Fréttablaðið - 02.12.2005, Síða 8
8 2. desember 2005 FÖSTUDAGUR
NOREGUR Norska olíufyrirtækið
DNO hóf boranir eftir olíu á kúr-
dísku svæði í norðurhluta Írak
fyrr í vikunni. Borunin hefur
vakið miklar deilur meðal stjórn-
málamanna í landinu enda í fyrsta
sinn eftir árás Bandaríkjamanna í
landið sem erlent fyrirtæki fær að
bora þar eftir olíu.
Aftenposten segir á vef sínum í
gær að DNO hafi hafið olíuboran-
ir í samræmi við samkomulag við
kúrdísku héraðsstjórnina en DNO
sé fyrsta erlenda félagið sem hefji
olíuboranir á svæðinu í samræmi
við slíkan samning.
Los Angeles Times sagði hins
vegar í vikunni að stjórnmála-
leiðtogar í Bagdad hefðu brugð-
ist ókvæða við fréttunum. Haft
var eftir þeim að ekki væri víst
að samkomulagið um boranirn-
ar væri í samræmi við stjórnar-
skrána. Ríkisstjórnin hefði ekki
fengið þetta mál á sitt borð eða
tekið afstöðu til þess.
Framkvæmdastjóri DNO,
Helge Eide, sagði við norsku
fréttaveituna NTB að félagið teldi
sig vera á traustum grunni. „Það
hefur enginn gert athugasemdir
við okkur. Við skiljum stjórnar-
skrána þannig að það sé hægt að
gera samkomulag um olíubor-
un beint við stjórnvöld á hverju
svæði.“ - ghs
BANDARÍKIN Skoðanakönnun banda-
rísku sjónvarpsstöðvarinnar CNN
frá því í fyrrakvöld, rétt eftir að
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti kynnti stefnu sína í Írak, sýnir
að 55 prósent þjóðarinnar telji
að hann hafi ekki skýra sýn um
hvernig ná beri fram sigri í Írak.
Sex af hverjum tíu segja að
bandarískt herlið skuli vera áfram
í Írak þar til markmiðum her-
námsins sé náð á meðan 35 pró-
sent segja að setja beri því fastan
tímaramma. Þá segja 54 prósent
aðspurðra að Bush hafi haldið illa
á spöðunum á meðan.
Aðeins brot aðspurðra hafði
fylgst með ræðu forsetans og því
endurspeglar könnunin ekki við-
brögð við henni. ■
Ný
tt!
+ Staðgreiðsluverð
+ Lægri vextir
+ Lægri kostnaður
+ Til allt að 36 mánaða
+ Framlengdur ábyrgðartími
+ Flutningstrygging
+ Vildarpunktar
VISALán er ný og hagstæð leið
til greiðsludreifingar við
kaup á vörum eða þjónustu.
– HAGSTÆÐAR AFBORGANIR
Spurðu um ENNE
M
M
/
S
ÍA
����������������
����������
�����������������
����������������������������������������������������������������
���������������������������������������������
��������������������������
skrifuð af fádæma stílgáfu�
������������ ������������� �
� � ��������������������
�������������� fantafín saga.�
� ����������������������������������
�Grípandi frásögn …
skemmtilega margþætt verk.�
� �����������������������������������������
��������������������������������
gat ekki lagt frá mér bókina.��
� � ����������������������������
��������������������������������
����������������������������
fangar strax athygli lesandans
og heldur honum þar til yfir lýkur.�
� � ���������������������������
DANMÖRK Maður á þrítugsaldri
hringdi til lögreglunnar í Dan-
mörku í gærmorgun og tilkynnti
að hann hefði myrt dætur sínar
tvær. Sagðist hann vera staddur á
brúnni yfir Stóra belti og hygðist
stökkva fram af. Hann var hand-
tekinn þar stuttu síðar.
Lögreglan fann lík stúlknanna,
sjö og tveggja ára, á þeim stað
sem maðurinn hafði vísað á. -ks
Voðaverk í Danmörku:
Myrti dætur
sínar tvær
VEISTU SVARIÐ
1 Hvað heitir listaverkið sem Thelma Ásdísardóttir fékk þegar hún var val-
in kona ársins af tímaritinu Nýju lífi?
2 Hvað fann tollgæslan á Eskifirði við leit í skipunum Jóni Kjartanssyni og
Hólmaborg?
3 Hvaða fræga kvikmyndastjarna er hérlendis á vegum Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna?
SVÖRIN ERU Á BLS. 70
STYRKVEITINGAR „Á okkar mæli-
kvarða er þetta risastyrkur og
hann mun verða mikil lyftistöng
við að efla menntun barnanna
okkar,“ sagði Yolanda Correia, upp-
lýsingafulltrúi Barnahjálpar Sam-
einuðu þjóðanna í Gíneu-Bissá. Í
gær var tilkynnt að fyrirtækin
Baugur Group, FL Group og Fons
hefðu ákveðið að styrkja verkefni
þar í landi um 135 milljónir króna
á næstu árum og mun fénu verða
varið til margvíslegra verkefna í
skólamálum landsins.
Verður hluti þess notaður til að
endurbyggja fjörutíu skóla í land-
inu og bæta gæði og aðstöðu fyrir
tæplega hundrað þúsund börn víðs
vegar um landið. Aðeins fjörutíu
prósent barna sækja grunnskóla
þar að jafnaði og vonast er til að
með fjárframlagi íslensku fyrir-
tækjanna verði hægt að fjölga
þeim til muna.
Yolanda Correia segir engan
vafa á að framlagið muni hafa
afgerandi áhrif á líf þúsunda.
„Með betri menntun og betri
skólum er lagður grunnur að
framtíðarsamfélagi sem hefur
gott menntunarstig og möguleika
sem ekki eru fyrir hendi í dag og
styrkur sem þessi mun hafa mikil
og góð áhrif á mörg líf í framtíð-
inni.“
Stefán Ingi Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Barnahjálpar SÞ
á Íslandi, segir fjárframlag sem
þetta mikilsvert framtak einka-
aðila. „Styrkur á borð við þennan
er mjög stór í alþjóðlegum sam-
anburði og Barnahjálpin fær ekki
svona samninga nema tvisvar til
þrisvar sinnum á ári að jafnaði.
Allt fé til starfseminnar kemur
frá ríkisstjórnum og einkaaðilum
eins og í þessu tilfelli. Framlagið
er stórt enda eru íslensk fyrirtæki
orðin stór á alþjóðlegan mæli-
kvarða og mikið fagnaðarefni að
fyrirtæki á borð við þessi taki þátt
í því að byggja upp sómasamlega
framtíð fyrir fátæk börn.“
Roger Moore, velgjörðarsendi-
herra Barnahjálpar SÞ, kom hing-
að til lands til að vera viðstaddur
athöfnina og sagði að spakmæli
biblíunnar að sælla væri að gefa en
þiggja ættu vart við um sig. „Það er
nefnilega svo að á svona dögum er
sælla að þiggja og mér er þakklæti
í huga til þeirra forstjóra sem hér
sitja og hafa með framlagi sína sett
sín lóð á vogarskálar til á fátæk börn
geti eignast sómasamlegt líf í fram-
tíðinni.“ albert@frettabladid.is
Styrkja um
135 milljónir
Þrjú íslensk fyrirtæki, Baugur Group, Fons og FL
Group, hafa ákveðið að veita Barnahjálp Samein-
uðu þjóðanna 135 milljóna króna styrk.
FRÁ UNDIRRITUN SAMNINGSINS Um einhvern stærsta styrk er að ræða sem íslensk fyrir-
tæki hafa sett í ákveðið þróunarverkefni. Frá vinstri: Yolanda Correia, frá UNICEF í Gíneu-
Bissá, Pálmi Haraldsson, aðaleigandi Fons, Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, Roger
Moore, velgjörðarsendiherra UNICEF, Hannes Smárason, forstjóri FL Group, og Stefán Ingi
Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
OLÍA BRENNUR Í ÍRAK Norðmenn valda heitum deilum meðal stjórnmálamanna í Írak en
norska fyrirtækið DNO er fyrst erlendra fyrirtækja til að hefja borun í Írak.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Norðmenn bora eftir olíu á svæði Kúrda í norðurhluta Íraks:
Olíuboranir valda deilum meðal Íraka
STYRKVEITINGAR Utanríkisráðherra,
Geir H. Haarde, tilkynnti um rúm-
lega tólf milljóna króna aukafram-
lag til UNIFEM á fundi sem sam-
tökin héldu fyrir stuttu.
Er féð ætlað til svæðisbund-
inna verkefna í Evrópu en áður
hafði ráðuneytið lagt fram tæpar
tólf milljónir til annarra verkefna.
Ráðuneytið mun enn fremur kosta
stöðu starfsmanns í sama verkefni
sem hefst á næsta ári. - aöe
Ríkið styrkir Unifem:
Fá tólf milljónir
FORSETINN Skiptar skoðanir eru um stefnu
Bush í Íraksmálunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Bandaríkjamenn um Írak:
Stefna Bush er ekki
talin vera nógu skýr
Samsteypustjórn mynduð Þrír
stærstu stjórnmálaflokkarnir á Græn-
landi hafa myndað samsteypustjórn,.
Þetta eru Siumut, sem hefur verið í
landstjórninni í aldarfjórðung, Inúíta-
flokkurinn og Atassut. Flokkarnir hafa
23 sæti af 31 á grænlenska þinginu.
Hans Enoksen, formaður Siumut, verður
landstjórnarformaður.
GRÆNLAND