýndir á nýársdag. ■
Tekur trompetið fram
BJARNI ARASON Bjarni Ara spilaði á tromp-
et og var í bigbandi á sínum æskuárum.
FRÉTTIR AF FÓLKI