Fréttablaðið - 17.12.2005, Side 2
2 17. desember 2005 LAUGARDAGUR
���������������
����������
�����������
���������
���������������
���������������
�����������������
����������������
�������������
������������������������
����������������������
�����������
�������������
��� ���������������
������ ���
�������������
��������������
�������� ��
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
SVÍÞJÓÐ Brynvarinn peninga-
flutningabíll á vegum Securitas
var rændur skammt fyrir utan
Södertalje í Svíþjóð í gærmorgun.
Bíllinn var sprengdur upp en ekki
er ljóst hvort ræningjarnir höfðu
eitthvað upp úr krafsinu.
Að minnsta kosti tveir grímu-
klæddir menn á tveimur bílum
stöðvuðu peningaflutningabíl-
inn, skutu nokkrum skotum og
neyddu öryggisverðina til að yfir-
gefa flutningabílinn áður en þeir
sprengdu sér leið inn í hann.
Vefútgáfa Dagens Nyheter sagði
í gærmorgun að eldur hefði kvikn-
að í báðum bílum ræningjanna en
þeir yfirgáfu ránstaðinn á þriðja
bílnum. Peningaflutningabíllinn
er gjörónýtur.
Öryggisverðirnir voru fluttir á
sjúkrahús en eru ekki taldir mikið
slasaðir. Talsmaður Securitas
sagði að ekki hefðu verið miklir
peningar í bílnum. Upphæðir sem
fluttar væru í bílum á borð við
þennan hefðu verið minnkaðar
mikið upp á síðkastið.
Ekki er langt síðan annar
peningaflutningabíll á vegum
Securitas var rændur í Svíþjóð.
Í kjölfarið fóru öryggisverð-
ir í verkfall og kröfðust ýmissa
umbóta, til dæmis að peninga-
töskur yrðu útbúnar málningar-
sprautu sem eyðilegði peningana
ef óviðkomandi reyndu að opna
þær. - ghs
Enn eitt vopnað rán framið í Svíþjóð:
Sprengdu sér leið inn í bílinn
SÆNSKA LÖGREGLAN Brynvarinn peningaflutningabíll var rændur fyrir utan Södertalje í
Svíþjóð í gærmorgun. Ekki er ljóst hvort ræningjarnir höfðu eitthvað upp úr krafsinu.
SAMFÉLAGSMÁL Sævar Arnfjörð,
sem búið hefur í tjaldi í Öskjuhlíð
síðustu fimm mánuði, er kominn
í húsaskjól og mun því ekki eyða
jólunum í tjaldinu. Hann fékk
óvænta heimsókn í gærmorg-
un frá Sigursteini Mássyni for-
manni Öryrkjabandalags Íslands.
Honum var svo brugðið við frétt
Fréttablaðsins í fyrradag um
aðstæður Sævars að hann vildi
tjá honum sjálfur að ráðin yrði
bót á högum hans.
„Ég hef látið kanna það og
umsókn þín um íbúðarpláss er
ekki að finna hjá okkur og orsök-
in kann að vera sú að ekki hafi
öll gögn fylgt henni og því hafi
hún fallið úr gildi þar sem hún
var ekki endurnýjuð en það þarf
að endurnýja hverja umsókn
árlega,“ sagði Sigursteinn þegar
Sævar var kominn úr tjaldi sínu
kaldur eftir frostnótt. „Það er nú
forgangsmál að þér verði fundið
húsaskjól svona til bráðabirgða
og síðan vinnum við að því að
finna framtíðarlausn á þínum
málum því fólk á ekki að þurfa
að búa við aðstæður sem þessar,“
sagði Sigursteinn og hýrnaði þá
yfir Sævari.
Ekki var setið við orðin tóm
heldur fóru þeir tvímenningar
á skrifstofu Öryrkjabandalags-
ins þar sem Sævar fyllti út nýja
umsókn. „Heimilisfang? Á ég
ekki bara að skrifa Öskjuhlíð?“
spurði Sævar kankvís þegar hann
var að fylla út umsóknina.
Að því loknu var honum fund-
ið pláss á gistiheimili og gekkst
Öryrkjabandalagið í ábyrgð fyrir
greiðslum. Sigursteinn sagði að
Sævar fengi styrk til að standa
straum af þeim kostnaði. Þangað
fór Sævar svo í gærkvöldi með
sitt hafurtask.
Fleiri en Sigursteinn tóku
við sér vegna fréttarinnar um
Sævar. Valgeir Pétursson, verk-
efnastjóri á ráðgjafarsviði Rík-
iskaupa, er annar þeirra sem
boðist hafa til þess að borga gist-
ingu fyrir Sævar svo hann gæti
notið jólanna innandyra. „Ég hef
stundum látið eitthvað af hendi
rakna fyrir jólin og mér finnst
þetta mjög aðkallandi,“ segir
Valgeir.
Sævar var mjög ánægður
með framgang Sigursteins í
hans málum og klökknaði þegar
hann heyrði af viðbrögðum Val-
geirs. „Ég er ekki vanur svona,
ég reyndi að finna einhverja leið
í kerfinu en svo er ég orðinn svo
lúinn að ég hef bara einangrað
mig og finnst ég ekki lengur til-
heyra þessu samfélagi,“ sagði
hann.
jse@frettabladid.is
Tjaldið tekið niður
Formaður Öryrkjabandalagsins brást skjótt við vanda Sævars sem er nú kom-
inn á gistiheimili meðan unnið er að framtíðarlausn. Starfsmaður Ríkiskaupa
hefur boðist til að borga gistingu fyrir hann yfir jólin.
KRISTÍN JÓNSDÓTTIR HÚSNÆÐISFULLTRÚI OG SÆVAR ARNFJÖRÐ Kristín leiddi Sævar í genum umsóknina á skrifstofu Öryrkjabandalagsins í
gær. Síðan var gengið frá því að finna honum gistingu á gistiheimili meðan mál hans eru í vinnslu.
SPURNING DAGSINS
Guðbrandur, er komið annað
hljóð í strokkinn?
„Já, í haust var hálfgert tómahljóð en
það er óðum að hverfa.“
Mjólkurframleiðsla hefur tekið kipp að undan-
förnu og ekki er lengur hætta á mjólkurskorti
eins og útlit var fyrir í lok september. Guð-
brandur Sigurðsson er forstjóri Mjólkursam-
sölunnar.
VIÐSKIPTI Stjórn Orkuveitu Reykja-
víkur hefur ákveðið að óska eftir til-
boði frá fjárfestum í þrettán prósenta
hlut fyrirtækisins í Jarðborunum.
Þetta var samþykkt einróma á stjórn-
arfundi í gær og rennur tilboðsfrest-
urinn út 10. janúar á næsta ári.
Stærsti hluthafinn í Jarðbor-
unum, Atorka Group, hefur sem
kunnugt er lagt fram yfirtökutilboð
í Jarðboranir og stefnir að því að
taka félagið af markaði. Ákvörð-
un OR er talin setja yfirtökuáform
Atorku í uppnám.
„Það hefur komið fram hærra
verðmat en tilboðið hljóðaði upp
á og þá þótti mönnum ekki annað
hægt en að láta á það reyna hvort
einhverjir væru tilbúnir að greiða
hærra verð en boðið hafði verið,“
segir Alfreð Þorsteinsson, stjórnar-
formaður Orkuveitunnar.
Greiningardeild KB banka hefur
gagnrýnt tilboðsverðið frá Atorku
og mælt með því að hluthafar í Jarð-
borunum gangi ekki að tilboðinu.
Bankinn telur að bréf í Jarðborun-
um séu um fjórðungi verðmeiri en
tilboðsverðið hljóði upp á.
Ef Orkuveitan hefði gengið að
yfirtökutilboði Atorku hefði hún
fengið um 1,3 milljarða króna fyrir
hlut sinn, sem greitt er með hluta-
bréfum í Atorku. Innan stjórnar OR
eru menn ekki á eitt sáttir við að
Atorka reiði fram hlutabréf í sjálfu
sér í skiptum fyrir bréf í Jarðbor-
unum. Á móti vill Orkuveitan ekki
festast inni í Jarðborunum með
óvirkan hlut ef Atorka nær ráðandi
meirihluta, það er meira en 67 pró-
sent atkvæða. - eþa
JARÐBORANIR Yfirtaka Atorku Group á
Jarðborunum tók óvænta stefnu í gær.
Yfirtökuáform Atorku Group á Jarðborunum taka óvænta stefnu:
Orkuveitan leitar eftir tilboðum
KJARAMÁL Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar samþykkti í
gær með yfirgnæfandi meirihluta
nýjan kjarasamning við borgina en
meðlimir stéttarfélagsins Eflingar
höfðu áður samþykkt sama samn-
ing.
Um 40 prósent félagsmanna
greiddu atkvæði og reyndust 94
prósent þeirra samþykkir en aðeins
fimm prósent á móti. Samningur-
inn tryggir talsverða kjarabót fyrir
þá sem lægst hafa launin og hefur
hann víða mælst vel fyrir. ■
Starfsmannafélag Reykjavíkur:
Samningar
samþykktir
KÁRAHNJÚKAR Langflestir útlending-
anna sem starfa á Kárahnjúkum fara
heim um jólin. Oddur Friðriksson,
yfirtrúnaðarmaður á Kárahnjúkum,
segir að útlendingarnir hafi verið
sendir heim smám saman og þeir
síðustu verði sendir heim með breið-
þotu frá Egilsstöðum um helgina.
„Helmingurinn af útlendingunum
fer heim í jólafrí. Eftir verða rúm-
lega 300 manns af 1.200. Einhverjir
af Kínverjunum fara heim en marg-
ir þeirra halda áfram að vinna því
að það eru ekki jól hjá þeim. Það er
reynt að hafa eins fámennt á Kára-
hnjúkum og hægt er,“ segir hann.
Íslensku verktakafyrirtækin loka
starfsemi sinni á Kárahnjúkum um
og eftir helgina og hafa lokað fram
yfir áramót. - ghs
Útlendingar á Kárahnjúkum:
Heim í jólafrí
um helgina
FASTEIGNIR Vísitala íbúðaverðs á
höfuðborgarsvæðinu í nóvem-
ber hækkaði um 3,1 prósent frá
október og hefur aldrei verið
hærri. Kemur það fram í saman-
tekt Fasteignamats ríksins.
Þetta er meiri hækkun en sést
hefur undanfarna mánuði og
kemur á óvart: „Þetta er töluvert
umfram væntingar markaðs-
aðila sem og Greiningardeildar
en teikn höfðu verið á lofti um
minnkandi spennu á markaðin-
um auk þess sem heldur hafði
dregið úr hækkunarhraða fast-
eignaverðs á síðustu mánuðum,“
segir í hálf fimm fréttum KB
banka. Bankinn býst við að dragi
úr umsvifum á fasteignamarkaði
á næstunni.
Sérbýli hækkaði um fimm pró-
sent á milli mánaða en fjölbýli
minna eða um 2,5 prósent.
Vísitalan hefur hækkað um
tæp fimm prósent síðastliðna
þrjá mánuði, 8,5 prósent síðast-
liðna sex mánuði og 35,5 prósent
á síðustu tólf mánuðum.
- eþa
Íbúðaverð í sögulegu hámarki:
Fasteignir
hækka í verði
Á KÁRAHNJÚKUM Helmingur erlendu
starfsmannanna fer heim um jólin. Breið-
þota fer frá Egilsstöðum um helgina.
SJÁVARÚTVEGUR Stjórnlausum
veiðum úr kolmunnastofninum
lauk í gær þegar undirritaður
var samningur strandríkjanna
um stjórn veiðanna en Íslend-
ingar eru aðilar að samkomu-
laginu.
Íslendingum verður heim-
ilt að veiða 352 þúsund tonn á
næsta ári en heildarveiðistofn-
inn er um 2 milljónir tonna. Er
um mikinn áfanga að ræða að
mati Landssambands íslenskra
útvegsmanna enda hafa gegnd-
arlausar veiðar úr stofninum
undanfarin ár stefnt honum í
hættu.
- aöe
Samningur um kolmunnann:
Stjórnlausum
veiðum lokið