Fréttablaðið - 17.12.2005, Síða 75
17. desember 2005 LAUGARDAGUR50
MÓÐUR VIKUNNAR
> MARTA SMARTA FER YFIR MÁLIN
Spáir þú mikið í tískuna? Kannski
ekki beint tískuna heldur frekar í
hverju ég vil vera og hvað fer mér
best.
Hvernig myndirðu lýsa stílnum
þínum? Á einhverju flakki á milli
áratuga.
Uppáhaldshönnuðir eða fata-
merki? Ég á engan vegna þess
að ég man aldrei nöfnin þeirra.
En mér finnst Aftur peysurnar og
nýja dótið sem þær voru að setja
inn í Trilógíu alveg vera að virka,
það er að segja fyrir stelpurnar.
Flottustu litirnir? Grænn og
moldarbrúnn.
Hverju ertu veikastur fyrir?
Sólgleraugum, höttum og ef ég
finn flott jakkaföt frá sjötta eða
sjöunda áratugnum þá verð ég
að kaupa þau. Ef einhver þarna
úti veit um slík föt þá má sá hinn
sami endilega hafa samband.
Hvaða flík keyptir þú þér
síðast? Sokka og hatt, tveir alveg
nauðsynlegir hlutir.
Hvað finnst þér flottast í
tískunni núna? Ungir menn með
hatta og þröng jakkaföt.
Hvað ætlar þú að kaupa fyrir
veturinn? Góða ullarsokka og
ullarpeysu (vonum að einhver
gefi mér í jólagjöf).
Uppáhaldsverslun? Herrafata-
verslunin Elvis.
Hvað eyðir þú miklum pening-
um í föt á mánuði? Fer algörlega
eftir því hvað ég finn mikið af
fötum í hverjum mánuði fyrir sig.
Hvaða flíkur gætir þú ekki
verið án? Föðurlandsins og
sjóliðajakkans míns.
Uppáhaldsflík? Vestið sem ég
er í vegna þess að það er bara til
eitt af því í heiminum.
Hvert myndir þú fara í versl-
unarferð? Ég myndi fara á
flóamarkað sem er einu sinni á
ári í Stokkhólmi hjá UFF.
Ljótasta flík sem þú hefur
keypt þér? Ég keypti hana reynd-
ar ekki en mér var gefin hún
þegar ónefnd manneskja kom
úr verslunarferð frá Þýskalandi.
Ég var 15 ára og ég vissi
ekkert um tískuna þar.
Þá var í tísku svona
mittisleðurjakkar
sem voru allir út
í rennilásum en
þessi manneskja
gaf mér dúnúlpu í
þeim stíl sem var
með belti til að
binda um mittið.
Sú flík komst
aðeins einu sinni
á mig og það var
aðeins til að spyrja
manneskjuna hvort
hún vildi að ég yrði
laminn í skólanum.
SMEKKURINN: ARON BERGMANN MYNDLISTARMAÐUR OG ANNAR EIGANDI GEL GALLERÍS
Ungir menn með hatta flottastir
Það er áberandi hversu heitir litir eru sterkir í herratísk-unni í dag. Brúnir tónar eru
ráðandi ásamt appelsínugulum,
rauðum og mosagrænum. Þessa
liti má svo poppa upp með sterk-
um litum við eða tóna niður með
svörtum sem er einnig hrikalega
heitur. Kaldir litir eins og grár og
blár eru á undanhaldi og ættu karl-
menn alls ekki að vera hræddir við
að klæðast djörfum litum eins og
appelsínugulum eða bleikum.
Ný búð í miðbænum nefnist
Kúltúr Menn og er þetta eina búðin
á Íslandi sem býður viðskiptavin-
um upp á vörur frá snillingnum
Paul Smith sem þekktur er fyrir
litagleði og djarfa hönnun. Aðrar
búðir sem eru flottar fyrir herra-
mennina sem pæla í tískunni eru til
dæmis GK, Elvis og Kronkron.
Það sem hver einasti herramað-
ur í bænum ætti að eiga eru þröng-
ar gallabuxur og támjóir fínir skór
auk þess sem hlý ullarkápa er nauð-
synleg. Jakkafatavesti koma einnig
sterk inn í tískuna en þau þarf ekki
alltaf að nota við jakkaföt heldur eru
þau hrikalega töff við þröngu galla-
buxurnar og támjóu skóna.
hilda@frettabladid.is
Heitir litir fyrir
herrana
> Alvörustjarna
Rakspírinn True
star frá Tommy
Hilfiger er
ljómandi mildur
og góður fyrir
töffarann sem og
mjúka manninn.
RÖNDÓTT Töff peysa úr
Kúltúr Menn en svona
röndóttar peysur ganga við
nánast hvað sem er.
LEÐURJAKKI Þeir eru klass-
ískir leðurjakkar og þurfa
allir að eiga einn, þessi er úr
Kúltúr Menn.
FLOTTIR SKÓR Nauðsynlegt að eiga góða skó við
jakkafötin, þessir eru úr Kúltúr Menn.
ULLARJAKKI Þessi er
skemmtilega áberandi og
gífurlega töff, úr GK.
TREFLAR Hlýjir og
dásamlega svalir
treflar úr Kúltúr
Menn frá Paul
Smith.
SOKKAR Flottir
Paul Smith
sokkar.
ERMAHNAPPAR Þessir
ættu að vekja athygli,
Paul Smith ermahnapp-
ar úr Kúltúr Menn.
PAUL SMITH Búðin Kúltúr
Menn hefur tekið vörur frá
Paul Smith til sölu.
BINDI Þverröndótt var það heillin.
Brúnir tónar eru heitir í dag, bindin
eru úr GK.
KÚREKASTÍG-
VÉL Óskaplega
töff stígvél
sem ganga við
gallabuxur eða
töff jakkaföt,
úr Kúltúr
Menn.
HERRATASKA
Strákar þurfa líka
að ferðast um
með dótar á sér
og þessi flotta
leðurtaska er
tilvalin í það. Úr
Kúltúr Menn.
BRÚNIR
TÓNAR Glæsi-
leg jakkaföt
frá Perry Ellis.
PRJÓNAPEYSA Flott peysa í hlýjum
litum frá Perry Ellis.
ÓMÓT-
STÆÐI-
LEGUR
Ilmurinn
Very Irres-
istible frá
Givenchy.
Á þessum árstíma er ekki annað hægt en að líta yfir liðið ár og horfa
til framtíðar. Ég kemst ekki hjá því að hugsa um það sem betur
hefði mátt fara en líka hvað ég er ánægðust með og stoltust af.
Þegar tíska ársins 2005 er skoðuð kemur í ljós að árið byrjaði sér-
lega þjóðlega. Bróderaðar skyrtur í indverskum stíl, sígaunapils og
hippaleg stígvél með fylltum hæl t ó k u völdin og litasinfonían
var mild. Jarðlitir í bland við ljóst og drapplitað
með örlitlu appelsínugulu. Þegar voraði urðu
litirnir bjartari og glingrið hertók tískuna
með síðum perlufestum, eyrnalokkum
og armböndum. Stefn- an var að hlaða
sem mestu utan á sig. Margar
skvísurnar gengu meira að segja
svo langt að mæta með glingrið
á sólarstrandir og jafnvel í
sund til að vera ö r u g g l e g a
smartastar. Síð pils, sandal-
ar með fylltum hæl og breið
belti urðu að e i n - kennisbún-
ingi margra sem oft sáust spranga um
miðbæ Reykjavíkur með ferskjulitaðan kinnalit og sykursætt gloss.
Þegar kólna fór í veðri varð allt einfaldara. Svarti liturinn kom eins
og riddarinn á hvíta hestinum og geystist fram og varð hrókur alls
fagnaðar. Hin kvenlegu áhrif fóru ekki framhjá neinum, aðsniðnir
jakkar, pensilpils, blúndur og satínefni. Rauði þykki varaliturinn tók
við af glossinu og spangir komust í tísku. Svo voru það hnébuxurnar
sem komu feikilega sterkar inn og eru svo sannarlega ekki á útleið.
Það sama má segja um niðurmjóu gallabuxurnar.
Það er því ekki annað hægt að segja en að þetta ár
hafi verið nokkuð líflegt þegar kemur að tískunni. Það
er samt eitt sem gerðist sem er mjög eftirminnilegt.
Ég byrjaði að snobba fyrir sokkabuxum. Hingað til hef
ég alltaf bara kippt sokkabuxum með í matvörubúðinni
en á árinu breyttist það. Ég komst sumsé í kynni við
Wolford og þá var ekki aftur snúið. Vinkona mín hafði
oft imprað á þessu, flokkað það sem dekur að kaupa sér
nýjar sokkabuxur og hressa upp á heildarútlitið enda
væru þessar sokkabuxur í Prada-flokknum ógurlega.
Þetta helst líka örugglega í hendur við aldurinn, kröf-
urnar breytast og smekkurinn með. Nú hugsa ég eins
og fullorðin, þykist ekki ætla að kaupa mér nein jóla-
föt en kaupi þess í stað nokkur pör af rándýrum
sokkabuxum og þykist ekki hafa eytt neinu.
Gáfulegt ekki satt?
Líflegt tískuár