Fréttablaðið - 02.12.2005, Síða 56

Fréttablaðið - 02.12.2005, Síða 56
 2. desember 2005 FÖSTUDAGUR40 Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 5.088 -0,33% Fjöldi viðskipta: 211 Velta: 3.908 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 49,10 +1,90% ... Bakkavör 48,10 -0,40% ... FL Group 15,50 -0,60% ... Flaga 4,90 +0,00% ... HB Grandi 9,50 +0,00% ... Íslandsbanki 16,50 +0,60% ... Jarð- boranir 24,50 -0,40% ... KB banki 654,00 -0,90% ... Kögun 59,20 +0,00% ... Landsbankinn 23,80 -0,40% ... Marel 63,90 +0,00% ... SÍF 4,13 -0,50% ... Straumur-Burðarás 15,40 -1,30% ... Össur 112,50 +0,50% MESTA HÆKKUN Icelandic Group +3,33% Actavis +1,87% Atorka Group +0,86% MESTA LÆKKUN Straumur -1,28% KB banki -0,91% FL Group -0,64% 60% Þú nærð til rúmlega helmingi fleiri Íslendinga á aldrinum 20–40 ára með því að auglýsa í atvinnublaði Fréttablaðsins frekar en atvinnublaði Morgunblaðsins. AUGLÝSTU EFTIR STARFSFÓLKI Á RÉTTUM STAÐ Lestur sunnudaga* 37% *20–40 ára Íslendingar. Gallup júní 2005. Á sunnudögum fylgja bæði Morgunblaðinu og Fréttablaðinu sérblöð inni í aðalblöðunum sem fjalla um atvinnumál. Rúmlega 60% 20–40 ára Íslendinga fletta ekki sunnudags- blaði Morgunblaðsins. Láttu ekki fyrirtæki þitt verða af góðum starfsmanni með því að auglýsa á röngum stað. Tilkynnt var í gær að Össur hf. hafi keypt breska stuðningstækja- fyrirtækið Innovative Medical Products (IMP) fyrir um 1,2 millj- arða íslenskra króna. Tók Össur við rekstri fyrirtækisins í gær. IMP sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu á hnjá-, mjaðma- og bakspelkum. Það er sagt stærsti sölu- og dreifingaraðilinn á stuðn- ingstækjum í Bretlandi. Í fréttatilkynningu er haft eftir Jóni Sigurðssyni forstjóra að það hafi verið yfirlýst markmið Össurar að færa sig enn frekar inn á markað fyrir stuðningstæki. Kaupin á IMP séu mikilvægur áfangi í þeirri sókn. Áætlaðar tekjur IMP fyrir árið í ár eru rúmar fjórtán milljónir Bandaríkjadala eða rúmar 880 milljónir króna. Fara á í skipu- lagsbreytingar sem eiga að skila meiri hagnaði frá og með árinu 2007. Þegar Össur keypti Royce Medical síðastliðið sumar var meira fengið að láni en til þurfti. Var afgangurinn meðal annars notaður til að greiða fyrir IMP. Kaupir stærsta sölu- aðilann í Bretlandi JÓN SIGURÐSSON VAR NÝLEGA Í NEW YORK AÐ KYNNA NÝTT GERVIHNÉ ÖSSURAR. Í nýútkominni spá OECD er áætl- að að hagvöxtur hér á landi verði 6,6 prósent á þessu ári sem er 0,4 prósentum hærra en í spá stofnun- arinnar frá maí. Frá þessu greinir í Morgunkorni Íslandsbanka. Hins vegar spáir OECD nú 4,6 prósent hagvexti á næsta ári en hafði áður spáð 5,3 prósent hagvexti. Árið 2007 spáir stofnunin svo 2,6 pró- senta vexti. Stofnunin bendir á að frekari vaxtahækkana sé þörf til þess að slá á verðbólgu og einnig verði aðhald að ríkja í fjármálum hins opinbera næsta kastið. OECD spáir verðbólgu nærri efri þolmörkum verðbólgu- markmiðs Seðlabankans næstu árin og að viðskiptahalli verði tæp 13% næsta ár, og 10,5% árið 2007. - hhs Spáir minnk- andi hagvexti Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu tíu mánuði ársins var birt í gær. Í september var bókfærður 56,8 milljarða króna söluhagnaður og 5,6 milljarða fjármagnstekjuskattur, bæði sem gjöld og tekjur, vegna sölu á hlutabréfum ríkissjóðs í Landssíma Íslands hf., en ekki var gert ráð fyrir þessum liðum í fjárlögum. Heildartekjur ríkissjóðs námu ríflega 336,6 milljörðum króna og hækkuðu um 107,9 milljarða frá sama tíma í fyrra, eða 47,2%. Þar af skýrir fyrrnefnd sala Landssímans um 62,4 milljarða. Skatttekjur ríkissjóðs námu um 256,9 milljörðum króna og juk- ust um 20,8% frá fyrra ári. Greidd gjöld námu 256,6 millj- örðum króna og hækka um 23,3 milljarða frá fyrra ári, en þar af skýrast 5,6 milljarðar af gjaldfærslu fjármagnstekju- skatt af söluhagnaði Símans og 5 milljarðar af hækkun vaxta- greiðslna þar sem stór flokkur spariskírteina kom til innlausnar í apríl. Að þessum tveimur liðum frátöldum hækka gjöldin um 12,7 milljarða eða 5,4% milli ára. Skatttekjur jukust um 20,8 prósent Novator kjölfestufjár- festir í fimm evrópsk- um símafélögum. BTC fimmfaldast í virði frá einkavæðingu. Novator, eignarhaldsfélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur fjárfest í símafélögum í Búlgaríu, Finnlandi, Grikklandi, Póllandi og Tékklandi fyrir um 160 milljarða króna. Félagið hefur eignast allan hlut Viva Ventures í búlgarska fjarskiptafélag- inu BTC fyrir eitt hundrað milljarða króna að viðbættri endurfjármögnun. Þetta eru ein stærstu kaup Íslendinga erlendis. Fyrir átti Björgólfur um fjórðungshlut í BTC með beinum og óbeinum hætti. Búlgarska ríkið seldi 65 prósenta hlut í BTC til Viva Ventures snemma árið 2004 og fékk um 280 milljónir evra fyrir hlutinn sem nú samsvarar um tuttugu milljörðum króna en afgangurinn var seldur til fjárfesta í gegnum búlgörsku kauphöllina í Sofíu. Björgólfur var, ásamt alþjóðlega fjárfestingarfélaginu Advent International, stærsti fjárfestir- inn í þessum kaupum í gegnum Viva. Verðmæti BTC hefur fimmfaldast frá einkavæðingu félagsins. Novator teygir anga sína víðar á evr- ópskum fjarskiptamarkaði. Félagið tryggði sér fyrir skemmstu rúman fjórðung hlutabréfa í gríska fjarskipta- fyrirtækinu FORTHnet sem er skrásett í grísku kauphöllinni og er stærsti hlut- hafinn. Á félagið nú 26,3 prósent í Forth- net. Ætla má að Novator hafi greitt hátt í þrjá milljarða króna fyrir bréfin. Félagið hefur einnig verið umsvifamikið á finnskum fjarskiptamarkaði í gegnum eignarhald á símafélaginu Saunalahti sem er að renna inn í annað símafélag, Elisa. Elisa verður næststærsta síma- félag Finnlands á eftir Telia Sonera. Novator verður langstærsti hluthafinn í Elisa með um tíu prósenta eignarhlut en markaðsvirði þessa hlutar er um tuttugu milljarðar króna. Novator hefur einnig fjárfest í Netia Mobile í Póllandi og CRa í Tékklandi. Novator á um 70 prósent í pólska fyr- irtækinu, sem er næststærsta símafé- lag Póllands og ætlar að fjárfesta fyrir fimmtíu milljarða króna í þriðju kyn- slóðar neti í Póllandi. Félagið eignaðist CRa í fyrrasumar þegar Björgólfur Thor og fleiri fjárfest- ar keyptu um 72 prósenta hlut. Fjár- festarnir eignuðust síðar félagið að fullu og tóku það af markaði. Hlutur Novators er um 67 prósent í CRa en þar sem félagið er ekki lengur skráð er erfitt að meta markaðsvirði þess. Þó má ætla að eignarhlutur Novators sé um 25 milljarða virði. eggert@frettabladid.is Kaup Björgólfs Thors nema um 160 milljörðum BJÖRGÓLFUR THOR BJÖRGÓLFSSON HEFUR FARIÐ VÍTT OG BREITT Í FJÁRFESTINGUM SÍNUM Í FJARSKIPTAFYRIRTÆKJUM. Í FÉLAGI VIÐ AÐRA NÁÐI HANN ÞÓ EKKI AÐ KAUPA ÍSLENSKA SÍMANN. Evrópski seðlabankinn hækkaði í gær stýrivexti sína um 0,25 stig. Stýrivextirnir standa nú í 2,25 pró- sent og hafa ekki verið svo háir síðan í október árið 2000. Er þetta í samræmi við það sem margir höfðu spáð enda var seðlabanka- stjórinn, Jean-Claude Trichet, búinn að gefa í skyn að vextir yrðu hækk- aðir. Samkvæmt Bloomberg frétta- veitunni reiknar hann samt ekki með röð vaxtahækkana. Þetta sé gert til þess að ná tökum á verðbólgunni. Íslensk fyrirtæki og einstaklingar hafa í aukn- um mæli tekið erlend lán. Þegar vextir í Evrópu hækka eykst greiðslubyrði þeirra lána sem eru í evrum. Greiningardeild KB banka hefur áætlað að hækkun stýrivaxta í Evrópu um eitt prósent auki gjaldeyrisútflæði frá Íslandi um tíu milljarða. Samkvæmt þessu aukast greiðslur frá Íslandi vegna vaxta- hækkunar Evrópska seðlabankans í gær um 2,5 milljarða króna. Eftir klukkan fjögur í dag mun Davíð Oddsson seðlabankastjóri tilkynna hvort og þá hve mikið Seðlabanki Íslands muni hækka stýrivexti hér á landi. Standa þeir nú í 10,25 prósentum. Verð- bólga mælist enn langt fyrir ofan verðbólgumark- mið bankans. Telja greiningadeildir að stýrivext- irnir verði hækkaðir um 0,5 prósent. Seðlabankinn í Evrópu hækkar stýrivexti HSBC, þriðji verðmætasti banki heims, segir að hagnaður fyrir skatta á þriðja ársfjórðungi verði meiri en á sama tíma í fyrra. Samkvæmt nýrri könnun Neytenda- samtakanna og SFR á þjónustugjöldum banka og sparisjóða eru dæmi um allt að 300 prósenta verðmun á sambæri- legri þjónustu milli stofnana. Samkvæmt skýrslu OECD um alþjóðlega þróun efnahagsmála eru horfur almennt taldar góðar. Þrátt fyrir umtalsverða hækkun olíuverðs á þessu ári hefur hagvöxtur í heiminum haldist stöðugur og gert er ráð fyrir að svo verði áfram á næsta ári. MARKAÐSPUNKTAR Tölur miðast við kl. 15:06
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.