Fréttablaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 97
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
FÖRNUFT
hnífapör 24 stk. 990,-
Jólin gera boð
á undan sér
50 02 .V .B
s
met sy S
AEKI
re tn I
©
JULEN servíettur
ýmsir litir 33x33 sm
SVALKA rauðvínsglös
6 stk. 30 cl 495,-
SMAKA
ostahnífar 2 stk.
SODA vínkælir
Ø19x22 sm 1.990,-
BLANDA BLANK skál
ryðfrítt stál Ø28 sm 890,-
SPALT
servíettuhringir 6 stk. HAMPUS stóll
45x56x79 sm 7.950,-
VICKNING fat
32x22 sm 790,-
KUVERT diskamotta
ryðfrítt stál 37x37 sm
790,-
495,-
450,-
90,-
HEJ sprittkertastjaki
ýmsir litir 50,-
Opið til 22:00 til jóla | www.IKEA.is
490,-
Hangikjöt
með kartöflum, uppstúf,
rauðkáli og grænum baunum
Ískaldur
Léttur öllari ROYAL
Konunglegur!
����������
���������
���������������
Mikið leið mér eins og sagan hefði endurtekið sig þegar
Unnur Birna, eða U.B. eins og
hún kallar sig í anda annarra
þokkadísa sem kjósa að nota
skammstafanir í stað fulls nafns
– samanber J Lo og fleiri – var
kjörin ungfrú heimur. Nú þarf
bara einhver sterkur karlmaður
að næla í titilinn sterkasti maður
heims einsog Jón Páll, og við
erum komin beint aftur til ársins
nítjánhundruðáttatíuogeitthvað,
þegar Hófi og Jón Páll stóðu í far-
arbroddi stoltra Íslendinga. Sá
sterki má þó helst ekki notast við
skammstöfun heldur yrði betra
að hann bæri líka millinafnið
Páll, til dæmis Kristmundur Páll,
svo hann geti hrópað: „Þetta er
ekkert mál fyrir Kristmund Pál.“
Þá yrði endurtekningin alger.
ÞAÐ er spurning hvort hinn
nýkrýnda fegurðardrottning, sem
er vel að titlinum komin, verður
látin selja fisk í Ameríku fyrir
Íslendinga eins og fyrri alheims-
fegurðardrottningar. Eitt sinn
las ég nefnilega viðtal við eina af
okkar eldri afrekskonum í fegurð
þar sem hún lýsti því yfir að af öllu
því sem hún var látin gera á því ári
sem hún bar hinn stóra titil hafi það
verið hræðilegast af öllu að standa
meikuð í síðum kjól, með borða og
kórónu í fiskibás á sölusýningu
í Boston og freista þess að selja
þorsk með því að brosa fallega.
HVAÐ hefur breyst? Erum við
ennþá jafn bjánaleg? Ég skal éta hatt
minn og skó ef U.B. verður göbbuð
í það að selja þorsk í Boston. Sjáv-
arútvegur er ekki lengur jafn mikill
undirstöðuatvinnuvegur á Íslandi
að hagsmunaaðilar á þeim bæ hafi
aðgang að sjálfri alheimsfegurðar-
drottningunni. En það breytir ekki
því að margt bjánalegt gæti samt
gerst. Ég held að hinn séríslenski
hallærisskapur lifi ennþá góðu lífi.
NÚNA tíðkast að flytja inn alls
konar hæfileikafólk frá útlöndum
og halda lokaða boðstónleika í boði
banka handa efnafólki. Það kæmi
ekki á óvart ef U.B. yrði einhvern
tímann látin taka á móti einum
svoleiðis tignargesti með kórónu
og sprota við hlið forseta Íslands
sem héldi af því tilefni ræðu um
íslenska fegurð og fólkið í land-
inu. Ég sé þetta fyrir mér. Margur
myndi sökkva í sætið með bjána-
hroll í slíkum kringumstæðum. Hið
nýríka Ísland er fullt af mögulegum
kjánaskap, hvert sem litið er.
VERÐUR Unnur Birna látin fylgja
bökkum af sérinnfluttu strútakjöti
inn á salinn á galadinner í Perlunni
einhvern tímann á næstunni til
styrktar börnum í Afríku? Látin
bjóða upp ómáluð málverk? Verð-
ur hún látin opna útibú íslenskrar
dótabúðarkeðju í Swansee? Verður
hún kannski látin keyra brosandi
um á dýrasta og flottasta Porsche-
jeppanum sem hingað hefur verið
fluttur fyrr og síðar? Verður hún
látin opna fyrir rennsli í veitugöng-
in við Kárahnjúka þegar þar að
kemur? Friðrik Sophusson heldur
ræðu.
ÉG vona bara að Unnur hafi notað
það sem hún kann í lögfræði og
ekki skrifað undir neitt. Nú gildir
að passa sig. ■
U.B.