Fréttablaðið - 02.12.2005, Side 86
2. desember 2005 FÖSTUDAGUR70
Sigurganga bókarinnar Myndin
af pabba - saga Thelmu heldur
áfram og nær nú einnig út í heim.
Sænska forlagið Bra Böcker
hefur ákveðið að gefa hana út í
Svíþjóð. „Við seldum hana í gær,“
segir Valgerður Benediktsdóttir á
réttindastofu Eddu, en bókin var
kynnt alþjóðlega á bókamessunni
í Frankfurt. „Við höfum einnig
fengið góð viðbrögð frá Dan-
mörku og Þýskalandi. Þetta er
saga sem hefur alþjóðlega skír-
skotun og gæti í raun gerst hvar
sem er,“ bætir Valgerður við.
Bra böcker gefur einnig út
Kristínu Marju Baldursdóttir
í Svíþjóð ásamt bæði sönnum
sögum og skáldsögum. Útgefandi
hennar tók Thelmu fagnandi,
með orðunum: „Thelma er hug-
rökk og andlega hvetjandi. Mér
líður eins og ég sé að skrifa undir
samning við Nóbelsverðlauna-
hafa.“ Eitt af því sem vakti áhuga
útgefanda var að sögn Valgerðar
hversu miklu bókin hefur breytt
í íslensku samfélagi. „Þær hjá
Stígamótum segja að fleiri þori
að leita til þeirra nú en áður.“
Fleiri hafa hlaðið bókina
lofi. „Forstjóri barnaverndar-
stofu sagði í viðtali við Tímarit
Morgunblaðsins að þegar hann
hefði lesið bókina hefði hann
verið stoltur af að hafa valið sér
þetta ævistarf. Einnig lagði Karl
Sigurbjörnsson biskup út frá
bókinni í messu á sunnudaginn
þegar hann talaði um vonina.“
Telma var kjörin kona ársins
hjá Nýju Lífi og virðist því sem
sorgarsaga hennar eigi eftir að
fá hamingjusaman endi. Valgerð-
ur segir að lokum: „Bókin var
ekki seld vegna þess að hún er
íslensk heldur vegna þess að hún
er góð bók. Það er ánægjulegt að
hún skuli einnig vera að fá vængi
utan landsteinanna.“
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 9
LÁRÉTT
2 félagi 6 tímaeining 8 óhróður 9 gogg 11
skóli 12 dingla 14 lúkar 16 í röð 17 forskeyti
18 fiskur 20 í röð 21 samlagningarmerki.
LÓÐRÉTT
1 nálægð 3 utan 4 misseristal 5 svelgur 7
óstöðuglyndur 10 hamfletta 13 prjónavarn-
ingur 15 formóðir 16 fjör 19 þreyta.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 máti, 6 ár, 8 níð, 9 nef, 11 ma,
12 dilla, 14 káeta, 16 tu, 17 sam, 18 áll, 20
lm, 21 plús.
LÓÐRÉTT: 1 nánd, 3 án, 4 tímatal, 5 iða, 7
reikull, 10 flá, 13 les, 15 amma, 16 táp, 19 lú.
Við stöllurnar vorum á leiðinni út að skemmta
okkur fyrir stuttu. Ein var að klæða sig og hinar að
endurbæta meiköppið áður en haldið væri út. Hver
á fætur annarri kom með innskot um hvað hún
væri með flatan rass, hvað hún þoldi ekki magann
á sér, hvað varirnar væru litlar og hvað hárið væri
úfið. Eftir að hafa skotið nokkrum inn í sjálf áttaði
ég mig á því að þetta var eins og heil sinfónía
kvartana og við vorum allar í bandinu. Ég tók mig
til og ákvað að þegja eitt augnablik og hlusta.
Þetta var hrikalegt, þessar líka svakalegu skutlur
töluðu eins og þær væru litlir og feitir karlar að
reyna að vera kvenlegir.
Við frekari pælingar áttaði ég mig á því að við
gerum þetta allar. Ég er lítið fyrir alhæfingar sem
þessar en ég get svarið það að ég hef aldrei hitt
konu sem er fullkomlega sátt við sjálfa sig. Það
er alltaf eitthvað of þetta og of hitt. Og þessir
komplexar sem við höfum allar eru svo merkilegir
í okkar augum að maður leggur virkilega krók á leið
sína til að enginn annar taki eftir þeim.
Ég get sagt ykkur það að minn helsti komplex er
prófíllinn minn, eða vangasvipurinn. Þetta vanda-
mál á rætur sínar að rekja til dagsins sem ég skoð-
aði mig fyrst vandlega á hlið. Ég hef sennilega verið
um tólf ára gömul þegar atvikið átti sér stað. Alla tíð
síðan hef ég vandað mig við að láta karlmenn sem
mér finnst spennandi aðeins sjá beint framan í mig.
Ef ég sest við borð á kaffihúsi passa ég mig á því
að frá hans sjónarhorni sjái hann mig ekki í prófíl.
Þetta náttúrlega jaðrar við geðveiki.
Það fyndna við þetta allt saman er að fólk sér
ekki svona hluti. Hver heldur þú eiginlega að sitji
og pæli í því hvað einhver sé með fyndinn prófíl? Ef
karlmanni finnst kona falleg setur hann sig sjaldnast
í stellingar og veltir svona hlutum fyrir sér. Nú, og ef
hann gerir það er hann álíka geðveikur og konan
sjálf.
Það er hins vegar staðreynd að
óöryggi skín í gegn hjá fólki. Það
er einmitt sá hlutur sem fólk
tekur eftir. Mér finnst fátt eins
lítið sexí og maður sem er
óöruggur með sjálfan sig og
lætur það sjást.
Oftar en ekki eru það
þessir litlu vankantar sem
manni þykja sjarmerandi. Þess
vegna ætti fólk ekki endalaust
að vera að rembast við að fela
hluti sem hvort eð er enginn tekur
eftir. Það skilar sér nefnilega þannig
að manni finnst manneskjan minna
aðlaðandi fyrir vikið frekar en hitt.
Málið er að vera ánægður með
það sem maður hefur og láta það
sjást. Vitiði til, það virkar!
REYKJAVÍKURNÆTUR HÖRPU PÉTURSDÓTTUR FINNST KONUR VERA MEÐ ALLT OF MARGA KOMPLEXA.
Óöryggi er lítið sexí
Kvikmynd Baltasars Kormáks, A
Little Trip to Heaven, hefur verið
valin til sýningar á Sundance-kvik-
myndahátíðinni sem fram fer í Park
City í Utah dagana 19.-29. janúar.
Það er Sigurjón Sighvatsson sem
framleiðir myndina ásamt Baltasar
en Forest Whitaker og Julia Stiles
leika aðalhlutverkin. Þetta er mikill
heiður þar sem Sundance-hátíðin er
ein sú allra stærsta í kvikmynda-
geiranum. Hún var stofnuð af
hinum heimsfræga kvikmyndaleik-
ara Robert Redford til að styðja við
sjálfstæða kvikmyndagerð en nafn-
ið er einmitt fengið frá einni þekkt-
ustu kvikmynd leikarans, Butch
Cassidy and the Sundance Kid.
A Little Trip to Heaven var frum-
sýnd á Toronto-hátíðinni fyrr á þessu
ári. Síðan þá hefur Baltasar verið
að breyta henni lítillega en myndin
fékk misjafnar viðtökur gagnrýn-
enda í Kanada. Baltasar sér þó ekki
eftir að hafa farið með myndina
á hátíðina því honum fannst mjög
mikilvægt að fá viðbrögð áhorfenda
úr sal. „Það voru hlutir í myndinni
sem ég vildi að kæmu skýrar í gegn.
Við vildum prófa hana á fólki og
finna það á salnum hvernig hann
tæki henni,“ útskýrir Baltasar og
bætir jafnframt við að svona vinnu-
ferli tíðkist erlendis en ekki sé mikil
hefð fyrir þessu hér á landi.
A Little Trip verður sýnd í
„Premier“-flokknum en í honum
eru sýndar myndir sem mikils er
ætlast til af. Í ár verða leikstjórar
á borð við Wim Wenders, Michel
Gondry og Jonathan Demme með
myndir í þessum flokki. „Hafið
var á sínum tíma í World Premier-
flokknum á hátíðinni en aðstand-
endur hennar vildu fá okkur í
þennan flokk og við vildum sjálf-
ir vera í honum,“ segir Baltasar
en hann er fyrsti íslenski leik-
stjórinn sem boðin er þátttaka í
þessum flokki. „Sundance-hátíð-
in er stærsta kvikmyndahátíð
Bandaríkjanna og feikilega öflug
fyrir sölu og kynningu,“ bætir
leikstjórinn við en það var Jeff
Gilmore, yfirmaður hátíðarinn-
ar, sem kom að máli við Sigurjón
eftir frumsýningu myndarinnar
í Toronto og lagði til að hún yrði
einnig sýnd á Sundance-hátíð-
inni.
Kvikmyndin verður frumsýnd
hér á landi 26. desember og segist
leikstjórinn vera spenntur fyrir að
sýna löndum sínum afraksturinn.
Hann segir pressuna ekkert meiri
en venjulega en miklar vænt-
ingar eru bundnar við myndina.
„Það verður gaman að sjá hvernig
Íslendingar bregðast við henni en
myndin er allt öðruvísi en það sem
ég hef áður verið að gera.“
freyrgigja@frettabladid.is
A LITTLE TRIP TO HEAVEN: Í PREMIER FLOKKINN Á SUNDANCE HÁTÍÐINNI
Breytingar á myndinni frá Toronto
BALTASAR OG FOREST WHITAKER Baltasar er fyrsti íslenski leikstjórinn sem boðin er þátttaka í Premier-flokki Sundance-hátíðarinnar en þar verður hann með leikstjórum á borð við Michel
Gondry sem síðast gerði Eternal Sunshine of the Spotless Mind.
HRÓSIÐ
...fær Inga Lísa Middleton fyrir
jóladagatalið Galdrabókina.
Thelmu líkt við Nóbelsverðlaunahafa
[ VEISTU SVARIÐ ]
1 Á flugi til frelsis.
2 Hálft tonn af matvælum.
3 Roger Moore.
THELMA Bók hennar og Gerðar Kristnýjar
verður nú gefin út í Svíþjóð.
DV
o
g H
er
ef
or
d
ste
ikh
ús
b
jóð
a 2
f
1
út
að
b
or
ða
(Sj
á n
án
ar
in
ni
í
bl
að
in
u)
( j
i
i í
l
i
)
Ólafur Ragnar Fékk
bæklinga um leiseraðgerð
Fyrir Eftir
í b
íó
DV2x10 - lesið 1.12.2005 19:30 Page 1