Fréttablaðið - 17.12.2005, Page 8
8 17. desember 2005 LAUGARDAGUR
Ungur maður sýknaður:
Yfirheyrður
löngu eftir árás
VEISTU SVARIÐ
1 Hvað hefur Sævar Arnfjörð búið lengi í tjaldi í Öskjuhlíð?
2 Hvar er leiðtogafundur Evrópusam-bandsins haldinn?
3 Hvað heitir ríkisskattstjóri?
Skíði, skór, bindingar
15% pakkaafsláttur
������������
��������������
��������������
�������������������������������������������
������������ �������� ���
������������������������
����� ��������������
� �����������������������������������
�������������������������
���������������
����������
������������
��������������
�������������������
DÓMSMÁL 21 árs gamall maður
hefur verið sýknaður af árás á
mann á svipuðum aldri fyrir utan
skemmtistað í Reykjavík vorið
2003. Fallið var frá ákæru á hendur
tveimur, en hópur manna réðist á
einn sem hlaut margvísleg meiðsli.
Héraðsdómur gerir nokkr-
ar athugasemdir við rannsókn
lögreglu. Fram kemur að sá lamdi
hafi gefið lögreglu upp símanúmer
forsprakka árásarinnar, en ekki
hafi tekist að hafa upp á notanda
númersins. Þá var sá sem ákærð-
ur var ekki yfirheyrður fyrr en
fjórtán mánuðum eftir árásina.
- óká
STJÓRNMÁL Árni Magnússon félags-
málaráðherra bar dóm Hæstaréttar
yfir Valgerði Bjarnadóttur fyrrver-
andi jafnréttisstýru undir samráð-
herra sína á ríkisstjórnarfundi í gær.
Árni kveðst taka dóminn mjög
alvarlega, en Hæstiréttur dæmdi
Valgerði sex milljóna króna bætur
þar eð félagsmálaráðherra hefði
brotið á rétti hennar samkvæmt
stjórnsýslulögum.
„Ég er satt best að segja miður
mín yfir þessum dómi. Ég tali mig
vera að vinna þetta mál samkvæmt
lögum og reglum sem um slík mál
gilda og eftir bestu samvisku og
sannfæringu. Það hefði aldrei komið
til greina af minni hálfu að brjóta
vísvitandi á mínum starfsmanni,
hvað þá að brjóta lög. Þannig að þessi
niðurstaða kom mér mjög mikið á
óvart.“
Árni kveðst hafa búist við því að
Hæstiréttur staðfesti dóm héraðs-
dóms þar sem hann var sýknaður
af kröfum Valgerðar. „Þetta er hins
vegar niðurstaðan og ég að sjálfsögðu
horfist í augu við hana , tek mark á
henni og þarf að læra af henni. Og
það þurfa fleiri að læra af henni. Það
gildir um okkur öll sem erum í þess-
ari stöðu að dómurinn er leiðbeinandi
um aðstæður sem þessar.“
Árni kveðst hafa óskað Valgerði
velfarnaðar í sínum störfum. „Hún
hafði fullnaðarsigur í málinu og ég
viðurkenni þann sigur. Henni voru
dæmdar bætur sem hún fær að sjálf-
sögðu greiddar,“ segir félagsmála-
ráðherra. - jh
Félagsmálaráðherra ræðir hæstaréttardóm yfir sér á ríkisstjórnarfundi:
Kveðst miður sín yfir dómnum
ÁRNI MAGNÚSSON FÉLAGSMÁLARÁÐ-
HERRA „Ég er satt best að segja miður mín
yfir þessum dómi.“
DÓMSMÁL Guðbjartur J. Sigurðs-
son, 54 ára gamall Reykvíkingur,
hefur verið dæmdur í fimm ára
fangelsi fyrir tilraun til mann-
dráps. Guðbjartur skar á háls
leigubílstjóra í vesturbæ Reykja-
víkur aðfaranótt þriðjudagsins
27. júlí í fyrra. Hann var einnig
dæmdur til að greiða leigubíl-
stjóranum rúmlega 1,3 milljón-
ir króna í bætur og annað eins í
málskostnað.
Guðbjartur var á fylleríi með
þremur öðrum en átti að borga
fyrir bílinn á áfangastað. Þess í
stað skar hann bílstjórann á háls.
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
sem kveðinn var upp í gær kemur
fram að skurðurinn hafi verið 18
sentímetra langur og sáralitlu
hafi mátt muna að áverkinn yrði
lífshættulegur.
Dómurinn segir árásina hafa
verið tilefnislausa og valdið
leigubílstjóranum verulegu tjóni,
sérstaklega á sálinni, en einnig
líkama. „Ekki er neitt vitað hvað
ákærða gekk til með verknaði
sínum en ljóst er að hann átti ekk-
ert sökótt við árásarþola. Ráða
má af rannsókn á geðheilbrigði
ákærða að miklar hegðunarbreyt-
ingar verða á honum samfara
áfengisneyslu,“ segir í dómnum.
Ásgeir Elíasson, leigubílstjór-
inn sem fyrir árásinni varð, seg-
ist að vonum feginn að dómur
hafi farið á þennan veg í málinu.
„Þetta sýnir að kerfið virkar,“
segir hann og kveður trú sína á
réttarkerfið hafa styrkts. „En ég
var orðinn beggja blands í rest-
ina en var þó búinn að tönnlast
á því allan tímann að réttlætið
myndi sigra að lokum.“ Ásgeir
segir sér ganga ágætlega að fóta
sig eftir árásina enda hafi hann
notið og njóti enn stuðnings bæði
fjölskyldu og góðra vina. „Og það
skiptir öllu. Maður er farinn að
stunda vinnu með góðum vinnu-
félögum.“
Þegar Guðbjartur framdi
verknaðinn stóð hann fyrir utan
leigubifreiðina en félagi hans inni
í bílnum kallaði til hans að hann
ætti að borga. Tveir voru farnir
inn. Ásgeir sá Guðbjart nálgast
með hönd í vasa og renndi niður
bílrúðunni. Svo leit hann af honum
en fann þá skyndilega hita leggja
niður háls sér og niður á brjóst-
kassa um leið og undrunarsvip-
ur kom á þann sem í bílnum sat.
Ásgeir lagði hönd yfir sárið, stökk
út úr bílnum og hljóp að nærliggj-
andi húsi og kallaði til lögreglu.
Guðbjartur lagði hins vegar á
flótta á tveimur jafnfljótum.
olikr@frettabladid.is
Dæmdur í
5 ára fangelsi
Maður sem skar leigubílstjóra á háls í vesturbæ
Reykjavíkur í fyrrasumar hefur verið dæmdur
í fimm ára fangelsi. Bílstjórinn slapp naumlega.
Í HÉRAÐSDÓMI REYKJAVÍKUR Guðbjartur J. Sigurðsson, sem í gær var dæmdur í fimm ára
fangelsi fyrir manndrápstilraun, sést hér yfirgefa réttarsal Héraðsdóms Reykjavíkur þegar
þar var fyrst réttað í málinu í byrjun ársins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÍNA Að minnsta kosti 35 manns
fórust og á annan tug eru slasaðir
eftir að eldur kom upp í fjögurra
hæða sjúkrahúsi í norðausturhluta
Kína í fyrrakvöld.
Fjöldi fólks reyndi að bjarga
sér með því að henda sér út um
glugga sjúkrahússins til að forða
sér frá eldinum. Öll fórnarlömbin
voru sjúklingar á sjúkrahúsinu.
Yfir 220 þúsund brunar hafa
orðið víða um landið á fyrstu ell-
efu mánuðum ársins og hafa þeir
orðið um tvö þúsund manns að
bana. Eldsvoðum hefur þó fækkað
á milli ára. ■
Stórbruni á sjúkrahúsi í Kína:
Sjúklingar brunnu
Í LJÓSUM LOGUM Yfir 220 þúsund brunar
hafa orðið í Kína á árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP