Fréttablaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 16
17. desember 2005 LAUGARDAGUR
Það eru ekki bara íslenskar konur
sem eru fallegar. Garðar Thor
telst flestum mönnum mynd-
arlegri. Sumir myndu kannski
láta sér það nægja, en Garðar
Thor er ýmsum öðrum mann-
kostum búinn. Hann
syngur líka. Og svo
hefur hann eitthvað
verið að leika. Fyrst
bar á honum þegar
hann var einungis
14 ára gamall og lék
Nonna í þáttunum
um Nonna og Manna,
og heillaði hann þar
marga íslensku jafnt
sem þýsku unglings-
stúlkuna. Þegar mest
var fékk hann 30.000
aðdáendabréf á viku
víðs vegar að. Fimm
árum síðar lék hann
í sinni fyrstu kvik-
mynd, í hlutverki
Max í Karlakórnum
Heklu. Lítið hefur
farið fyrir honum
á leiklistarsviðinu
síðan, en Karlakór-
inn gaf þó einhverja
vísbendingu um það
sem koma skyldi.
Helsta áhugamál
Garðars í gegnum
tíðina hefur verið
söngur, en einnig fer
hann mikið í leikhús.
Einar Örn Einarsson,
sem lék Manna, segir
að Garðar hafi mikið
velt því fyrir sér
hvora leiðina hann
ætti að fara. Hann
hafi náð að sameina
þessar tvær ástríður
í óperunni, þar sem
nauðsynlegt er að
geta bæði leikið og sungið. Garð-
ar hefur einnig verið hestamaður
frá blautu barnsbeini, og segja
vinirnir að oft hafi verið erf-
itt að ná tali af honum þar sem
hann virtist eyða öllum stundum
í hesthúsinu. Hestamennskan
hjálpaði honum við að fá hlut-
verk Nonna, þar sem þættirnir
kröfðust þess meðal annars að
hann riði berbakt.
Einar segist sjálfur hafa verið
hestfælinn og hæfni Garðars á
hestbaki hafi oft komið sér vel.
Eitt sinn voru þýskir blaðamenn
viðstaddir tökur þáttanna, þegar
hestur Einars tók á rás og Einar
hékk fastur í hnakknum. „Garðar
kom ríðandi eins og Don Johnson
á fleygiferð og stillti hestinn,
þannig að ég komst slysalaust af
baki.“ Hann segir þá félaga hafa
verið eins og bræður frá því að
þeir kynntust við gerð þáttanna,
þeir hafi til að mynda alltaf þurft
að eiga eins hluti, sem Einar segir
stundum hafa reynst sér dýrt því
Garðar sé afar nýjungagjarn.
Garðar er næstyngstur af
fjórum systkinum, en öll hafa
þau stundað nám við Söngskól-
ann þar sem faðir þeirra kennir.
Langafi Garðars var sænskur
prentari sem flutti til Íslands
um þarsíðustu aldamót. Hér
giftist hann íslenskri konu af
Zöega-ætt. Ekki er vitað hvort að
Cortes-ættin tengist hinum sögu-
fræga Spánverja Hérnan Córtes,
sem lagði undir sig Mexíkó á 16.
öld. Afi Garðars var Axel Cortes
iðnaðarmaður, en tveir af sonum
hans lögðu stund á tónlist. Annar
þeirra var Óskar, fiðluleikari og
einn af stofnendum Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands, og hinn var
Garðar Cortes eldri, faðir Garð-
ars. Móðir Garðars er hin enska
Krystýna Cortes sem starfar
sem konsertpíanisti sem hefur
stöku sinnum spilað undir með
syni sínum. Garðar á tvær eldri
systur, Sigrúnu Björk kennara og
Nönnu Marínu óperusöngkonu.
Hann á einnig yngri bróður, Aron
Axel, sem enn er við nám í söngs-
kólanum.
Kennari Garðars í Söng-
skólanum var svo hrifinn af
nemanda sínum að hann sá til
þess að Garðar fengi hálfsárs
ókeypis kennslu í Royal Acad-
emy í Lundúnum. Garðar hélt
svo áfram námi þar og tók próf
að tveimur árum
liðnum. Einnig hefur
hann lært í Tónlist-
arháskólanum í Wild-
bad í Vínarborg, og
sækir reglulega tíma
til einkakennara síns
í Danmörku, hins
pólskættaða André
Orlowicz.
Hann söng nýlega
á Rossinihátíðinni í
Wittbad í Þýskalandi,
sem var hljóðrituð og
mun bráðlega vera
gefin út á geisladisk.
Hann söng í heilt ár
í Óperudraugnum í
Lundúnum.
Garðar var alinn
upp í trú, og á plötu
sinni þakkar hann
Guði sitt daglega
brauð. Eins og margir
söngvarar biður hann
gjarnan bænir áður
en hann fer á svið.
Hann er þó langt frá
því að vera ofstækis-
fullur, honum hefur
frekar verið lýst
sem viðkvæmum
og trúuðum. Eivör
Pálsdóttir kynntist
Garðari þegar faðir
hans kenndi henni
söng. Hún segir að
hann sé: „Góður
strákur og rólegur,
ekki mikill djamm-
ari og þykir vænt um
fjölskylduna.“
Þau munu troða upp saman á
jólatónleikum Langholtskirkju í
dag og á morgun.
Garðar ku vera mikill nam-
migrís, eins og vinir hans orða
það, og spyr gjarnan þegar hann
komi í heimsókn hvort ekki sé til
eitthvert súkkulaði.
Einnig er hann mikill áhuga-
maður um farsíma og hafa sumir
sagt í gríni að hann sé líklega
að teygja sig í símann framan á
umslagi plötunnar. Sé reynt að
finna galla á Garðari segja vinir
hans, rétt eins og þeir séu að
kynna hann í atvinnuviðtali, að
hann sé helst til of mikill full-
komnunarsinni, og slái hann eina
feilnótu finnist honum allt lagið
ónýtt. Af fyrirmyndum Garðars
detta mönnum helst í hug stór-
tenórinn Placido Domingo. Faðir
hans telur víst að Garðar verði
föðurbetrungur á söngsviðinu og
Einar segir að hann hafi allt með
sér: „Nema kannski útlitið.“
MAÐUR VIKUNNAR
Nammigrís og
góður strákur
GARÐAR THOR CORTES
H blaelgar ›
Hefurflúsé›
DV í dag
Baksíða
Bls. 22–23
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 289. TBL. – 95. ÁRG. – VERÐ KR. 295
LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005
Helgarblað
Samhent systkini
Bls. 52–53
Jenný Ósk Jensdóttir og SteingrímurRandver Eyjólfsson eru í ein-lægu viðtali við HelgarblaðDV. „Þegar ég byrjaði, þábjóst ég ekki við að verða ást-fangin,“ segir Jenný meðal annars. Ungaparið ætlar að eyða helginni úti á landi.Litla dúllan, Thelma Maríana, er í pössun.Ný fjölskylda fæddist á Skjá einum. Bls. 66, 67 & 68
Einkaviðtal
FRAMBJÓÐANDINN & FEGURÐARDÍSIN
Drottningin
kemur heim
Bls. 4
„Hann verðurgóðurstjúpi“
FYRSTA ÍSLENSKA SJÓNVARPSFJÖLSKYLDAN
Játningar
sambýliskonu kannabiskóngs
Tók aleiguna
og barði mig
Bls. 10
DEMANTADROTTNINGSINDRA SINDRASONAR
KEYPTI AFMÆLIS-
GJÖFINA SJÁLF
SÆRÚN MISSTI FÆTURNA Í BÍLSLYSIVERRA AÐ MISSA BARNIÐ MITT
Bls. 32–33
D
V sam
sett m
ynd H
ari
?
EINKAVIÐTAL V
DV
Bachelorinn heldur
jól með Jenný og
Thelmu litlu
FYRSTA ÍSLENSKA
SJÓNVARPSFJÖLSKYLDAN
EINKAVIÐTAL
helgar augl 16.12.2005 19:21 Page 3