Fréttablaðið - 02.12.2005, Blaðsíða 16
16 2. desember 2005 FÖSTUDAGUR
������������������������������������������������������������������������� ������������������������������������
FÆÐINGARORLOF Feður barna
sem fæddust á árinu 2004 taka
að jafnaði aðeins fjóra daga í
fæðingarorlof umfram þriggja
mánaða sjálfstæðan rétt sinn.
Það merkir að mæður taka að
jafnaði sex mánuði í fæðing-
arorlof en feður þrjá mánuði.
Þetta kemur fram í nýrri töflu
í Staðtölum Tryggingastofnunar
ríkisins fyrir árið 2004. Feður
tóku í fyrra að meðaltali 94 daga
í fæðingarorlof en mæður að
meðaltali 182 daga.
Í Staðtölum kemur einnig
fram að útgjöld vegna fæð-
ingarorlofs og fæðingarstyrks
jukust um nítján prósent milli
áranna 2003 og 2004. Á síðasta
ári voru útgjöldin samtals 6,6
milljarðar króna. Konur fengu
greidda 3,7 milljarða en karlar
2,9 milljarða.
Alls fengu 3.699 feður barna
fæddra 2004 greiðslur vegna
fæðingarorlofs. Um er að ræða
fjölgun upp á um ellefu pró-
sent frá árinu 2001. Fædd börn
á árinu voru rúmlega fjögur
þúsund.
Samkvæmt lögum á hvort
foreldri um sig sjálfstæðan
og óframseljanlegan rétt til
greiðslna í fæðingarorlofi í allt
að þrjá mánuði. Foreldrar eiga
þar að auki sameiginlegan rétt
til greiðslna í þrjá mánuði til
viðbótar sem annað foreldrið
getur tekið í heild eða þeir skipt
á milli sín. Samkvæmt tölum
frá árinu 2004 taka mæðurnar
sameiginlegu mánuðina nánast
óskipta.
- jss
FÆÐINGARORLOF Feður tóku í fyrra
að meðaltali 94 daga í fæðingarorlof
en mæður að meðaltali 182 daga.
Útgjöld vegna fæðingarorlofs voru 6,6 milljarðar á árinu 2004:
Mæður tvöfalt lengur í orlofi en feður
RÚSSLAND Talsmenn frjálsra
félagasamtaka á Norðurlöndum
eru uggandi um að starfsemi
þeirra í Rússlandi muni skreppa
saman vegna lagafrumvarps sem
nú er til umfjöllunar á rússneska
þinginu. Í frumvarpinu er gert
ráð fyrir að starfsemi frjálsra
félagasamtaka í landinu verði
settar strangar skorður.
Frumvarpið var samþykkt eftir
fyrstu umræðu í Dúmunni, rúss-
neska þjóðþinginu, í síðustu viku
með 317 atkvæðum gegn 18. Sam-
kvæmt því verður öllum frjálsum
félagasamtökum skylt frá árinu
2007 að sækja um skráningu í
dómsmálaráðuneytinu í Moskvu.
Liðsmenn mannréttindasam-
taka í Rússlandi hafa mótmælt
frumvarpinu og segja því ætlað að
koma starfsemi um 1.000 frjálsra
félagasamtaka í landinu undir hæl
stjórnvalda.
Á fréttavef norrænu ráðherra-
nefndarinnar er haft eftir finnska
blaðinu Hufvudstadsbladet að
talsmenn finnskra félagasam-
taka með starfsemi í Rússlandi
hafi áhyggjur af því að samtök
sem beiti sér til að mynda fyrir
umhverfisvernd eða mannrétt-
indum muni geta átt erfitt með að
fá starfsleyfi eystra eftir að lögin
taki gildi. - aa
MÓTMÆLT VIÐ ÞINGIÐ Lögregla fjarlægir
liðsmann mannréttindasamtaka sem tók
þátt í mótmælum gegn frumvarpinu.
NORDICPHOTOS/AFP
Mannréttindasamtök mótmæla nýju lagafrumvarpi í Rússlandi:
Þrengt að félagasamtökum
SVÍÞJÓÐ Annar hver starfsmanna-
stjóri og þriðji hver fjármálastjóri í
sænskum fyrirtækjum er kona.
Hlutur kvenna í stjórnum fyrir-
tækja og stjórnendastöðum hefur
aukist verulega síðustu tíu árin.
Þetta kom fram í niðurstöðum rann-
sóknar sem fjallað var um á vefsíðu
Dagens Nyheter í gær.
Staða 54 þúsund kvenna var skoð-
uð og kom í ljós að hlutur kvenna
hefur aukist misjafnlega eftir stöð-
um. Þar kom í ljós að fimmti hver
sölu- og markaðsstjóri er kona og
þeim hefur fjölgað sem millistjórn-
endum. Hlutfall kvenna hefur hins
vegar aukist hægt í toppstöðum. ■
Toppstjórnendur:
Konur eru í
betri stöðu
ALNÆMISDAGURINN Borgarfulltrúar í
borgarstjórn Vínar aðstoða hér við að
reisa rauðan borða í risastærð utan á
ráðhúsinu í gær, í tilefni af alþjóðlega
alnæmisdeginum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FJARSKIPTI Um síðustu helgi var
komið upp fjarskiptaendurvarpa
á Hjörleifshöfða
fyrir Almanna-
varnir og björg-
unarsveitir. Fyrir
eru slík tæki á
Háfelli og Höttu
en talin er hætta
á að ef til eldgoss
kæmi í Kötlu gæti
það haft áhrif á
fjarskiptin um
þau. Fjarskipta-
endurvarpinn á
Hj ö r l e i fs h ö fð a
á hins vegar ekki að verða fyrir
áhrifum þótt gjósa fari í Kötlu.
Rafgeymar voru fluttir á stað-
inn með þyrlu Landhelgisgæslunar,
TF-LÍF, en björgunarsveitarmenn
frá Víkverja og Sigurður Harðar-
son rafeindavirki komu búnaðinum
upp. - jse
Björgunarsveitin Vikverji:
Endurvarpi á
Hjörleifshöfða
ENDURVARPI
Björgunarsveitar-
maður við nýupp-
setta fjarskipta-
endurvarpann á
Hjörleifshöfða.