Fréttablaðið - 02.12.2005, Blaðsíða 6
6 2. desember 2005 FÖSTUDAGUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A
KJÖRKASSINN
Ætlarðu til útlanda um jólin?
Já 10%
Nei 90%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Sendir þú SMS-skilaboð daglega?
Segðu þína skoðun á visir.is
FÉLAGSMÁL „Það er afskaplega dap-
urt að vera á svipuðum slóðum og
Spánn og Portúgal þegar kemur
að málum sem varða öryrkja,“
segir Stefán Ólafsson, prófess-
or við Háskóla Íslands. Hann
kynnti í gær nýja skýrslu sína
um örorku og velferð á Íslandi og
í öðrum löndum og er niðurstaða
hans áfellisdómur yfir aðgerðum
stjórnvalda gagnvart öryrkjum
síðustu tíu árin.
Skýrslan sýnir að heildarútgjöld
ríkisins til örorkumála eru vel
undir meðallagi Evrópuríkja og að
þvert á það sem haldið hefur verið
fram eru öryrkjar ekki margir hér
í samanburði við nágrannaþjóð-
irnar. Sé borinn saman árangur
OECD ríkjanna í að veita öryrkj-
um viðunandi fjárhagsafkomu og
samfélagsleg úrræði er Ísland á
sama róli og þjóðir á borð við Spán
og Portúgal.
Stefán segir það lélegt í þjóð-
félagi sem býr við mikið ríki-
dæmi. „Það er lélegt að vera á
svipuðu róli hvað þessi mál varð-
ar og suður-evrópskar þjóðir því
þær eru þekktar fyrir veikburða
velferðarkerfi. Allt annað en er
uppi á teningnum hér á norðlæg-
ari slóðum þar sem eru þær þjóð-
ir sem við ættum að vera að bera
okkur saman við því við höfum
sömu tækifæri og þær.“
Telur Stefán að skipulag
starfsendurhæfingarmála sé
sundurlaust, stórauka þurfi
atvinnutækifæri allra öryrkja og
að velferðarkerfið eins og það er
í dag haldi mörgum í fátæktar-
gildru vegna skerðingarreglna
og naumra kjara. Mikið verk sé
óunnið og óásættanlegt að öryrkj-
ar margir hverjir í þessu ríka
landi búi við þær aðstæður að
vera fastagestir hjá ölmusustofn-
unum samfélagsins.
Undir þetta tekur Sigursteinn
Másson, formaður Öryrkjabanda-
lagsins. „Skýrsla Stefáns setur
hlutina í samhengi. Við erum í
botnsætum hvað velferð öryrkja
varðar í samanburði og ljóst að
átaks er þörf. Stokka þarf upp
almannatryggingakerfið, endur-
skoða lög um málefni fatlaðra
og brýnt að endurskoða hvernig
öryrkjar geti orðið virkir þátttak-
endur í að skapa hér samfélag sem
sannarlega er hægt að segja að sé
fyrir alla. Ég neita að trúa að til
sé sá stjórnmálamaður á Íslandi
sem vill að fólk búi við þau kröppu
kjör sem fatlaðir búa við í dag og
skýrslan staðfestir.“
albert@frettabladid.is
KRÖPP KJÖR ÖRYRKJA Skýrsla Stefáns Ólafssonar prófessors bendir til að enn sé langur
vegur að markmiðum ríkisstjórnarinnar frá árinu 1992 um að tryggja öryrkjum jafnrétti og
gera þeim kleift að lifa sem eðlilegustu lífi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Kjör öryrkja hér með
þeim lökustu í Evrópu
Ísland er langt á eftir grannþjóðum sínum hvað varðar stöðu öryrkja, sam-
kvæmt nýrri skýrslu Stefáns Ólafssonar prófessors. Eru Íslendingar þar í félags-
skap með suður-evrópskum þjóðum á borð við Portúgal og Spán.
JAFNRÉTTI Runólfur Ágústsson,
rektor Viðskiptaháskólans á Bif-
röst, lagði til á Karlaráðstefnu um
jafnréttismál, sem haldin var í
Salnum í Kópavogi í gær, að kynja-
kvóti yrði tekinn upp í íslenska
menntakerfinu. Hann sagði hlut-
fall karla í kennarastörfum ekki
viðunandi og velti upp þeirri
spurningu hvort menntun gæti
leitt til misréttis.
Í máli Runólfs kom fram að
brottfall karlkyns nemenda úr
skólum væri áhyggjumál sem
þyrfti að finna lausn á. Runólfur
benti á að hægt væri að líta á íbúa
landsins sem tvær þjóðir í einu
landi. Annars vegar starfsmenn í
skólum og heilbrigðis- og umönn-
unarstörfum, sem að mestu leyti
eru konur, og hins vegar starfs-
menn í stjórnunarstöðum, fjár-
málageiranum og iðnaði, en þar
eru karlar í meirihluta.
Árni Magnússon félagsmála-
ráðherra sem tók vel í hugmynd
Runólfs um kynjakvóta, tilkynnti
á ráðstefnunni að hann hefði í
kjölfarið á áformum sínum um
að koma á fót gæðavottun jafnra
launa ákveðið að skipa hóp til að
hrinda þeirri hugmynd í fram-
kvæmd.
Meðal framsögumanna var
Bjarni Ármannsson, forstjóri
Íslandsbanka. Hann dró upp
óvægna mynd af fjármálamarkað-
inum og sagði að starf í fjármála-
heiminum væri „fjölskylduóvænsti
vettvangur sem um getur.“
Ólafur Stephensen, aðstoðarrít-
stjóri Morgunblaðsins, talaði um
fæðingarorlof og benti á þá miklu
viðhorfsbreytingu sem hefði átt
sér stað í samfélaginu varðandi
fæðingarorlof feðra. Hann sagði
að ef kynjamisrétti yrði útrýmt
af heimilum og hlutverk karla og
kvenna yrðu þau sömu þar væri
fótunum kippt undan þeim sem
héldu því fram að ástæða fyrir
launamisrétti væri tilkomin vegna
mismunandi hlutverkaskiptingar
kynjanna.
Samdóma álit flestra þeirra
sem fluttu erindi á fundinum var
að ef jafnrétti ætti að nást í sam-
félaginu þyrfti fyrst að ná jafn-
rétti á heimilum landsmanna.
steinar@frettabladid.is
Á KARLARÁÐSTEFNUNNI
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, og
Árni Magnússon félagsmálaráðherra. Vigdís
var eina konan sem sótti ráðstefnuna.
Fyrsta karlaráðstefnan um jafnréttismál á Íslandi haldin í gær:
Jafnréttið byrjar í eldhúsinu
KAÍRÓ, AP Til óeirða kom á nokkr-
um kjörstöðum í Egyptalandi eftir
að lögregla ákvað að loka þeim.
Á þessum stöðum var búist við
að stjórnarandstæðingum mundi
vegna vel.
Lokaumferð egypsku þingkosn-
inganna fór fram í gær og er óhætt
að segja að víða hafi verið heitt í
kolunum. Lögregla lét loka nokkr-
um kjörstöðum þar sem félagar í
Bræðralagi múslima höfðu verið
aðsópsmiklir. Í bænum Kafr el-
Sheik, sem er við óshólma Nílar, var
skotið á kjósendur með þeim afleið-
ingum að einn lést og sextíu særðust.
Í nálægu þorpi sættu starfsmenn
í kjördeildum barsmíðum öryggis-
sveita. Kjósendur létu aðgerðirnar
hins vegar ekki á sig fá heldur klif-
ruðu inn um bakglugga á kjörstað og
komust þannig í kjörklefa. Formæl-
andi innanríkisráðuneytisins sagði
aðgerðirnar nauðsynlegar þar sem
félagar í Bræðralaginu hefðu efnt til
óspekta og fælt kjósendur annarra
flokka á brott.
Hosni Mubarabak forseti hefur
undir þrýstingi frá Bandaríkjun-
um komið á fót nokkrum lýðræðis-
umbótum. Velgengi frambjóðenda
Bræðralagsins í fyrstu tveimur
umferðunum er sögð hafa skotið
valdhöfunum skelk í bringu og því
hefur verið gripið til þessara harka-
legu aðgerða. - shg
Þriðja og síðasta umferð egypsku þingkosninganna fór fram í gær:
Lögreglusveitir lokuðu kjörstöðum
KLIFRAÐ Á KJÖRSTAÐ Kjósendur í Bussat létu það ekki á sig fá þótt aðaldyrum kjörstaðarins
hefði verið lokað heldur skriðu þeir inn um glugga baka til og greiddu atkvæði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI