Fréttablaðið - 17.12.2005, Side 61
17. desember 2005 LAUGARDAGUR24
����������� �����
��� ������ ����������
VISSIR ÞÚ
...að jólasveinninn á rætur sínar að
rekja til fornu hafnarborgarinnar Lycian
í Patara?
...að í dag er Patara partur af Tyrklandi?
Það þýðir að jólasveinninn er tyrknesk-
ur.
...að jólasveinninn hét Nikulás.
...að Nikulás var af ríkum ættum en varð
fljótlega þekktur fyrir ótrúlega gjafmildi
og góðmennsku?
...að frægasta sagan af Nikulási segir frá
því þegar hann bjargaði þremur stúlkum
úr ánauð.
...að það gerði hann með því að gefa
þeim heimamund svo að þær gætu
gifst.
...að hann gaf þeim heimamundinn
undir nafnleynd? Hann henti peninga-
poka inn um glugga til stúlknanna í
skjóli nætur.
...að þegar hann lést var hann jarðaður
í Myra?
...að Nikulás varð fljótlega tekinn í dýrl-
ingatölu og hét þá Heilagur Nikulás?
...að á miðöldum var Heilagur Nikulás
einn elskaðasti dýrlingurinn?
...að Heilagur Nikulás átti sinn dýrlinga-
dag 6. desember?
...að við siðaskiptin var farið að halda
upp á dýrlingadag Nikulásar á sama dag
og jólabarnsins, 25. desember?
...að svo virðist sem Nikulás hafi aldrei
látist?
...að árið 1773 kom hann með Hollend-
ingum til Ameríku undir dulnefninu
Sinter Klass?
...að árið 1823 fór jólasveinninn í sína
fyrstu skorsteinaferð?
...að árið 1860 hóf Nikulás að byggja
verksmiðju á norðurpólnum til að fram-
leiða leikföng?
...að verksmiðjan var vígð árið 1880 og
fyrsti listinn yfir þæg og óþekk börn
prentaður?
...að árið 1939 fæddist frægasta hreindýr
jólasveinsins, Rúdólfur?
...að í dag getur enginn sannað eða
afsannað tilvist jólasveinsins?
Guðný Halldórsdóttir kvikmynda-
leikstjóri á sér afar sérstæðan uppá-
haldsskemmtistað.
„Sá skemmtistaður sem er í uppá-
haldi hjá mér er Hlégarður í Mosfells-
sveit. Þangað hef ég farið á ball síðan ég
var tveggja ára gömul, og þaðan hef ég
aldrei farið út sorgmædd,“ segir Guðný.
Guðný hefur farið í Hlégarð á jóla-
skemmtanir síðan hún var lítil hnáta
og fór síðast fyrr í þessum mánuði.
„Þar hittir maður alltaf skemmti-
legt fólk, og það er eiginlega eini
skemmtistaðurinn sem ég hef stund-
að reglulega síðan ég byrjaði að tala,“
segir Guðný.
UPPÁHALDSSTAÐURINN:
Aldrei sorgmædd í Hlégarði
HLÉGARÐUR ER UPPÁHALDSSKEMMTISTAÐURINN
HENNAR GUÐNÝJAR HALLDÓRSDÓTTUR, EN ÞAR HEFUR
HÚN SKEMMT SÉR SÍÐAN HÚN BYRJAÐI AÐ TALA.
Um 150.000 lesendur
18%
38%
Yfir 111% fleiri lesendur
að atvinnublaði
Fréttablaðsins!
Samkvæmt nýjustu fjölmiðlakönnun Gallup (okt. 2005) nærðu
til rúmlega tvöfalt fleiri Íslendinga á aldrinum 20 – 40 ára
með því að auglýsa í atvinnublaði Fréttablaðsins frekar en
atvinnublaði Morgunblaðsins. Könnunin sýnir að 38% þeim lesa
Allt – atvinnu, sem fylgir frítt með Fréttablaðinu alla sunnu-
daga. Aðeins 18% lesa hins vegar atvinnublað Morgunblaðsins
og því eru 111% fleiri sem sjá auglýsinguna í Fréttablaðinu.
Þegar horft er á allar staðreyndir málsins ætti að vera einfalt
að sjá hvar borgar sig að auglýsa.
Hvar birtist auglýsingin þín?
Vantar þig
starfskraft?
– mest lesna atvinnublaðið
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI