Fréttablaðið - 17.12.2005, Síða 12
17. desember 2005 LAUGARDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI:
Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI:
550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA:
Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871
Útgáfuhóf
Fjölmenni var í útgáfuteiti sem Hannes
Hólmsteinn Gissurarson prófessor efndi
til á heimili sínu við Hringbraut (í húsi
Kjartans Gunnarssonar) á fimmtudags-
kvöld í tilefni þess að þriðja bindið,
lokabindið, í ævisögu Halldórs Laxness
er komið út. Fyrsta bindið olli sem
kunnugt er heitum deilum sem ekki sér
fyrir endann á, en annað bindið, sem
kom út í fyrra, mæltist
almennt vel fyrir. Líklegt
er að sama gildi um loka-
bindið, sem er efnisríkt
og stórfróðlegt. Leynir sér
ekki að höfundurinn er
mikill aðdáandi Laxness.
Bindin þrjú eru viðamesta
samfellda ritið um ævi og
verk Laxness, sannkallað
afrek, og enginn sem vill
kynna sér sögu skáldsins
getur horft framhjá því.
Áhrifamenn
Hannes Hólmsteinn hefur í tímans rás
stofnað til kynna við ýmsa áhrifamenn
í þjóðfélaginu og ekki vantaði að í
boðinu væru ráðherrar og þingmenn,
svo sem Björn Bjarnason, Einar K.
Guðfinnsson og Birgir Ármannsson.
Þarna var líka Davíð Oddsson, for-
maður bankastjórnar Seðlabankans,
og fyrirrennari hans, Birgir Ísleifur
Gunnarsson, enda situr
prófessorinn í bankaráðinu.
Forstjórar fyrirtækja virtust
fleiri fyrrverandi en núverandi,
flestir af svokölluðu Kolkrabba-
kyni, og segir það kannski sitt
um þjóðfélagsþróunina. Ekki
voru þarna eintómir sjálf-
stæðismenn því meðal þeirra
sem samfögnuðu Hannesi
voru Samfylkingarfélagarnir
Margrét S. Björnsdóttir og
Eiríkur Bergmann Einarsson og
frægasti hægrikrati landsins, Kolbrún
Bergþórsdóttir blaðamaður. Og þarna
var réttlætið holdi klætt: Jón Steinar
Gunnlaugsson hæstaréttardómari.
Trúnaður?
Dagbækur Kristjáns Eldjárn, fyrrver-
andi forseta, eru efniviður nýrrar bókar
Guðna Th. Jóhannessonar sagnfræð-
ings. Það hefur komið ýmsum stjórn-
málamönnum á óvart að forsetinn
skuli hafa skráð nákvæmlega ýmis
einkasamtöl um viðkvæm efni. Tala
sumir þeirra um að þetta hafi átt að
vera algjör trúnaðarsamtöl. Þorsteinn
Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra,
sagði á fundi á Sólon á miðvikudaginn
að það kæmi sér ekki á óvart ef birting
þessara gagna myndi í framtíðinni hafa
áhrif á það hvernig menn töluðu við
forseta Íslands við stjórnarmyndanir.
gm@frettabladid.is
Í Blaðinu á fimmtudaginn er
viðtal við varaþingmann Sam-
fylkingarinnar þar sem hann
kvartar yfir því að frjálslyndi
nútímans sé að færa okkur „á vit
miðalda“. Þetta segir maðurinn
jafnframt því sem hann hampar
kirkjunni og kristnum gildum.
Nú er kannski ekki hægt að ætl-
ast til þess að fólk sem tjáir sig
í opinberri umræðu hafi vit á því
sem það er að tala um, hvað þá ef
stjórnmálamenn eru á ferð. Í allri
vinsemd vil ég þó benda mann-
inum á að sækja þó ekki væri
nema 0-áfanga í miðaldafræði
og ætti það að nægja til þess að
sýna honum fram á að hann átti
marga skoðanabræður á þeim
tíma, mun fleiri en frjálslynt fólk
nú á dögum.
Önnur villa sem varaþing-
maður gerir að grundvelli sinna
kristnu gilda kemur beint frá
kristnum íhaldsmönnum í Banda-
ríkjunum sem halda því fram að
vegið sé að jólunum með þessum
nútímalegu áherslum á fjölmenn-
ingarsamfélagið. Nú megi ekki
óska fólki lengur gleðilegra jóla
heldur verði að segja „gleðileg-
ar hátíðir“. Sá siður mun raunar
einkum vera tekinn upp af tilits-
semi við gyðinga, sem halda upp á
Hanukkah á svipuðum tíma. Það
er hins vegar greinilegt að krata-
foringinn óttast það að sú tillits-
semi muni jafnvel ná til fleiri
semíta. Það má auðvitað ekki.
Málsvörn varaþingmanns-
ins fyrir eignarhaldi kristinna
manna á jólunum er hins vegar á
misskilningi byggð. Það er ekki
hægt að stela frá fólki því sem
það hefur aldrei átt og jólin hafa
aldrei verið neitt sérstaklega
kristin hátíð.
Sá siður að halda vetrarsól-
stöðuhátíðir er ævaforn. Nor-
ræna orðið jól og enska orðið yule
voru t.a.m. notuð yfir slíkar miðs-
vetrarhátíðir löngu fyrir kristni-
töku. Í norrænum ritum er talað
um að „drekka jól“ sem bendir til
veisluhalds. Ekki er ljóst að slík
hátíð hafi haft trúarlegt innihald
í heiðnum sið en það er þó líklegt,
miðað við það sem við þekkjum
til annars staðar. Í Rómaveldi var
t.d. frá fornu fari haldin hátíð til
heiðurs guðinum Satúrnusi frá
17. til 23. desember. Þessi hátíð
var nefnd Saturnalia. Í íslenskum
miðaldaritum var Satúrnus kall-
aður Freyr og sérstætt að hugsa
til þess að jólin í þeirri mynd sem
við þekkjum þau hafi upphaflega
verið Freyshátíð.
Með landvinningum sínum í
austri á 1. öld f. Kr. komust Róm-
verjar í kynni við trúarbrögð þar
sem slíkar hátíðir voru tengdar við
fæðingu guðs. Þar er merkastur
persneski guðinn Míþras en hann
átti að hafa fæðst 25. desember.
Slíkt er auðvitað eðlilegt þegar
um sólguð er að ræða, að hann sé
talinn fæðast við vetrarsólstöður.
Meðal áhangenda Míþrasar voru
keisararnir Nero og Commodus.
Míþras var tignaður víða í Róma-
veldi þar til kristni var lögtekin
þar á 4. öld. Aurelianus Rómark-
eisari, sem var við völd 270-275,
vildi sameina þessar sólstöðuhá-
tíðir Saturnalia-hátíðinni. Úr varð
fæðingardagur sólarinnar ósigr-
andi (dies natalis Solis invicti)
sem haldinn var hátíðlegur 25.
desember.
Á hinn bóginn höfðu kristnir
menn ekki ákveðnar hugmynd-
ir um fæðingardag Jesú og ekki
þótti sérstök ástæða til að halda
upp á hann. Ýmsir dagar voru þar
nefndir til, ekki síst á vordögum
enda mátti ráða af guðspjöllun-
um að Kristur hefði fæðst þá.
Þegar kristni varð að ríkistrú
hjá Rómverjum yfirtók kirkjan
hins vegar ýmsa forna helgidaga.
Þar á meðal var fæðingarhátíð
frelsarans sem tengd var hátíða-
höldunum á degi sólarinnar. Á 5.
öld var 25. desember opinberlega
lýstur fæðingardagur Jesú af
hálfu kirkjunnar í Róm. Þá hófst
sá miðaldasiður að kristnir menn
tóku að einoka jólin.
Jólahátíðin er því sambland af
fornri trú á persneskan sólguð,
hátíð helgaðri rómverskum frjó-
semisguð og fæðingarhátíð sól-
arinnar en allir þessir þræðir
tengdust síðan í hátíð sem helguð
er spámanni af gyðingaættum. En
áður en sú hátíð kom til sögunnar
drukku Íslendingar jól og munu
líklega gera það um langan aldur.
Þessi þversögn, sem mætti jafn-
vel kalla „kontrapunkt í lífinu“,
truflar líklega fæsta sæmilega
umburðarlynda kristna menn í
því að halda upp á jólin ásamt
ásatrúarfélaginu, sem vissulega
á þó meiri hefðarrétt til þessarar
hátíðar. Forvitnilegt verður að sjá
hvaða illsku kristnir íhaldsmenn
á Íslandi reyna næst að heimfæra
upp á fjölmenningarsamfélag-
ið. Er það kannski móðgun við
kristna trú að kenna börnum að til
séu fleiri jólasveinar en ameríski
coca-cola sveinninn?
Þegar kristna íhaldströllið
stal jólunum
Í DAG
FJÖLMENNINGAR-
SAMFÉLAG
SVERRIR JAKOBSSON
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
Mest lesna
vi›skiptabla›i›
G
al
lu
p
kö
nn
un
f
yr
ir
36
5
pr
en
tm
i›
la
m
aí
2
00
5.
Nýleg skýrsla Samkeppniseftirlitsins um verð á matvörum á Norðurlöndum miðað við nokkur önnur lönd í Evrópu hefur vakið miklar umræður hér vegna þess hve Ísland
sker sig úr varðandi hátt verð á þessum vörum. Þetta er reyndar
ekki í fyrsta skipti sem þessar staðreyndir eru lagðar á borðið
og vekja mikla athygli, því árið 2001 gáfu samkeppnisyfirvöld
út ítarlega skýrslu um matvörumarkaðinn sem sýndi að verð hér
var yfirleitt hærra en í viðmiðunarlöndunum.
Það hefur löngum verið talað um að það séu íslensku landbún-
aðarvörurnar fyrst og fremst sem valda þessum mikla verðmun
en þarna kemur líka fleira til, svo sem mikil samþjöppun versl-
ana á matvörumarkaði á síðustu árum. Sú þróun hefur reyndar
líka átt sér stað annars staðar á Norðurlöndum en þar virðist
vera meira jafnræði með keppinautum en hér, þar sem sama
fyrirtækjasamstæða er með um og yfir helming af matvöru-
markaðnum, og því er ábyrgð forráðamanna Haga mikil í þess-
um efnum. Það er líka horft mjög til þess hvernig helstu keppi-
nautar á matvörumarkaði haga sér og uppákomur sem urðu fyrr
á þessu ári ná auðvitað engri átt. Það sér hver heilvita maður að
fyrirtækin eru að gefa með mjólkinni þegar lítrinn er seldur á
aðeins nokkrar krónur. Auðvitað notfæra neytendur sér þetta,
en þegar upp er staðið tapa allir á svona tiltækjum. Það er hins
vegar þakkarvert að lágvöruverslanir á matvörumarkaði og
fleiri verslanakeðjur sem hafa teygt anga sína víða um land eru
með sama verð á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi. Þetta hefur
skipt sköpum fyrir landsbyggðarfólk eins og dæmin sanna, svo
sem eins og á Ísafirði.
Það er líka horft mjög til þess hvernig helstu keppi-
nautar á matvörumarkaði haga sér og uppákomur
sem urðu fyrr á þessu ári ná auðvitað engri átt.
Almennt er viðurkennt að íslenskar landbúnaðarvörur séu góðar, þótt verðið mætti vera lægra. Á móti kemur að margir eru reiðubúnir að greiða hærra verð fyrir vörur sem framleidd-
ar eru hér innanlands heldur en innfluttar vörur. Við Íslendingar
verðum að geta brauðfætt okkur og vera ekki upp á aðra komnir
með nauðsynlegustu matvæli. Það er hlutur stjórnvalda að sjá
til þess. Þau verða líka að hafa kjark til þess að veita landbúnað-
inum réttmætan stuðning, líkt og gert er í löndum nær og fjær.
Menn býsnast oft yfir stuðningi við landbúnaðinn hér á landi,
sem stundaður er við erfiðar aðstæður uppi undir heimskauts-
baug, en ef grannt er skoðað er stuðningurinn meiri hlutfalls-
lega í sumum af mestu landbúnaðarlöndum álfunnar. Stuðning-
ur við landbúnað í Frakklandi er ótrúlega mikill, því samkvæmt
nýjum tölum eru allt að níutíu prósent af meðaltekjum franskra
bænda beinir styrkir. Þeir eru að vísu mjög mismunandi eftir
greinum og auðvitað fá þeir stærstu og ríkustu mest í sinn hlut.
Albert Mónakófursti er þar ekki undanskilinn með tugi milljóna
í landbúnaðarstyrk á hverju ári.
Meginatriðið í þessu öllu er að matvöruverð hér verður að
lækka, neytendur sætta sig ekki við að einstakar vörur hér séu
margfalt dýrari en í nágrannalöndunum.
SJÓNARMIÐ
KÁRI JÓNASSON
Mikill verðmunur er á neysluvörum
hér og í nágrannalöndunum.
Matarverð verður
að lækka
Komdu í spennandi heim
afþreyingar og upplýsinga
Smelltu þér á www.ogvodafone.is, farðu í næstu verslun Og Vodafone
eða hringdu í 1414 fyrir nánari upplýsingar.
24.900 kr.
MOTOROLA V3 RAZR
SÍMI