Fréttablaðið - 02.12.2005, Page 66
2. desember 2005 FÖSTUDAGUR50
tonlist@frettabladid.is
> popptextinn
The taste of love is sweet
when hearts like our‘s meet
I fell for you like a child
oh, but the fire went wild
I fell in to a burning ring of fire
I went down,down,down
and the flames went higher.
And it burns,burns,burns
the ring of fire
the ring of fire.
June Carter samdi lagið Ring of fire um ást
sína á söngvaranum Johnny Cash.
> Í SPILARANUM HJÁ RITSTJÓRNINNI
Mugison: A Little Trip, Jónsi: Jónsi, KK og Ellen:
Jólin eru að koma, Eminem: Curtain Call - The
Hits og Johnny Cash: Ring of Fire - The Legend of
Johnny Cash.
Belgíska hljómsveitin Deus hefur áhuga
á að halda tónleika hér á landi í mars á
næsta ári. Umboðsmaður sveitarinnar er
um þessar mundir að vinna í málinu, sem
er á frumstigi.
Deus gaf nýverið út sína fjórðu plötu,
sem ber heitið Pocket Revolution. Sveitin
er um þessar mundir í tónleikaferð um
Evrópu til að fylgja plötunni eftir en í
mars verður glufa í dagskránni og þá vilja
liðsmenn hennar nýta tækifærið og halda
tónleika hér á landi.
Deus sló í gegn með sinni fyrstu plötu,
Worst Case Scenario, sem kom út árið 1994.
Þar var m.a. að finna lögin Suds & Soda og
Hotellounge (Be the Death of Me), sem
bæði nutu mikilla vinsælda. Næsta plata,
In a Bar Under the Sea, kom út tveim-
ur árum síðar og þótti heldur myrkari
en frumburðurinn. Á plötunni The Ideal
Crash kvað síðan við léttari og poppaðari
tón en áður. Kom hún út fyrir sex árum
og allar götur síðan hafa aðdáendur Deus
beðið spenntir eftir nýju efni frá þessari
virtu rokksveit.
Deus vill koma til Íslands
Það eru Geiri Sæm
og Tryggvi Hupner
sem spila á Classic
Föstudaginn 2. og laugardaginn 3. des.
Ármúli 5
Tom Waits var spurður í viðtali við
Time Out í sumar hvað hann væri
að hlusta á. „Wu-Tang Clan,“ svar-
aði hann. „En svo er það líka þessi
gaur sem heitir Bob Log. Hefurðu
heyrt um hann? Hann er lítill
strákur, enginn veit hvað hann er
gamall og hann er með hjálm á
hausnum og er með míkrófón inni
í honum og það sést ekki framan
í hann. Hann spilar á gítar. Þetta
er háværasta, skrítnasta tónlist
sem ég hef nokkurn tímann heyrt.
Maður skilur ekki eitt orð sem
hann segir. Svona fólk veitir mér
innblástur.“
Bob Log á sér fjölda aðdáenda
um allan heim og hefur slegið í
gegn bæði vestanhafs og austan og
er til dæmis alger goðsögn í Japan.
Bob Log er mikill gítarsnillingur.
Hann missti reyndar aðra hönd-
ina er hann var stráklingur. Með
hjálp læknavísindanna tókst að
græða á hann apahönd, og þar af
leiðandi er stíll hans mjög sér-
stakur og persónulegur. Á meðan
fætur hans djöflast við trommu-
leik einbeita hendurnar sér að tólf
dollara gíturum og vískýflöskum,
og svo kyrjar Bob kynörvandi
mansöngva í gegnum símtól sem
er haganlega komið fyrir inni í
hjálminum.
Það eru sögur í gangi úti um
allan heim um hver hann sé í raun
og veru og sú nýjasta er að hann
sé meðlimur úr hljómsveitinni
The Strokes. Nú er þessi dular-
fulli náungi kominn til Íslands og
heiðrar okkur með nærveru sinni
á laugardagskvöld á Grand Rokki.
„Við sáum hann fyrst þegar við
vorum að túra í Kanada,“ segir
Sigurður Finnsson, öðru nafni
Siggi Shaker, hristuleikari hljóm-
sveitarinnar Singapore Sling.
„Hann var þá á sviði á undan okkur
í Ottawa og við urðum alveg agn-
dofa. Vorum í hláturskasti allan
tímann. Svo spilaði hann ein þrjú
gigg með Sling á síðustu hljóm-
leikaferð um Bandaríkin og var
þá með tvær gógó-píur með sér
sem heita The Town Bikes. Þetta
var svona fiftís stripparastemn-
ing.“ Bob er reyndar dálítið mikið
fyrir nakin brjóst á sviði og hefur
gert tvö myndbönd - annað heitir
Boobscotch en þar dýfir íturvaxin
dama brjóstinu í viskíglasið hans,
og hitt heitir Clap your boobs sem
útskýrir sig væntanlega sjálft.
En Siggi segir að nekt sé ekkert
endilega partur af tónleikunum.
„Síðast sá ég hann í Japan og þá
var hann búinn að tengja sig við
jólaseríu. Það var mjög fallegt.“
Útgáfufyrirtæki Singapore Sling,
Sheptone, og tískumerkið Dead
standa fyrir innflutningi á Bob
Log og hafa þeir félagar hugsað
sér að koma fleiri tónlistargoðum
til landsins. „Við fengum til dæmis
heimildarmyndina Dig sýnda á
kvikmyndahátíðinni hér í haust,
en hún fjallar um hljómsveitirn-
ar Brian Jonestown Massacre og
Dandy Warhols. Næst á dagskrá er
að fá Brian Jonestown Massacre
til að spila í Reykjavík. Vonandi
gengur það upp sem fyrst.“ Áður
en Bob Log stígur á svið á Grand
Rokki mun pönksveitin Rass rugla
í áhorfendum, þannig að það er
um að gera að skella sér í 12 Tóna
til að redda sér miða. Siggi var
spurður hvort hann hefði fengið
að kíkja undir hjálminn, „Já, en
við gefum ekkert uppi um það,“
svaraði hann og glotti.
- amb
Frekari upplýsingar um Bob Log
er að finna á www.boblog111.
com.
Brjóst, viskí og
flugmannahjálmur
Goðsögnin Bob Log kemur til landsins.