Fréttablaðið - 17.12.2005, Side 47
17. desember 2005 LAUGARDAGUR
Hinar vinsælu
dönsku bókahillur
komnar aftur
Tekk - Kirsuberja - Hlynur
Hringið og biðjið um mynda- og verðlista
Laugavegi 2 - 101 Reykjavík - Sími 552 1103 - www.jurtaapotek.is
Töfrar
Húðolía
Hágæðaolía með
upplífgandi ilm, sem mýkir
og endurnærir húðina.
Pétur Þór opnar sýningu í Mublu
Nýbýlavegi 18 í dag kl. 16.
����������������
��������������������������������
�����������������������������������������������
�������������������������������������������������������������
��������������������
���������������������������������
�
��
��
�
���
��
��
��
��
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Kokk2x10DAGBLAUGL011205.pdf 6.12.2005 23:07:45
Nonni GULL
17. desember
Askasleikir heimsækir Þjóðminja-
safnið kl. 11.
Jólahrollur í hádeginu - Hreinn
Vilhjálmsson les úr bók sinni Bæj-
arins verstu í Þjóðmenningarhúsinu
kl. 12.15
Í Jólaþorpinu kl. 14 leika hljóðfæra-
leikarar úr Lúðrasveit Tónlistaskólans
í Hafnarfirði. Jólasveinninn, Bjössi
Bolla og Grýla kíkja í heimsókn.
Jólatónsproti Sinfóníuhljómsveitar
Íslands slær taktinn í Háskólabíó kl.
14 og 17.
Jólatónleikar Óperuskórsins í
Reykjavík hefjast í Aðventkirkjunni v.
Ingólfsstræti í Reykjavík kl. 16.
Kvennakór Garðabæjar og Sinfóníu-
hljómsveit áhugamanna halda
saman jólatónleika í Seltjarnarnes-
kirkju sem hefjast kl. 17.
Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju
kl. 20 og 23. Auk kórsins syngja Gra-
dualekór Langholtskirkju, Eivör
Pálsdóttir, Garðar Thór Cortes og
Ólöf Kolbrún Harðardóttir.
á jóladöfinni }
Steinþór Jónsson, hótelstjóri
á Hótel Keflavík, er aðal-
jólasveinninn þar um slóðir.
Hann veitir þeim fría gistingu
og morgunverð sem versla
í Reykjanesbæ fyrir 14.800
krónur.
„Mig langaði að gefa eitthvað til
samfélagsins í tilefni jólanna,“
segir Steinþór brosandi og upp-
lýsir að þetta sé fimmta aðvent-
an í röð sem hann bjóði þeim fría
gistingu eina nótt sem versli hjá
fyrirtækjum í Reykjanesbæ fyrir
14.800 krónur. Fyrirkomulagið
verði æ vinsælla og þótt það séu
um 500 herbergi í boði sem dreifist
yfir aðventuna sé yfirleitt uppbók-
að fyrir fram. „Þetta hefur vakið
eftirtekt enda vitum við ekki til að
þetta sé gert neins staðar annars
staðar í heiminum. Við tókum ekki
við pöntunum fyrr en í nóvember
en fólk byrjaði að hringja strax í
vor. Sumir eru farnir að líta á þetta
sem fastan lið í jólaundirbúningn-
um,“ segir hann og lýsir aðdrag-
andanum nánar.
„Við vildum sýna þeim sem
eru með verslun og þjónustu hér
í bænum stuðning. Að öðru leyti
er ekki um neitt samstarf að ræða
og við fáum ekki greiðslur neins
staðar frá. Það er eitt af því sem er
svo skemmtilegt að þetta er ekta
jólagjöf til þeirra sem njóta. Flest-
ir geta fundið eitthvað sem hentar
þeim að gera fyrir sitt samfélag
og ef allir leggja sitt af mörkum
er hægt að áorka svo miklu. Það er
samstaðan sem er svo mikilvæg.“
segir Steinþór að lokum. ■
Café Iðnó er áfast Hótel Keflavík og þar er
rekinn kínverski veitingastaðurinn Jia Jia.
Í kjallara hótelsins er svo líkamsræktarsalur.
Jólaglaðningur til
samfélagsins
Steinþór hótelstjóri er hollur sínum heimabæ. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
18. desember
Hurðaskellir heimsækir Þjóðminja-
safnið kl. 11.
Jólahrollur í hádeginu - Guðrún
Eva Mínervudóttir les úr bók sinni
Yosoy - Af líkamslistum og hugarvíli
í hryllingsleikhúsinu við Álafoss í
Þjóðmenningarhúsinu kl. 12:15.
Í jólaþorpinu kemur kór Flens borg-
arskólans fram kl. 14. og Grýla
og Gluggagægir ganga í kringum
jólatréð ásamt góðum gestum úr
Ávaxtakörfunni.
Sópransöngkonan Björg Þórhalls-
dóttir, píanóleikarinn Árni Heiðar
Karlsson og fiðluleikarinn góðkunni
Hjörleifur Valsson bregða á leik
og skapa alvöru jólastemningu með
flutningi á jólalögum úr ýmsum
áttum í Norræna húsinu kl. 17.
Stórtónleikar til styrktar geðsviði
Reykjalundar verða haldnir í Fríkirkj-
unni í Reykjavík kl. 17.
Kvennakór Garðabæjar og Sinfón-
íu -hljómsveit áhugamanna halda
saman jólatónleika í Seltjarnarnes-
kirkju. Tónleikarnir hefjast kl. 17.
Jóla og aðventutónleikar Kamm-
er kórs Reykjavíkur verða haldnir í
Grensáskirkju og hefjast kl. 20
Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju
kl. 20. Auk kórsins syngja Gradu-
alekór Langholtskirkju, Eivör
Pálsdóttir, Garðar Thór Cortes og
Ólöf Kolbrún Harðardóttir.