Fréttablaðið - 17.12.2005, Síða 97

Fréttablaðið - 17.12.2005, Síða 97
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 FÖRNUFT hnífapör 24 stk. 990,- Jólin gera boð á undan sér 50 02 .V .B s met sy S AEKI re tn I © JULEN servíettur ýmsir litir 33x33 sm SVALKA rauðvínsglös 6 stk. 30 cl 495,- SMAKA ostahnífar 2 stk. SODA vínkælir Ø19x22 sm 1.990,- BLANDA BLANK skál ryðfrítt stál Ø28 sm 890,- SPALT servíettuhringir 6 stk. HAMPUS stóll 45x56x79 sm 7.950,- VICKNING fat 32x22 sm 790,- KUVERT diskamotta ryðfrítt stál 37x37 sm 790,- 495,- 450,- 90,- HEJ sprittkertastjaki ýmsir litir 50,- Opið til 22:00 til jóla | www.IKEA.is 490,- Hangikjöt með kartöflum, uppstúf, rauðkáli og grænum baunum Ískaldur Léttur öllari ROYAL Konunglegur! ���������� ��������� ��������������� Mikið leið mér eins og sagan hefði endurtekið sig þegar Unnur Birna, eða U.B. eins og hún kallar sig í anda annarra þokkadísa sem kjósa að nota skammstafanir í stað fulls nafns – samanber J Lo og fleiri – var kjörin ungfrú heimur. Nú þarf bara einhver sterkur karlmaður að næla í titilinn sterkasti maður heims einsog Jón Páll, og við erum komin beint aftur til ársins nítjánhundruðáttatíuogeitthvað, þegar Hófi og Jón Páll stóðu í far- arbroddi stoltra Íslendinga. Sá sterki má þó helst ekki notast við skammstöfun heldur yrði betra að hann bæri líka millinafnið Páll, til dæmis Kristmundur Páll, svo hann geti hrópað: „Þetta er ekkert mál fyrir Kristmund Pál.“ Þá yrði endurtekningin alger. ÞAÐ er spurning hvort hinn nýkrýnda fegurðardrottning, sem er vel að titlinum komin, verður látin selja fisk í Ameríku fyrir Íslendinga eins og fyrri alheims- fegurðardrottningar. Eitt sinn las ég nefnilega viðtal við eina af okkar eldri afrekskonum í fegurð þar sem hún lýsti því yfir að af öllu því sem hún var látin gera á því ári sem hún bar hinn stóra titil hafi það verið hræðilegast af öllu að standa meikuð í síðum kjól, með borða og kórónu í fiskibás á sölusýningu í Boston og freista þess að selja þorsk með því að brosa fallega. HVAÐ hefur breyst? Erum við ennþá jafn bjánaleg? Ég skal éta hatt minn og skó ef U.B. verður göbbuð í það að selja þorsk í Boston. Sjáv- arútvegur er ekki lengur jafn mikill undirstöðuatvinnuvegur á Íslandi að hagsmunaaðilar á þeim bæ hafi aðgang að sjálfri alheimsfegurðar- drottningunni. En það breytir ekki því að margt bjánalegt gæti samt gerst. Ég held að hinn séríslenski hallærisskapur lifi ennþá góðu lífi. NÚNA tíðkast að flytja inn alls konar hæfileikafólk frá útlöndum og halda lokaða boðstónleika í boði banka handa efnafólki. Það kæmi ekki á óvart ef U.B. yrði einhvern tímann látin taka á móti einum svoleiðis tignargesti með kórónu og sprota við hlið forseta Íslands sem héldi af því tilefni ræðu um íslenska fegurð og fólkið í land- inu. Ég sé þetta fyrir mér. Margur myndi sökkva í sætið með bjána- hroll í slíkum kringumstæðum. Hið nýríka Ísland er fullt af mögulegum kjánaskap, hvert sem litið er. VERÐUR Unnur Birna látin fylgja bökkum af sérinnfluttu strútakjöti inn á salinn á galadinner í Perlunni einhvern tímann á næstunni til styrktar börnum í Afríku? Látin bjóða upp ómáluð málverk? Verð- ur hún látin opna útibú íslenskrar dótabúðarkeðju í Swansee? Verður hún kannski látin keyra brosandi um á dýrasta og flottasta Porsche- jeppanum sem hingað hefur verið fluttur fyrr og síðar? Verður hún látin opna fyrir rennsli í veitugöng- in við Kárahnjúka þegar þar að kemur? Friðrik Sophusson heldur ræðu. ÉG vona bara að Unnur hafi notað það sem hún kann í lögfræði og ekki skrifað undir neitt. Nú gildir að passa sig. ■ U.B.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.