Fréttablaðið - 02.12.2005, Side 10
10 2. desember 2005 FÖSTUDAGUR
ÚKRAINA, AP Evrópusambandið
samþykkti í gær að lýsa Úkraínu
virkt markaðshagkerfi. Þessi
viðurkenning er álitin mikilvæg-
ur áfangasigur fyrir stefnu Vikt-
ors Jústsjenkós forseta á nánari
tengsl við ESB, jafnvel fulla aðild.
Þetta var tilkynnt á leiðtoga-
fundi Úkraínu og ESB í Kíev í gær,
en það var fyrsti slíki fundurinn
síðan „appelsínugula byltingin“
skilaði Jústsjenkó og samherj-
um hans til valda. Forsvarsmenn
ESB sögðust á fundinum einnig
styðja viðleitni Úkraínu til að fá
aðild að Heimsviðskiptastofnun-
inni, WTO. ■
edda.is
Metsölubók um
heim allan
Spænsku
bóksalaverðlaunin -
Besta bók Spánar
2002
„Þeir sem kunna að meta
Hundrað ára einsemd og
Nafn rósarinnar munu njóta
þess að lesa Skugga vindsins.“
Árni Matthíasson, Mbl.
„Feiknalega skemmtileg
lesning á mörkum ævintýrisins.“
Halldór Guðmundsson, Fbl.
„Leggðu allt annað frá þér og
lestu fram á rauðanótt.“
Joschka Fischer, utanríkisráðherra
Þýskalands
„Frábærlega skemmtileg
bók ... allir sem kunna að meta
óhugnalegar, erótískar, hrífandi,
sorglegar og spennandi skáldsögur
ættu að hraða sér út í bókabúð.“
Washington Post
Þú leggur hana ekki frá þér
Leki-göngustafir
fyrir þá sem gera kröfur
Verð frá kr. 4.990.-
DÓMSMÁL Arnþrúður Karlsdóttir,
útvarpssstjóri Útvarps Sögu, segir
fjölmiðlamennina Ingva Hrafn
Jónsson og Sigurð G. Tómasson
skulda útvarpsstöðinni peninga.
Í byrjun vikunnar var tekið
fyrir einkamál þeirra í Héraðs-
dómi Reykjavíkur á hendur henni
til greiðslu meintrar launaskuld-
ar. Arnþrúður ver sig sjálf þrátt
fyrir að vera ólöglærð og kveðst
fullviss um að hafa sigur í málinu,
en því var frestað fram yfir ára-
mót.
„Þetta liggur allt ljóst fyrir
og vandlega stutt gögnum,“ segir
hún og bendir á að þeir félagar
fari fram á bónusgreiðslur fyrir
auglýsingasölu, en sá fyrirvari
hafi verið á að greiðslurnar þyrfti
fyrst að samþykkja í stjórn. „Og
það var aldrei gert.“
Þá segir Arnþrúður þá félaga
ekki hafa staðið við hlutafjáraukn-
ingu sem búið hafi verið að sam-
þykkja. „Svo færði Ingvi Hrafn fé
án heimildar af reikningi stöðv-
arinnar og reyndar þurftum við
að breyta aðgangsupplýsingum í
heimabanka til að stöðva það.“
Ingvi Hrafn og Sigurður vísa
því báðir á bug að skulda Arn-
þrúði nokkuð og segja málið munu
hafa sinn gang fyrir dómstólum.
„Um er að ræða launaskuld og allt
annað sem Arnþrúður segir er
óskiljanlegur skáldskapur. Það er
sorglegt að sjá hvernig komið er
fyrir Útvarpi Sögu,“ segir Ingvi
Hrafn. - óká
Arnþrúður Karlsdóttir er hvergi bangin við málsókn fyrrum félaga á Útvarpi Sögu:
Þeir skulda stöðinni stórfé
JÚSTSJENKÓ OG BLAIR Snúa bökum saman
í Kíev. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Leiðtogar Úkraínu og Evrópusambandsins hittast:
Áfangasigur forseta
ARNÞRÚÐUR KARLSDÓTTIR Arnþrúður, sem
er útvarpsstjóri á Útvarpi Sögu, ver sig sjálf.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
BANDARÍKIN Lögregla í Fort Lauder-
dale í Flórída leitar nú ákaft hjóna
á þrítugsaldri sem talin eru hafa
valdið dauða þriggja mánaða gam-
allar dóttur sinnar með því að gefa
henni áfengi.
Fram kemur á vefsíðu CNN að
krufning hafi leitt í ljós að áfeng-
ismagn í blóði telpunnar hafi verið
0,47 prómill, eða sexfalt það magn
sem bandarísk lög heimila öku-
mönnum bifreiða að hafa í blóði
sínu. Lifur hennar var auk þess
stórskemmd.
Talið er að hjónin hafi blandað
vodka, sykur, vatn og salt í pela
litlu stúlkunnar til að fá hana til
að hætta að gráta. ■
Lögregla leitar foreldra:
Drápu barnið
með áfengi
EINANGRUN „Ég er að brenna með
fyrstu dýrin upp á stöð,“ sagði
Kristín Jóhannesdóttir þegar
Fréttablaðið sló á þráðinn til
henar í gær. Þá opnaði hún nýja
einangrunarstöð fyrir gæludýr,
Einangrunarstöð Reykjanesbæjar,
í Höfnum. Kristín sagði að fyrstu
dvalargestirnir til að stíga fæti
inn í stöðina væru tvær eðaltík-
ur, Golden Retriever og Shetland
Sheepdog, sem væru að koma frá
Bandaríkjunum og Belgíu.
Á fyrsta opnunardegi var von
á tólf dýrum; þremur köttum og
níu hundum. Dvalartími hvers
dýrs er einn mánuður. Í fyrs-
tu var fyrirhugað að taka inn í
stöðina í tveimur hollum en að
sögn Kristínar hefur því nú verið
breytt þannig að stöðin verður
einsetin. Það er gert vegna hest-
ainflúensunnar í Bandaríkjunum
sem smitast getur í hunda. Stöðin
rúmar því 23 hunda og níu ketti
í senn.
„Það hafa borist margar pant-
anir, enda langur biðlisti fyrir-
liggjandi,“ sagði Kristín og kvaðst
ekki kvíða því að hafa ekki nóg
að gera. „Fólk virðis vera mjög
ánægt með að hafa stöðina svona
nálægt flugvellinum.“
Dýralæknastofa Björgvins
Þórissonar sér um eftirlit í stöð-
inni. Björgvin sagði að flutning-
ur einangrunarstöðvar gæludýra
á suðvesturhornið myndi auka
öryggi gegn smitsjúkdómum.
„Þetta er gott einkaframtak,
þar sem ekkert er til sparað,“
sagði Björgvin. „Bæði aðstæð-
ur fyrir mannskap og dýr eru til
fyrirmyndar. Stór og góð búr, mun
stærri en segir til um í reglugerð,
og rúmgóð starfsaðstaða.“ - jss
Innflutt gælu-
dýr í einangrun
Fyrstu gestirnir í nýrri einangrunarstöð gæludýra í
Reykjanesbæ, sem opnuð var í gær, voru tvær eðaltíkur.
Önnur kom frá Belgíu en hin frá Bandaríkjunum.
AÐVENTAN Á KÝPUR Kýpur-Grikkir fylgjast
með flugeldasýningu eftir að kveikt var
á þessu stærðar jólatré á Elefteria-torgi í
höfuðborginni Nicosíu í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KRISTÍN JÓHANNESDÓTTIR Tók sig til og reisti einangrunarstöð fyrir gæludýr sem var formlega tekin í notkun í gær.