Fréttablaðið - 17.12.2005, Qupperneq 87
Grétar Rafn Steinsson, landsliðsmað-
ur Íslands í knattspyrnu og leikmaður
hollenska úrvalsdeildarliðsins AZ Alk-
maar, segist ákveðinn í því að verða
Evrópumeistari með liði sínu í vor. „Á
síðustu leiktíð komst AZ í undanúrslit
keppninnar. Lið okkar er sterkara nú
en það var í fyrra, og það er okkar
markmið að vinna þessa keppni.“
Dregið var í gær í 32-liða úrslit í Evr-
ópukeppni félagsliða og dróst AZ gegn
spænska liðinu Real Betis. „Það leggst
vel í mig að mæta Real Betis. Öll lið
sem komast í Meistaradeildina eru
sterk og það er ekki hægt að búast
við öðru en erfiðum viðureignum
gegn Betis. Sennilega var Real Betis
sterkasta liðið sem við gátum fengið,
ásamt þýska liðinu Schalke. Það leggst
vel í mig að taka á leikmönnum Betis.
Ég hef einu sinni komið á leikvang
Real Betis í Sevilla og hann er sérlega
glæsilegur. Ég var þá að fylgjast
með Jóhannesi Karli Guðjóns-
syni, sem þá var leikmaður
Betis. Ég hef fulla trú á mínu
liði og tel okkur geta komist
alla leið í þessari keppni.“
AZ er einnig í toppbaráttu í
Hollandi þar sem liðið etur
kappi við PSV, Feyen-
oord og Ajax og segir
Grétar aðalmuninn á
liðunum felast í því
að AZ er með sterka
liðsheild, á meðan
stóru liðin tefla fram
sterkum einstakl-
ingum. „Okkar aðalsmerki er jöfn og
sterk liðsheild og leggur knattspyrnu-
stjórinn Lois van Gaal mikla áherslu
á að við setjum liðið alltaf fyrst í
forgangsröðina. Allar aðgerðir
okkar inni á vellinum eiga að
miðast við það að bæta liðið og
það finnst mér henta þessum
leikmannahópi afar vel. Það eru
margir sterkir leikmenn í hópn-
um, meðal annars eru fjórir
varnarmenn í hópnum
í hollenska lands-
liðshópnum, og því
þarf maður að hafa
mikið fyrir því að
halda sér í liðinu.
Það heldur manni
við efnið.“
GRÉTAR RAFN STEINSSON LANDSLIÐSMAÐUR Í KNATTSPYRNU: Í ELDLÍNUNNI MEÐ AZ Í HOLLANDI
Ætla að verða Evrópumeistari í vor
FÓTBOLTI Fyrir nokkrum vikum lét
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri
Chelsea, hafa eftir sér að það
skipti engu máli hvort lið hans
hafnaði í fyrsta eða öðru sæti
G-riðils Meistaradeildarinnar
– þegar í 16-lið væru öll liðin gríð-
arlega öflug og allir leikir jafn
erfiðir. Í gær var ljóst að lið hans
mætir Barcelona í 16-liða úrslit-
unum á meðan Liverpool tekur á
móti Benfica. Það er því kannski
ekki furða að menn velti því fyrir
sér í gær hvort Mourinho hafi
eytt stærstum hluta dagsins í að
éta þessi orð ofan í sig.
Peter Kenyon, stjórnarformað-
ur Chelsea, glotti í sömu vitund
og nafn Barcelona var lesið upp
yfir væntanlegan andstæðing
Chelsea. „Örlögin réðu þessu því
á æfingunni í gær drógumst við
líka gegn Barcelona. En þetta
einvígi leggst vel í mig, þetta
verða stórkostlegir leikir tveggja
frábærra liða.“
Eiður Smári Guðjohnsen sagði
við Fréttablaðið í gær að honum
þætti fínt að hafa dregist á móti
Chelsea. „Þetta var kallað ein-
vígi aldarinnar í fyrra og verð-
ur örugglega kallað einhverjum
slíkum nöfnum núna,“ segir Eiður
sem hlakkar mikið til leikjanna
sem fara fram 22. febrúar og 7.
mars nk. Viðureignir liðanna í
16-liða úrslitunum í fyrra urðu
sögulegar, en þá vann Chelsea
samanlagðan 5-4 sigur í tveimur
ótrúlegum knattspyrnuleikjum.
„Við drógumst á móti því liði
sem er að spila hvað best um
þessar mundir en þegar spilað er
í þessum styrkleikaflokki þá er
alveg ljóst að það verður að sigra
mjög sterk lið til að komast áfram.
Það verður enginn sigurvegari í
þessari keppni án þess að vinna
eitthvert af sterkustu félagslið-
um Evrópu,“ en bætir því við að
ekki megi gleyma að Chelsea
sé einnig í þeim hópi. „Það vita
allir að Chelsea er mjög erfiður
andstæðingur,“ segir hann.
Besti knattspyrnumaður
heims, Ronaldinho hjá Barcelona,
býst við endurtekningu á þeirri
skemmtun sem liðin buðu upp á
í fyrra. „Liðin munu aftur bjóða
upp á fótbolta eins og hann gerist
bestur en við erum ákveðnir í að
gera ekki aftur þau mistök sem
við gerðum í leikjunum í fyrra,“
segir Ronaldinho.
Arsenal bíður gríðarlega erfitt
verkefni gegn Real Madrid í við-
ureignum sem David Dein, vara-
formaður Arsenal, segir að verði
skemmtisýning fyrir áhorfendur.
„Þvílíkur dráttur! Þetta er frá-
bært fyrir Arsenal. Real Madrid
er eitt stórkostlegasta lið í Evr-
ópu en við höfum aldrei mætt
því í Evrópukeppni. Allir hlakka
mikið til,“ sagði Dein.
Í þriðju risaviðureigninni
mætast AC Milan og Bayern
München og sagði varaforstjóri
Milan, Adriano Galliani, eftir
dráttinn að það væri synd að liðin
þyrftu að mætast svo snemma
í keppninni. „Við vildum sleppa
við að mæta liði í 16-liða úrslitum
sem er með yfirburði í deildinni
í heimalandi sínu. Svo er ekki og
það er ljóst að okkur bíður gríðar-
lega erfitt verkefni.“
- vig
Örlögin drógu liðin saman
Peter Kenyon hjá Chelsea segir að örlögin hafi ráðið því að ensku meistararnir
hafi dregist á móti Barcelona í 16-liða úrslitum í meistaradeildinni annað árið í
röð. Eiður Smári segir fínt að mæta Barcelona á þessum tímapunkti í keppninni.
ÖRLÖG Peter Kenyon, stjórnarformaður
Chelsea, trúði varla sínum eigin augum
þegar að hann sá nafn Barcelona dragast
upp úr hattinum þegar dregið var í 16-liða
úrslit Meistaradeildarinnar í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
16-LIÐA ÚRSLITIN
VIÐUREIGNIR DAGSETNING
Bayern München-AC Milan 21. feb/8. mars
Benfica-Liverpool 21. feb/8. mars
PSV-Lyon 21. feb/8. mars
Real Madrid-Arsenal 21. feb/8. mars
Chelsea-Barcelona 22. feb/7. mars
Rangers-Villareal 22. feb/7. mars
W. Bremen-Juventus 22. feb/7. mars
Ajax-Inter 22. feb/14. mars
Síðarnefnda liðið spilar á heimavelli í síðari
leiknum.
GLOTT Það var því ekki furða að Peter Kenyon skyldi hafa verið vinsælastur á meðal
blaðamanna eftir dráttinn í gær, enda með ólíkindum að Chelsea og Barcelona þurfi að
endurtaka einvígi sitt frá því í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
> Meistararnir gefa út DVD
Íslandsmeistarar FH og bikarmeistarar
Vals í fótboltanum hér heima munu á
næstu dögum gefa út DVD-disk þar sem
sýnd verða öll mörk sumarsins og svip-
myndir sýndar frá sumrinu. Á báðum
diskunum verður að finna viðtöl við
leikmenn og þjálfara liðanna og á disk
Valsmanna verður m.a. hægt að horfa
á bikarúrslitaleikinn í fullri
lengd í undirtali Sigur-
björns Hreiðarssonar
fyrirliða þar sem
hann kryfur leikinn
til mergjar.
Sannarlega
frábært
framtak frá
þessum
tveimur af
stærstu félög-
um landsins.
62 17. desember 2005 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Frank Rijkaard, knatt-
spyrnustjóri Barcelona, segir að
endurtekningin á viðureign liðs-
ins gegn Chelsea í 16-liða úrslit-
um Meistaradeildarinnar snúist
ekki um að ná fram hefndum. Í
fyrra vann Chelsea samanlagðan
sigur í tveimur frábærum leikjum
þar sem Rijkaard og Mourinho
lenti nokkrum sinnum saman og
rifu kjaft hvor við annan.
„Hefnd er ekki rétta orðið,“
segir Rijkaard. „Þetta verður
mjög athyglisverður leikur, ekki
bara fyrir liðin sem eru að leika
hann heldur fyrir fótboltann
almennt. Þetta eru tvö af sterk-
ustu liðum Evrópu í dag,“ sagði
Rijkaard og bætti því við að deila
hans og Mourinho væri gleymd og
grafin. „Ég vil aðeins hugsa út í
leikina sem eru framundan, ekki
þá sem liðnir eru.“ - vig
Frank Rijkaard, stjóri Börsunga:
Leikurinn snýst
ekki um hefnd
FÓTBOLTI David Beckham, enski
landsliðsfyrirliðinn hjá Real
Madrid, kveðst hlakka mikið til
að takast á við Arsenal í 16-liða
úrslitum Meistaradeildarinn-
ar. Síðan Beckham gekk til liðs
við Real fyrir tveimur og hálfu
ári hefur hann aldrei spilað með
liðinu á Englandi.
„Mig hefur alltaf langað að
snúa aftur og spila í heimalandi
mínu og nú loksins er það orðið
að veruleika,“ sagði Beckham
við fjölmiðla í gær. Hann hlakkar
mikið til leikjanna gegn Arsenal
sem hann telur að sé með erfiðustu
mótherjum sem Real gat fengið.
„Ég ber ómælda virðingu fyrir
Arsene Wenger. Hann er ekki
aðeins frábær persóna heldur líka
stórkostlegur stjóri og þjálfari. Ég
held að þetta verði magnaðir leik-
ir þar sem andrúmsloftið verður
rafmagnað.“
David Beckham er ánægður með dráttinn:
Bið Beckhams loks á enda
Við mælum með...
... að handboltaáhugamenn á landinu
fjölmenni á leik Hauka og Fram í DHL-
deild karla á morgun. Þarna er um
að ræða toppslag af bestu gerð þar
sem boðið verður upp á handbolta
eins og hann gerist bestur hér á landi.
Leikurinn fer fram á Ásvöllum og hefst
klukkan 16.15.