Fréttablaðið - 02.12.2005, Síða 36
2. desember 2005 FÖSTUDAGUR36
Síðumúla 13 • Sími 568-2870
Dæmi um verð. Áður. Núna.
ÚTSALA ÚTSALA
40 – 60 % AFSLÁTTUR
Ótrúlega lágt verð
Opið föstudag 10:00 – 18:00 og laugardag frá 10:00 – 16:00
Loðin jakkapeysa 6.900.- 4.200.-
Marglit peysa 7.200.- 3.600.-
Peysa m/tölum 6.200.- 3.800.-
Bolur m/pallíettum 4.300.- 2.600.-
Bolur m/nælu 4.000.- 2.400.-
Blúndutoppur m/rós 4.000.- 2.400.-
Röndótt skyrta 4.900.- 3.000.-
Mokkajakki 10.800.- 6.500.-
Pelsjakki 7.900.- 4.800.-
Kápa m/pels 7.800.- 4.700.-
Kjóll m/perlum 7.300.- 4.400.-
Stutt flauelspils 5.100.- 3.100.-
Sítt pils m/reim 4.500.- 2.700.-
Svartar buxur 4.400.- 2.700.-
Kvartbuxur 5.400.- 2.900.-
Gallabuxur 6.400.- 3.900.-
Leðurstígvél 15.200.- 5.900.-
Svartir dömuskór 4.500.- 2.700.-
Silfur skór 5.400.- 2.900.-
Einhverjum þótti munur á harka-
legri framgöngu umsjónarmanna
Kastljóss við mig föstudags-
kvöldið 25. nóvember, miðað við
mildina, sem Jóni Ólafssyni var
þar sýnd tíu dögum áður. Sjálfur
geri ég enga athugasemd. Með
harkalegri framgöngu sinni gáfu
Kastljóssmenn mér tækifæri til
að svara spurningum, sem fólk
vildi fá svarað. Það er líka gott,
að Jón Ólafsson fékk rúman tíma
í Kastljósi. Hann kom rækilega
upp um sjálfan sig þar og ann-
ars staðar, þar sem hann birtist
til að kynna bók þeirra Einars
Kárasonar.
Jón Ólafsson hélt því til
dæmis fram, að skattrannsókna-
stjóri hefði gumað af því ölvað-
ur, að hann hefði fengið auka-
fjárveitingu frá Davíð Oddssyni
fyrir að taka sig til rannsóknar.
Bar Jón fyrir því endurskoð-
anda, sem hefði hringt í sig.
En skattrannsóknastjóri hefur
verið stakur bindindismaður í
þrjátíu ár. Hann hafði aldrei hitt
Davíð Oddsson, þegar rannsókn-
in hófst.
Jón fullyrti líka, að Davíð
Oddsson hefði sig á heilanum.
Dæmi hans var, að Davíð hefði
notað allan ræðutíma sinn í
fimmtugsafmæli Þórarins Eld-
járns til að úthúða sér. Nú hefur
Þórarinn Eldjárn leiðrétt þetta.
Í þrettán mínútna ræðu sinni
minntist Davíð ekki einu orði á
Jón Ólafsson Lundúnafara, held-
ur vitnaði á nokkrum sekúndum
í ljóð Þórarins um Jón Ólafsson
Indíafara.
Bæði dæmin, sem Jón nefndi,
um ölvunartal skattrannsókna-
stjóra og ræðuhöld Davíðs um
Jón, eru í bók Einars Kárasonar,
sem var raunar heimildarmað-
urinn að sögunni um ræðuhöld-
in. Það blasir við, að annaðhvort
veit Einar Kárason ekki hver
Jón Ólafsson Indíafari var, eða
að hann hefur verið í því ástandi
í afmæli Þórarins, sem Jón
Ólafsson Lundúnafari segir að
skattrannsóknastjóri sé jafnan
í þegar hann gorti af aukafjár-
veitingum til sín.
Jón Ólafsson sagði í sjónvarp-
inu frá því, að ég hefði hringt í
sig og beðist vægðar. Þetta eru
auðvitað líka órar. Ég hringdi í
Jón að kvöldi 6. nóvember. Svo
vel vildi til, að Kolbrún Berg-
þórsdóttir blaðamaður var stödd
hjá mér og hlustaði á mig tala
við Jón, svo að fleiri eru til frá-
sagnar en við Jón. Ég sagði Jóni,
að sennilega vissi hann ekki,
að ég hefði strax og lögmaður
hans í Bretlandi hefði sent mér
kvörtun vegna heimasíðu minn-
ar, óskað eftir 3. júlí 2004 því
við vefstjóra háskólans, að henni
yrði lokað, en það hefði ekki
verið gert af einhverri hand-
vömm. Ég hefði ekki viljað troða
illsakir við hann. Ég spurði Jón
síðan, hvort við ættum ekki að
láta deilur okkar niður falla.
Hann var ekki reiðubúinn til
þess.
Einar Kárason hefur ekki
vandað sig í þessari bók. Hann
skrifar til dæmis upp eftir Jóni,
að hann hafi aðeins verið sextán
ára í lögregluyfirheyrslu vegna
fíkniefnamisferlis sumarið
1972. Jón var þá átján ára. Í
öðrum stað í bókinni er hlægi-
legt ósamræmi. Þeir Jón segja
á bls. 454, að tilboð hafi borist
í Norðurljós upp á 70 milljónir
dala, sem hafi þá verið 7 millj-
arðar króna. Ellefu blaðsíðum
aftar segir Jón frá því, að hann
hafi reiknað sér ráðgjafagreiðsl-
ur frá Norðurljósum upp á 50
þúsund dali á mánuði, en það
sé nú um 3 milljónir króna. Af
hverju reikna þeir Einar og Jón
dalinn á 100 kr. á öðrum staðn-
um, en 60 kr. á hinum?
Fróðlegasta villan er ef til
vill þegar Einar Kárason segir á
bls. 154, að „Brennið þér vitar“
sé eftir Davíð og Kaldalóns. Öll
þjóðin veit, að lagið er úr Alþing-
ishátíðarkantötu Páls Ísólfsson-
ar. En Sigvaldi Kaldalóns var
bróðir Eggerts Stefánssonar,
sem var auðvitað fyrirmyndin
að Garðari Hólm í Brekkukots-
annál. Gúðmúnsen kaupmaður
vildi setja slaufu á saltfiskinn,
fá listamenn til að syngja sér
lof. Faðir hans, Jón gamli, hafði
hagnast á brennivínssölu. Þeir
tóku í þjónustu sína Garðar
Hólm, sem söng hinn óhreina
tón.
Hinn óhreini tónn
UMRÆÐAN
JÓNSBÓK
HANNES
HÓLMSTEINN
GISSURARSON
Jón Ólafsson sagði í sjónvarp-
inu frá því, að ég hefði hringt í
sig og beðist vægðar. Þetta eru
auðvitað líka órar. Ég hringdi
í Jón að kvöldi 6. nóvember.
Svo vel vildi til, að Kolbrún
Bergþórsdóttir blaðamaður
var stödd hjá mér og hlustaði
á mig tala við Jón, svo að fleiri
eru til frásagnar en við Jón.
Vísa Þorsteins Valdimarssonar um
eina af ferðum Sindbaðs sæfara
kom upp í huga minn þegar stjórn
Byggðastofnunar lýsti því yfir að
lánastefna stofnunarinnar væri
strönduð. Siglingunni lokið og
skipið á skerinu. Sindbað fékk þó
mýkri lendingu en í stefnir með
lánastarfsemi Byggðastofnunar ef
menn horfast ekki í augu við það að
verði hún sjálfbær, þjónar hún ekki
tilgangi sínum, sem er stuðningur
við atvinnulíf sem ekki stenst sam-
keppni án aðstoðar.
En starfshópur á vegum ríkis-
stjórnarinnar um byggðamál legg-
ur til að Byggðastofnun haldi þó
áfram lánastarfsemi í bili meðan
skoðað er hvort til greina komi
afskriftir skulda eða bein framlög
ríkisins til styrktar stofnuninni.
Einnig að gerðar verði grundvall-
arbreytingar á fjármögnunarstarf-
semi Byggðastofnunar þannig að
hún standi undir þeim rekstri án
fjárstuðnings ríkisins. Þessi hluti
af starfsemi stofnunarinnar á ekki
framtíð fyrir sér ef það er mein-
ingin að sömu forsendur og aðrar
fjármálastofnanir hafa fyrir starf-
semi sinni eigi að gilda um hana.
Talað er um að þróa fjármögn-
unartæki og samstarf við fjármála-
fyrirtæki og að til greina komi t.d.
ábyrgðir. Þetta stenst auðvitað ekki
vegna þess að ábyrgðir eru auðvit-
að ígildi peninga í fjármálastarf-
semi. Hver á að borga þær ef þessi
starfsemi á að vera sjálfbær? Það
er ekki björgulegt ef menn ætla að
kalla það endurskoðun á starfsem-
inni að halda áfram á sömu braut
og áður var í raun mörkuð og hefur
sannast að ekki gengur upp. Verði
þetta niðurstaðan um þennan hluta
starfseminnar þá er það ákvörðun
um að hafa skipið á skerinu áfram.
Starfshópurinn leggur til að
þróað verði samstarf við atvinnu-
þróunarfélögin og aðra aðila sem
vinna að atvinnuþróun og nýsköp-
un og að nýta vaxtasamninga sem
tæki til að efla samstarf á þessu
sviði. Sérstaklega er bent á Impru,
Iðntæknistofnun og Nýsköpunar-
sjóð atvinnulífsins í þessu sam-
bandi. Þessu fagna ég enda hef ég
talið að vandi Byggðastofnunar sé
fyrst og fremst sá að stjórnvöld
hafa ekki látið stofnunina sjá um
að vera sú miðja þess byggða-
stuðnings sem þó hefur verið til
staðar. Ráðherra byggðamála sem
hefur í raun verið að veikja starf-
semi stofnunarinnar undanfarin
ár virðist nú ætla að sjá að sér.
Valgerður sér þó seint sé að í
óefni er komið og bregst við með
því að lýsa því yfir að unnið verði
að því að sameina atvinnuþróun-
arstarfsemi iðnaðarráðuneytisins.
Þeirri u-beygju vil ég sérstaklega
fagna. Það er full ástæða til að
binda vonir við að nú fari starf-
semi stofnunarinnar að geta aftur
skilað árangri standi stjórnvöld
við þessar yfirlýsingar.
Ráðherra tekur fram að störf-
um á Sauðárkróki verði ekki fækk-
að og atvinnuþróunarstarfsemi á
Ísafirði, Egilsstöðum og Akureyri
verði efld. Þessum yfirlýsingum
fagna ég líka. Hvar ætti svo sem
að vinna þessi verkefni frekar?
Aðalniðurstaða þessarar skoðunar
á starfsemi Byggðastofnunar sem
ber að fagna er sú að stjórnvöld
viðurkenna að þau hafa verið á
röngum brautum.
Höfundur er þingmaður Sam-
fylkingarinnar.
Sindbað sigldi upp í sand
Grýla og Leppalúði
Eru Grýla og Leppalúði fortíðarhlið-
stæður auglýsingaflóðs og neysluæðis í
nútímanum, svona ómeðvitaður hrellir
svo hægt sé að njóta jólanna þegar þau
koma eftir rúmar 500 stundir? Hver er
hinn raunverulegi boðskapur jólanna,
annar er kaupgræðgi og ofneysla á raf-
magni, því það þarf jú að lýsa upp allt
húsið og garðinn með blikkandi ljós-
um og plastfígúrum sem eiga lítið sem
ekkert skylt við jólin. Er boðskapurinn
jólanna farinn að snúast um að eyða og
lúkka vel? Eða er landinn bara að reyna
að gleyma sér í jólaæðinu því það leiðir
hugann frá því hversu fjandi dimmt er
hér á Fróni í desember?
Karólína Stefánsdóttir á sellan.is
Harður skrápur
Það breytir því ekki að [Kári Stefánsson]
er umdeildur og þjóðþekktur, og líkt og
fleiri slíkir verður hann einfaldlega að
þola gagnrýni og ádrepur. Og það hefði
mátt ætla að maður sem um hefur verið
skrifuð heil bók væri kominn með harð-
ari skráp en þetta. Mér vitanlega hefur
hann hvergi reynt að svara þessari grein
efnislega, hvorki á þessum vettvangi
né öðrum. Sé eitthvað rangt í henni er
hægt að segja frá því rétta og sé í henni
alvarleg svívirðing er einfaldlega hægt að
fá ummælin dæmd dauð og ómerk hjá
dómstólum, enskum eður ei.
Guðmundur Rúnar Svansson á deiglan.
com
Batnandi kjör
Hitt er samt annað mál, að á undanförn-
um árum hafa kjör öryrkja batnað mjög
verulega og varla þarf að taka fram að
það hefur orðið alger breyting frá þeirri
kjararýrnun sem þeir máttu sæta á þeim
árum þegar síðast sat hér vinstristjórn
- eða „velferðarstjórn“ eins og kjararýrn-
unarstjórnirnar eru auglýstar. En á þeim
sömu árum og hagur öryrkja hefur batn-
að hvað mest, þá hefur sýnileg óánægja
þeirra einnig aukist hvað mest. Auðvitað
má skilja það vel að margir öryrkjar séu
ekki ánægðir með sinn hag. Það breytir
ekki því, að það er merkilega sjaldan haft
orð á því hversu mjög kjör þeirra hafa í
raun batnað á síðustu árum.
Vefþjóðvijinn á andriki.is
AF NETINU
UMRÆÐAN
BYGGÐASTOFNUN
JÓHANN ÁRSÆLSSON