Fréttablaðið - 02.12.2005, Blaðsíða 72
2. desember 2005 FÖSTUDAGUR56
góða slökun!
FRIÐRIK KARLSSON
TÖFRANDI ANDRÚMSLOFT
NÝJA PLATAN ER KOMIN ÚT!
Þeir eru fáir sem kunna þá list betur en Friðrik
Karlsson að fá fólk til að slaka fullkomlega á.
Áttunda platan sem Friðrik sendir frá sér með
slökunartónlist.
Það eina sem þú þarft til að slaka á að loknum
löngum vinnudegi.
KOMIN Í VERSLANIR
Útgáfutónleikar í Mecca Spa Nýbýlavegi 24
Kópavogi Sunnudaginn 4. des kl 3
Boðið verður uppá léttar veitingar.
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR
Rosalega var fínt að komast aðeins í
höfuðborgina í fyrradag. Sofa í alvöru
rúmi, kyssa stelpur og endurnýja græj-
urnar. Það þurfti að kaupa fleiri kjuða,
simbala, strengi og laga fetilinn sem
brotnaði svo eftirminnilega í miðju lagi á
Akureyri. Bakið er líka í fínu skapi enda
kunna bök því illa þegar þau eru þvinguð
í sirkus-fimleikastellingar bara til þess eins
að geta „sofið“ eins og við höfum gert svo
mikið af í „rútunni“.
Ég er hins vegar ekki jafn hress með
að vera að fara til Vestmannaeyja með
Herjólfi. Síðast þegar ég fór með „dall-
inum“ varð ég svo hrikalega sjóveikur
að hamborgarinn sem ég skóflaði í mig
rétt áður kom öfugur upp. Sjóveiki er
það allra versta sem hefur komið fyrir
mig. Hún er verri heldur en þynnkan
sem ég upplifði á mínu fyrsta fylleríi í
klefanum á lögreglustöðinni í Hafnar-
firði. Þá drapst ég niðri í bæ og ældi
allt út sem hægt var að æla út, líka
löggubílinn sem keyrði mig upp á stöð.
Ég kastaði jafnmikið upp í „dallinum“ en
það var samt öðruvísi. Ég spurði sjálfan
mig með grátstafinn í kverkunum hvort ég
gæti ekki bara hoppað út í sjó. Ég svaraði
sjálfum mér játandi en vildi gefa þessu tíu
mínútur. Viti menn, ég var kominn í land
átta mínútum eftir að ég vildi stökkva fyrir
borð. Þegar ég var kominn á þurrt lofaði
ég sjálfum mér að fara ALDREI aftur
um borð í þennan „dall“ og hefur tekist
að standa við það hingað til. Bakkaflug
tekur ekki nema tvær mínútur á meðan
þrír tímarnir sem ég var síðast í „dallinum“
tóku tvö ár. Ég fæ víst ekki að standa við
loforðið mitt því að Herjólfur er það eina
í stöðunni fyrir okkur núna. Það verður að
viðurkennast að aldrei hef ég lagt jafnmik-
ið á mig fyrir rokkið og núna. Egill.
SIGN BLOGGAR FRÁ TÓNLEIKAFERÐ SINNI UM LANDIÐ
Herjólfur snýr maganum á hvolf
Pete Doherty, söngvari hljómsveitar-innar Babyshambles og fyrrverandi
kærasti Kate Moss,
segir ástæðu þess
að Kate hafi hætt
með honum vera
einfaldlega þá
að hann sé ekki
nógu vel vaxinn niður.
,,Ástæðan fyrir sam-
bandsslitunum er
sú að ég hef ekki
efni á að kaupa
handa henni dem-
anta auk þess sem
ég er með lítinn
félaga.“
Leikarinn góðkunni Will Smith mun bráðlega leika í
kvikmynd sem fjallar um
ofurhetju sem upplifir
þá sálarkreppu sem
fylgir því að komast á
miðjan aldur. Mynd-
inni verður leikstýrt
af Jonathan
Mostow. Smith
lauk nýverið
við mynd þar
sem hann
lék á móti
syni sínum
Jaden og
leikkonunni
góðkunnu Tha-
ndie Newton. Sú
mynd, sem feng-
ið hefur heitið
The Pursuit of
Happiness,
kemur út á
næsta ári.
Hótelerfinginn Paris Hilton hefur ákveðið að giftast gríska útgerðar-
manninum Stavros Niarchos á Hawaii
um jólin. Paris hætti með
Grikkjanum Paris Latsis,
sem einnig er útgerðar-
maður, fyrr á þessu ári.
Hefur hún boðið allri
fjölskyldunni til Hawaii
af þessu tilefni. ,,Við
munum öll gista
á Maui um jólin.
Um áramótin
verðum við Nicky
með stóra veislu
í Los Angeles.
Síðan förum við
á skíði eftir ára-
mót,“ sagði Paris
hæstánægð.
Hljómsveitirnar Black Sabbath og Sex Pistols fá inngöngu
í frægðarhöll rokksins í
mars á næsta ári. Einnig
munu Blondie, Lynyrd
Skynyrd og djassistinn
Miles Davis fá inngöngu.
Til þess að koma til greina
í frægðarhöllina þurfa
að vera liðin 25
ár frá útgáfu
fyrstu plötu
listamanns.
Um 700 einstaklingar
í tónlistargeir-
anum velja
þá sem fá
inngöngu í
höllina.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Tom Cruise getur varla beðið eftir að Katie Holmes eignist frumburð
þeirra skötuhjúa. Ástæðan ku vera að
stórstjarnan hlakkar til að skipta á bless-
uðu barninu. Cruise og Holmes ætla
að ganga í það heilaga þegar barnið er
komið í heiminn og Tom hyggst hella
sér af fullum krafti út
í föðurhlut-
verkið. „Þetta
er ótrúlega
spennandi,
ég get varla
beðið eftir
að skipta á
barninu og
fá upplifun-
ina beint í
æð,“ sagði
Cruise við
blaðamenn á
dögunum.