Fréttablaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 4
4 17. desember 2005 LAUGARDAGUR GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 16.12.2005 Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur 62,16 62,46 Sterlingspund 110,07 110,61 Evra 74,57 74,99 Dönsk króna 10,007 10,065 Norsk króna 9,346 9,402 Sænsk króna 7,855 7,9018 Japanskt jen 0,5344 0,5376 SDR 89,65 90,19 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 104,7986 BRUSSEL, AP Leiðtogar Evrópu- sambandsríkjanna 25 nálguðust í gærkvöld samkomulag um lang- tímafjárlög sambandsins, vitandi að í húfi væri trúverðugleiki sam- bandsins sem stofnunar. Hillti undir að hnúturinn sem fjárlaga- deilan var komin í leystist með því að Bretar féllust á að greiða meira til sameiginlegra sjóða sambandsins gegn því að landbún- aðarstyrkjakerfi þess yrði stokk- að upp. Deilan skipti aðildarríkjunum í tvær fylkingar. Fyrir annarri fór brezki forsætisráðherrann Tony Blair en franski forsetinn Jacques Chirac fyrir hinni. „Við erum á góðri leið að finna lausn,“ sagði Jean-Claude Junc- ker, forsætisráðherra Lúxem- borgar, í fundarhléi í höfuðstöðv- um ráðherraráðs ESB í Brussel í gærkvöld. „Nú þurfa sendinefnd- irnar bara meiri tíma til að melta tillögurnar,“ sagði hann með vísun til nýjustu málamiðlunartillagna Breta, sem gegna ESB-formennsk- unni til áramóta. Stjórnarerind- rekar á fundinum höfðu áður sagt að það gæfi tilefni til bjartsýni að brezka formennskan skyldi leggja fram nýja málamiðlunartillögu. Fulltrúar Breta höfðu varað við því að þeir myndu sleppa því að hafa fyrir því að leggja fram nýja slíka tillögu ef samkomulag virtist of fjarri. Sænski forsætisráðherrann Göran Persson var hins vegar ekki eins bjartsýnn. Hann mat líkurnar á samkomulagi „50/50“. „Ég er örlít- ið svartsýnni en ég var í gær,“ sagði hann. Kjarni deilunnar snýst um að þrýst er á að skornar verði niður endur- greiðslur sem Bretar hafa fengið úr sameiginlegum sjóðum ESB frá því Margaret Thatcher tókst að semja um þær fyrir tveimur ára- tugum. Á móti krefjast Bretar þess að landbúnaðarstykjakerfi ESB verði stokkað upp ekki seinna en 2008-2009 (það gleypir að óbreyttu 43% allra útgjalda ESB) en Frakk- ar eru mjög andsnúnir því. Náist ekkert samkomulag er óvíst að það takist heldur á næstu miss- erum. Það myndi grafa enn frek- ar undan trúverðugleika ESB, en hann varð fyrir áberandi hnekki fyrr í ár er kjósendur í Frakk- landi og Hollandi höfnuðu stjórn- arskrársáttmála sambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslum. audunn@frettabladid.is Sátt í fjárlagadeilu sögð vera í nánd Á leiðtogafundi Evrópusambandsins í Brussel í gær var unnið hörðum höndum að því að ná sáttum um langtímafjárlög sambandsins fyrir tímabilið 2007-2013. Lausn var sögð í nánd. BLAIR OG CHIRAC Forsætisráðherrar Bretlands og Frakklands ræða saman á leiðtogafundinum í Brussel. Fréttablaðið/AP SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur sam- þykkt að víkka út rannsóknina á morðinu á Rafik Hariri, fyrrver- andi forsætisráðherra Líbanons. Hins vegar var ekki samþykkt að setja á laggirnar alþjóðlegan dómstól í tengslum við málið, eins og líbönsk stjórnvöld óskuðu eftir. Sýrlendingar hafa verið ásakaðir um morðið á Hariri, sem ráðinn var af dögum í febrúar síðastliðn- um, en þeir hafa ávallt neitað allri aðild að tilræðinu. Öryggisráðið lýsti í fyrrakvöld yfir áhyggjum sínum af því hversu litla samvinnu Sýrlendingar hafa sýnt við rannsókn málsins. ■ Morðið á Rafik Hariri: Umfang rann- sóknar aukið JOHN BOLTON Sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ gagnrýndi sýrlensk stjórnvöld á fundi öryggisráðsins í vikununni. FJÖLMIÐLAR Árvakur hf., útgáfufé- lag Morgunblaðsins, hefur keypt helmingshlut í Ári og degi ehf., sem gefur út Blaðið. Ritstjóri Blaðsins segir að í kjölfar breyt- inganna blási Blaðið til sóknar. Kaupin voru samþykkt á hluthafafundi Árs og dags í gær, en í nýrri stjórn eiga sæti tveir fulltrúar Árvakurs og tveir frá Ári og degi. „Þetta styrkir Blaðið mjög í allri samkeppni, innviðirnir verða styrkari og við blásum væntanlega til sóknar á næst- unni,“ segir Karl Garðarsson, framkvæmdastjóri Árs og dags og ritstjóri Blaðisins. Hann gerir ráð fyrir því að dreifing blaðsins verði aukin og hugað að morg- undreifingu. „Fyrir blaðið er þetta mjög gott skref. Við munum leita að sjálfsögðu leita eftir sam- legðaráhrifum blaðanna og nýta okkur ákveðna hluti frá Morgun- blaðinu.“ Karl segir félögin hins vegar vera aðskilin og ritstjórnir blaðanna líka. „En við prentum áfram hjá Morgunblaðinu sem er stór kostnaðarliður í rekstri dagblaða. Við munum skoða hluti eins og ritstjórnarkerfi og síðan má skoða að samstarf um ljós- myndun að hluta.“ Þá segir Karl einnig koma til greina samstarf á sviði auglýsingasölu. „En það er hlutur sem á alveg eftir að skoða.“ Í nýrri stjórn Árs og dags eiga sæti Sigurður G. Guðjónsson stjórnarformaður, Hallgrímur B. Geirsson varaformaður stjórnar og svo Guðbrandur Magnússon og Steinn Kári Ragnarsson. - óká Ritstjóri Blaðsins boðar sókn í kjölfar eigendaskipta á útgáfufélagi þess: Mogginn kaupir hálft Blaðið FORSVARSMENN BLAÐSINS Sigurður G. Guðjónsson stjórnarformaður og Karl Garðarsson ritstjóri greindu starfsmönnu Blaðsins frá breyttu eignarhaldi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILLI MATVÖRUMARKAÐUR Stjórn Neyt- endasamtak- anna telur óásættanlegt að matvöru- verð á Íslandi sé 42 prósent- um hærra en að meðaltali í E SB -löndun- um 15 og krefst þess að stjórn- völd grípi til aðgerða til að verð og fram- boð á matvæl- um verði sambærilegt við aðrar þjóðir. Neytendasamtökin vilja að toll- ar verði felldir niður á innfluttum búvörum og innflutningskvótar aflagðir, virðisaukaskatttur og vörugjöld og tollar á aðrar mat- vörur verði lækkaðir eða felldir niður, viðskiptahættir á smásölu- markaði verði rannsakaðir og virk samkeppni tryggð. - ghs Neytendasamtökin: Viðskiptahætt- ir rannsakaðir JÓHANNES GUNNARSSON Telur verð á matvöru vera óásættanlegt. FRÍVERSLUN Utanríkisráðherra und- irritaði á fimmtudag fyrir Íslands hönd víðtækan fríverslunarsamn- ing EFTA-ríkjanna við Suður- Kóreu þar sem meðal annars er kveðið á um fulla fríverslun með almennar framleiðsluvörur. Búist er við að samningurinn færi Íslendingum mikinn ávinn- ing þar sem allir tollar munu falla niður af mikilvægum útflutnings- vörum, svo sem sjávarafurðum, vélbúnaði og ýmsum plastvörum. Suður-Kórea er þriðja stærsta hagkerfi í Asíu og árið 2004 námu viðskipti landsins við EFTA um 167 milljörðum íslenskra króna. - sh Fríverslun við Suður-Kóreu: Vörutollar felldir niður HEILBRIGÐISMÁL Æðaskurðlækn- ingafélag Íslands fordæmir harðlega uppsögn Stefáns E. Matthíassonar, yfirlæknis æða- skurðlækningadeildar við Land- spítala-háskólasjúkrahús sem sagt var upp störfum vegna óhlýðni við yfirmenn á spítalanum, Telur félagið að með þessari ákvörðun sé mikið og stórt skarð höggvið í æðaskurðlækningar hér á landi enda Stefán með mikla reynslu og unnið farsælt starf um árabil. Er skorað á stjórnend- ur spítalans að endurskoða þessa ákvörðun og þess farið á leit við Læknafélagið og ráðherra heil- brigðismála að þeir hlutist til um farsæla lausn á málinu. ■ Æðalækningafélag Íslands: Fordæma upp- sögn Stefáns
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.