Fréttablaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 37
17. desember 2005 LAUGARDAGUR36
Komdu í spennandi heim
afþreyingar og upplýsinga
Smelltu þér á www.ogvodafone.is, farðu í næstu verslun Og Vodafone
eða hringdu í 1414 fyrir nánari upplýsingar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
3
06
37
12
/2
00
5
16.900 kr.
MOTOROLA V360v
SÍMI
KOMDU Í SPENNANDI HEIM
AFÞREYINGAR OG UPPLÝSINGA
Sendið Jóni spurningar. Netfangið
er: jongnarr@frettabladid.is
KÆRI JÓN Jón Gnarr ræður lesendum Fréttablaðsins heilt á aðventunni >
Hæ.
Ég er 17 ára strákur og bý á Akur-
eyri. Ég er að pæla í að gefa mömmu
og pabba jólagjöf í fyrsta skipti. (Áður
hef ég bara gefið þeim eitthvað drasl
sem ég bjó til í skólanum). En núna
ætla ég að gera eitthvað alvöru. Ég
var að pæla, hvað finnst þér að ég
eigi að gefa þeim dýra gjöf? Ég á
14.700 kall. Veistu um eitthvað ódýrt
sem lítur út fyrir að vera dýrt?
Helgi
Sæll, Helgi
Þetta er góð spurning. Ég mundi
veðja á 3-5.000. En til að auka verð-
gildi gjafarinnar er tilvalið að hafa
hana persónulega. Alls ekki gefa
þeim eldhúsáhöld eða slíkt. Eiga
þau eitthvað sameiginlegt áhuga-
mál? Hlýir inniskór eru líka tilvalin
gjöf. Mjög vinaleg. Svo er hægt að
gefa þeim eitthvað fyndið eins og til
dæmis bók fyrir eldri borgara sem
heitir Árin eftir sextugt. Ég fer oft í
Kirkjuhúsið til að kaupa gjafavör-
ur. Þar er fullt af svona sætu dóti.
Þú getur farið og látið taka fallega
mynd af þér og gefa þeim. Það er
svo margt sem þú getur gert. Gangi
þér vel. Og ekki gleyma að skrifa
fallegt kort. Það er mörgþúsund
króna virði.
Bið að heilsa norður!
Blessaður, Jón
Takk fyrir góðar greinar og flott
viðtöl. Við hjónin erum í Fíladelfíu-
söfnuðinum. Við erum með vanda-
mál sem okkur langar að bera undir
þig. Við eigum dóttur sem er sex ára.
Jólin eru fyrir okkur tíminn þar sem
við minnumst fæðingar Jesú krists.
Okkur finnst báðum jólasveinninn
vera ein stór lygi til þess gerð að
leiða athyglina frá kærleiksboðskap
Jesú. Stelpan hefur til dæmis mikið
meiri áhuga á jólasveininum heldur
en Jesú. Mig langar að segja henni
að jólasveinninn sé ekki til en kona
mín er ósammála mér. Hún vill ekki
særa hana. Ég skil það en finnst jóla-
sveinninn vera svo mikil hræsni og
ég á mjög erfitt með að ræða við
stelpuna um hann. Nú hefur þú oft
tjáð þig um svona mál. Hvað finnst
þér? Og takk fyrir skrifin þín. Guð gefi
þér gleðileg jól.
Jói
Blessaður, Jói.
Já, þú segir nokkuð. Ég myndi
ekki hafa neinar áhyggjur af þessu.
Mér finnst að þú ættir ekki að eyði-
leggja þetta fyrir henni. Getur þú
ekki ýjað að því við hana að jóla-
sveinninn vinni fyrir Jesús? Sex ára
barn getur kannski ekki alveg skilið
hver Jesús er. En ef þú kynnir hann
fyrir henni, biður með henni og
segir henni sögur af honum þá á
hún örugglega eftir að geta byggt
upp samband við hann. Passaðu
þig á að þröngva ekki trú þinni
upp á hana. Ekki gera þetta leiðin-
legt. Ef Jesús er það góða sem býr
innra með okkur þá kynnir þú hann
betur með því að vera þolinmóður
og góður við konuna þína og dótt-
ur heldur en að hrópa nafn hans í
sífellu. Það er mikið af Jesú í dóttur
þinni, hvort sem hún veit það eða
ekki, og með því að hugsa vel um
hana ertu að hugsa vel um hann.
Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur
gleðileg jól.
Einu sinni varst þú með útvarps-
þátt á einhverri stöð og varst oft að
spila „hellaðan“ rússneskan dúdda
eða einhvern sem var alltaf að rappa
eitthvað kjaftæði og var frekar sorrý
gaur manstu hvað hann heitir? ég er
búin að vera með ann í heilanum!
Plís help me!
Hellý
Sæl, Hellý.
Þessi rússneski og hellaði gaur
heitir Il Mitch. Þú finnur allt um hann
á http://www.illmitch.com
Njóttu vel og gleðileg jól!
Sæll, Jón
Ég ætla að hætta að reykja um
áramótin. Ég er búin að reykja í 30
ár. Ég er oft búin að reyna að hætta
en það hefur aldrei tekist nema í
nokkra daga. Ég er búin að prófa allt;
nikótíntyggjó, plástra, námskeið og
bara allt. Mér datt í hug að þú gætir
hjálpað mér. Ég er opin fyrir öllu.
Elín
Sæl, Elín
Flott hjá þér. Ég hætti að reykja
fyrir nokkrum árum. Ég var líka
búinn að reyna allt mögulegt en
ekkert gekk. Ég hætti og fór að nota
nikótíntyggjó, 4 mg. Það dugði í 3
mánuði, þá fór ég að reykja aftur
en hætti samt ekki að nota tyggjóið.
Og ég reykti alltaf eins og ég ætl-
aði að gleypa sígarettuna, svo mikil
var nautnin. Það sem fékk mig til að
hætta var heilsufarshræðsluáróð-
ur. Ef þú reykir þá ertu að minnka
lífslíkur þínar umtalsvert og lífsgæði.
Mig langar að vera eins hraustur og
mögulegt er þegar ég verð gamall.
Ég hef tekið eftir því að gamalt fólk
sem reykir ekki er yfirleitt heilsu-
hraustara en gamalt fólk sem reykir.
Þú ert búin að reykja svo lengi að
það eru að verða miklar líkur á því
að þú fáir einhverja ógeðslega sjúk-
dóma og sért búin að eyðileggja í
þér hjartað og æðarnar. Reykinga-
menn þjást af mæði og eiga erfitt
með hreyfingu og fitna því líka
auðveldlega. Hvort viltu heldur
fara niður í bæ með barnabörnun-
um þínum og sýna þeim endurnar
eða fá þau í heimsókn þar sem þú
liggur máttfarin upp á spítala? Þitt
er valið. Og fyrir utan það er orðið
svo yfirgengilega hallærislegt og
lúðalegt að reykja. Það er ekki
einu sinni notalegt lengur. Það má
hvergi reykja inni orðið þannig að
fólk er norpandi úti eins og rónar.
Fyrir utan allt þetta ertu að styrkja
tóbaksframleiðendur. Þú getur gerst
styrktarforeldri barns í þriðja heim-
inum frá áramótum og styrkt það
með sömu upphæð og það kostar
þig að reykja. Lifðu heil.
Sæll Jón
Ég á í rosalegum erfiðleikum með
að komast í jólaskap og hef pínulitlar
áhyggjur af þessu. Getur þú ekki bent
mér á einhverja góða jólamynd og
góðan jóladisk sem kemur þér alltaf
í hátíðarskap?
Kær kveðja
Steingrímur
Sæll, Steini.
Jólamyndin er It´s a Wonderful
Life. Hún er yndisleg. Svo er National
Lampoon’s Christmas Vacation líka
frábær. Ég á tvo góða diska sem ég
pakka alltaf niður með jóladótinu.
Það er jólasiskurinn Gleðilega jólahá-
tíð með Gylfa Ægis og Gerði og Jólin
hennar ömmu. Þegar „Jólasveinn á
leið í land“ byrjar að óma þá eru jólin
framundan hjá mér. Vonandi finnur
þú jólaskapið þitt. Gleðileg jól!
Jón
Netforsala í bíópartí leikstjór-
ans Quentin Tarantino í stóra sal
Háskólabíós þann 30. september
hefst á mánudag.
Forsalan fer fram á iceland-
filmfestival.is og á midi.is. Miða-
verð er 3.400 krónur auk 150
króna miðagjalds. Sýndar verða
þrjár kvikmyndir sem Tarantino
velur úr einkasafni sínu og mun
hann sjálfur vera á staðnum allan
tímann, kynna myndirnar og
spjalla um þær við gesti. Fyrsta
myndin byrjar klukkan 21.00 og
er búist við að dagskráin standi
yfir til klukkan þrjú um nóttina.
Tilkynnt verður í síðasta lagi 27.
desember hvaða myndir verða
sýndar en þetta verða allt mynd-
ir sem hafa mótað Tarantino sem
kvikmyndagerðarmann.
Þennan sama dag hefst almenn
miðasala í partíið. Fer hún fram í
verslunum Skífunnar í Reykjavík,
BT á Akureyri og Selfossi og á ice-
landfilmfestival.is og midi.is. ■
Forsala í bíópartí
TARANTINO Leikstjórinn heimsfrægi kemur
aftur hingað til lands á milli jóla og nýárs.