Fréttablaðið - 17.12.2005, Page 47

Fréttablaðið - 17.12.2005, Page 47
 17. desember 2005 LAUGARDAGUR Hinar vinsælu dönsku bókahillur komnar aftur Tekk - Kirsuberja - Hlynur Hringið og biðjið um mynda- og verðlista Laugavegi 2 - 101 Reykjavík - Sími 552 1103 - www.jurtaapotek.is Töfrar Húðolía Hágæðaolía með upplífgandi ilm, sem mýkir og endurnærir húðina. Pétur Þór opnar sýningu í Mublu Nýbýlavegi 18 í dag kl. 16. ���������������� �������������������������������� ����������������������������������������������� ������������������������������������������������������������� �������������������� ��������������������������������� � �� �� � ��� �� �� �� �� C M Y CM MY CY CMY K Kokk2x10DAGBLAUGL011205.pdf 6.12.2005 23:07:45 Nonni GULL 17. desember Askasleikir heimsækir Þjóðminja- safnið kl. 11. Jólahrollur í hádeginu - Hreinn Vilhjálmsson les úr bók sinni Bæj- arins verstu í Þjóðmenningarhúsinu kl. 12.15 Í Jólaþorpinu kl. 14 leika hljóðfæra- leikarar úr Lúðrasveit Tónlistaskólans í Hafnarfirði. Jólasveinninn, Bjössi Bolla og Grýla kíkja í heimsókn. Jólatónsproti Sinfóníuhljómsveitar Íslands slær taktinn í Háskólabíó kl. 14 og 17. Jólatónleikar Óperuskórsins í Reykjavík hefjast í Aðventkirkjunni v. Ingólfsstræti í Reykjavík kl. 16. Kvennakór Garðabæjar og Sinfóníu- hljómsveit áhugamanna halda saman jólatónleika í Seltjarnarnes- kirkju sem hefjast kl. 17. Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju kl. 20 og 23. Auk kórsins syngja Gra- dualekór Langholtskirkju, Eivör Pálsdóttir, Garðar Thór Cortes og Ólöf Kolbrún Harðardóttir. á jóladöfinni } Steinþór Jónsson, hótelstjóri á Hótel Keflavík, er aðal- jólasveinninn þar um slóðir. Hann veitir þeim fría gistingu og morgunverð sem versla í Reykjanesbæ fyrir 14.800 krónur. „Mig langaði að gefa eitthvað til samfélagsins í tilefni jólanna,“ segir Steinþór brosandi og upp- lýsir að þetta sé fimmta aðvent- an í röð sem hann bjóði þeim fría gistingu eina nótt sem versli hjá fyrirtækjum í Reykjanesbæ fyrir 14.800 krónur. Fyrirkomulagið verði æ vinsælla og þótt það séu um 500 herbergi í boði sem dreifist yfir aðventuna sé yfirleitt uppbók- að fyrir fram. „Þetta hefur vakið eftirtekt enda vitum við ekki til að þetta sé gert neins staðar annars staðar í heiminum. Við tókum ekki við pöntunum fyrr en í nóvember en fólk byrjaði að hringja strax í vor. Sumir eru farnir að líta á þetta sem fastan lið í jólaundirbúningn- um,“ segir hann og lýsir aðdrag- andanum nánar. „Við vildum sýna þeim sem eru með verslun og þjónustu hér í bænum stuðning. Að öðru leyti er ekki um neitt samstarf að ræða og við fáum ekki greiðslur neins staðar frá. Það er eitt af því sem er svo skemmtilegt að þetta er ekta jólagjöf til þeirra sem njóta. Flest- ir geta fundið eitthvað sem hentar þeim að gera fyrir sitt samfélag og ef allir leggja sitt af mörkum er hægt að áorka svo miklu. Það er samstaðan sem er svo mikilvæg.“ segir Steinþór að lokum. ■ Café Iðnó er áfast Hótel Keflavík og þar er rekinn kínverski veitingastaðurinn Jia Jia. Í kjallara hótelsins er svo líkamsræktarsalur. Jólaglaðningur til samfélagsins Steinþór hótelstjóri er hollur sínum heimabæ. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 18. desember Hurðaskellir heimsækir Þjóðminja- safnið kl. 11. Jólahrollur í hádeginu - Guðrún Eva Mínervudóttir les úr bók sinni Yosoy - Af líkamslistum og hugarvíli í hryllingsleikhúsinu við Álafoss í Þjóðmenningarhúsinu kl. 12:15. Í jólaþorpinu kemur kór Flens borg- arskólans fram kl. 14. og Grýla og Gluggagægir ganga í kringum jólatréð ásamt góðum gestum úr Ávaxtakörfunni. Sópransöngkonan Björg Þórhalls- dóttir, píanóleikarinn Árni Heiðar Karlsson og fiðluleikarinn góðkunni Hjörleifur Valsson bregða á leik og skapa alvöru jólastemningu með flutningi á jólalögum úr ýmsum áttum í Norræna húsinu kl. 17. Stórtónleikar til styrktar geðsviði Reykjalundar verða haldnir í Fríkirkj- unni í Reykjavík kl. 17. Kvennakór Garðabæjar og Sinfón- íu -hljómsveit áhugamanna halda saman jólatónleika í Seltjarnarnes- kirkju. Tónleikarnir hefjast kl. 17. Jóla og aðventutónleikar Kamm- er kórs Reykjavíkur verða haldnir í Grensáskirkju og hefjast kl. 20 Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju kl. 20. Auk kórsins syngja Gradu- alekór Langholtskirkju, Eivör Pálsdóttir, Garðar Thór Cortes og Ólöf Kolbrún Harðardóttir.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.