Fréttablaðið - 22.12.2005, Page 2
2 22. desember 2005 FIMMTUDAGUR
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18
Opið virka daga: 10-18
laugardaga: 11-15
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
LAUNAHÆKKUN EMBÆTTISMANNA Á EINU ÁRI
Forseti Íslands 1.626.722 1.534.040 1.460.156 166.566
Forsætisráðherra 989.862 915.162 871.085 118.777
Ráðherrar 892.799 825.424 785.669 107.130
Forseti Hæstaréttar 946.652 875.211 614.545 332.107
Hæstaréttardómarar 856.797 792.137 573.684 283.113
Héraðsdómarar 671.596 620.912 450.910 220.686
Alþingismenn 497.471 459.929 450.910 46.561
Ríkissaksóknari 856.797 792.137 573.684 283.113
Ríkissáttasemjari 880.169 813.744 554.284 325.885
Ríkisendurskoðandi 880.169 813.744 554.284 325.885
Biskup Íslands 800.569 740.152 554.284 246.285
Dómstjórinn í Reykjavík 820.205 758.305 499.932 320.273
Dómstjórar utan Reykjavíkur 738.757 683.005 466.692 272.065
Umboðsmaður barna 611.896 565.718 450.910 160.986
Laun 1. jan.
2006
Laun 1. júl.
2005
Laun 1. jan.
2005
Hækkun á
einu ári
KJARADÓMUR Heildarlaun forseta
Hæstaréttar hafa hækkað lang-
mest í krónutölu samkvæmt nýjasta
úrskurði kjaradóms, eða um 332.107
krónur á mánuði eftir þrjár hækk-
anir á einu ári. Ríkissáttasemjari
og ríkisendurskoðandi koma næstir
með 325.885 króna hækkun og dóm-
stjórinn í Reykjavík hefur hækkað
um 320.273 krónur á mánuði.
Alþingismenn, ráðherrar, um -
boðs maður barna og forseti Íslands
hafa hækkað minnst. Alþingismenn-
irnir hafa aðeins hækkað um 46.561
krónu meðan ráðherrar hafa hækk-
að um 107.130 krónur, umboðsmaður
barna um 160.986 krónur og forseti
Íslands um 166.566 krónur.
Hækkun forsætisráðherra, ráð-
herra, þingmanna og dómara er
rúmlega 10 prósent á einu ári, forset-
ans rúm átta prósent og verkafólks
sjö prósent.
Heildarlaun embættismannanna
hafa tvöfaldast á við það sem gerist
á almennum vinnumarkaði frá 1999.
Sé litið lengra aftur, eða til ársins
1998, hafa grunnlaun forsætisráð-
herra, annarra ráðherra og þing-
manna hækkað um 126 prósent en
grunnlaun verkafólks hafa hækkað
um 71 prósent á sama tíma. Í þess-
um tölum er miðað við framreiknað-
ar hækkanir og þróun launavísitölu.
Launaþróun verkafólks er áætluð
árið 2005. Forseti Íslands er ekki
inni í þessum samanburði.
Sé launaþróunin skoðuð frá
janúar 2001 og forsetinn tekinn
með hafa laun forsætisráðherra,
ráðherra og þingmanna hækkað um
tæplega 64 prósent en laun verka-
fólks um rúmlega 34 prósent. Laun
forsetans hafa hækkað í takt við
laun verkafólksins.
„Hópur embættismanna fær
ítrekað launabreytingar, sem eru
langt umfram það sem þessir
einstaklingar telja forsvaranlegt
gagnvart almenningi. Því miður
er þetta enn eitt dæmið um að það
búa fleiri en ein þjóð í þessu landi,“
segir Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ, um úrskurð
kjaradóms.
Kjaradómur hefur rökstutt
hækkanirnar núna þannig að
verið sé að fylgja eftir ákvörðun
kjaranefndar í sumar um hækk-
anir annarra háttsettra embætt-
ismanna en háskólamenntaðir
starfsmenn ríkisins fengu þá 4,5
prósenta flata launahækkun yfir
línuna. Gylfi telur hækkanirnar
helmingi meiri en hafi verið á
vinnumarkaði þó að tekið sé tillit
til launaskriðs. ghs@frettabladid.is
Tvær þjóðir búa í landinu
Laun ráðherra og þingmanna hafa hækkað um 64 prósent frá 2001 en verkafólks um 34 prósent. Heildarlaun embættis -
manna hafa hækkað mun meira en annarra. Framkvæmdastjóri ASÍ segir ljóst að fleiri en ein þjóð búi í landinu.
HLUTFALLSHÆKKUN LAUNA
H
Æ
K
K
U
N
2
00
1
51,07%
H
Æ
K
K
U
N
2
00
0
51,07%
H
Æ
K
K
U
N
2
00
2
37,21%
H
Æ
K
K
U
N
2
00
3
24,50%
H
Æ
K
K
U
N
2
00
4
5,06%
H
Æ
K
K
U
N
1
99
9
76,61% hjá embættismönnum
og ráðherrum.
Hækkun síðan 1998 - 127,8% 126,0% 126,0% 88,6% 93,6% 99,8% 70,4%
Hækkun síðan 2001 30,1% 64,6% 63,2% 63,7% 55,6% 59,8% 57,1% 34,2%
Árshækkun til janúar 2006 8,2% 10,3% 10,3% 10,3% 10,3% 10,3% 10,3% 6,8%
LAUNAÞRÓUN HELSTU EMBÆTTISMANNA ÞJÓÐARINNAR OG VERKAFÓLKS
Forseti
Íslands
Forsætis-
ráðherra Ráðherrar Þingmenn
Forseti
Hæstaréttar
Hæstaréttar-
dómarar
Héraðs-
dómarar Verkafólk
LÆKNARITARAR
Meðaldagvinnulaun læknaritara innan
SFR hjá ríkisstofnunum voru 108
þúsund krónur á mánuði. Ef meðal-
dagvinnulaunin hefðu hækkað um 90
prósent frá 1999 til 2006, eins og laun
helstu embættismanna þjóðarinnar
hafa, þá hefðu meðaldagvinnulaun
læknaritara verið 205 þúsund krónur
í upphafi árs 2006. Þess í stað verða
þau um 170 þúsund krónur á mánuði í
upphafi næsta árs.
SPURNING DAGSINS
Mörður, tók Þorsteinn
sögulega ákvörðun?
„Hann er að minnsta kosti úr sögunni,
blessaður.“
Þorsteinn Pálsson hefur hætt við að skrifa
sögu þingræðis á Íslandi. Mörður Árnason
alþingismaður var meðal þeirra sem
gagnrýndu að Þorsteini var falið starfið.
DÓMSMÁL Sautján ára piltur var
sektaður um 80.000 krónur í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær
fyrir líkamsárás á rúmlega fer-
tuga afgreiðslukonu í söluturnin-
um Fröken Reykjavík í fyrravor.
Pilturinn, sem var sextán ára
þegar árásin var framin, kom
inn á söluturninn ásamt félaga
sínum til að nota spilakassa en
þegar afgreiðslustúlkan bað
hann um að framvísa skilríkjum
brást hann illa við og hreytti í
hana fúkyrðum.
Afgreiðslustúlkan vísaði því
næst piltinum á dyr og upphófust
þá átök. Piltinum er gefið að sök
að hafa ráðist að afgreiðslukon-
unni og slegið hana þrisvar sinn-
um með hnefanum í andlitið og
líkama svo sá á konunni.
Pilturinn hélt því fram fyrir
rétti að hann hefði hræðst
afgreiðslukonuna og því brugð-
ist við með áðurgreindum hætti.
Hann viðurkenndi að hafa verið
haldinn spilafíkn á þessum tíma
og því illa ráðið við skap sitt.
Við refsiákvörðun kom fram
að pilturinn hafði áður verið
dæmdur fyrir líkamsárás,
eignaspjöll og fíkniefnabrot en
vegna þess að líkamsárásin var
framin áður en hann hlaut dóm
fyrir þau mál var refsing hans
ákveðin sem hegningarauki.
Piltinum var gert að greiða, auk
sektarinnar, 145.000 krónur til
brotaþola og 111.100 krónur í
sakarkostnað. - æþe
Sautján ára spilafíkill dæmdur fyrir líkamsárás á Fröken Reykjavík:
Var bannað að nota
spilakassa og brjálaðist
SPILAKASSAR Árásarmaðurinn kveðst hafa
misst stjórn á skapi sínu meðal annars
vegna spilafíknar.
VEÐUR „Eftir dag
vonar í gær og fram
eftir degi í dag verð
ég því miður að full-
yrða að það verða
rauð jól í borginni,“
segir Sigurður Þ.
Ragnarsson, veður-
fræðingur NFS.
„Eftir að hafa
rýnt vel í öll gögn
virðast hverfandi
líkur á jólasnjó.
Líkönin hafa tekið
á sig svipaða mynd
og því er hægt að reiða sig betur
á þau. Þau benda öll til rauðra jóla
hér í Reykjavík og fólk má ekki láta
blekkjast af smá kornum rétt fyrir
jól. Akureyringar eiga daufa von en
það verða helst Austfirðingar sem
fá hvíta breiðu,“ segir Sigurður.
„Ég tek samt fram að sú úrkoma
sem von er á er óttalega aum, þetta
verður enginn jólasnjór þótt jöfð lit-
ist aðeins hvít. Fólk verður bara að
ylja sér við jólaljósin þessa stystu
daga ársins.“
Von úti um jólasnjó:
Rauð jól í
borginni
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
SIGURÐUR Þ.
RAGNARSSON
Þykir miður að
afskrifa hvít jól
fyrir borgarbúa.
ÖRYRKJAMÁL Öryrkjabandalag
Íslands fær ekki sæti í nefnd á
vegum forsætisráðherra sem ætlað
er að endurskoða reglur um örorku-
bætur. Sigursteinn Másson, formað-
ur ÖBÍ, óskaði eftir því við forsæt-
isráðherra að fá sæti í nefndinni og
segist gáttaður á niðurstöðunni.
„Ég trúi því ekki að gengið verði
fram með þeim hætti að heildar-
samtök þeirra aðila sem mestan
hag hafa af því að rétt sé staðið
að örorkumati, sem er fatlað fólk
og sjúkt í þessu landi, eigi ekki að
koma að því að semja reglur um það
hvernig staðið er að því.“
Sigursteinn ræddi það við forystu
Alþýðusambandsins að hann teldi
ÖBÍ eiga að sitja í nefndinni. „Þeir
lofuðu mér að þeir myndu ekki
setja sig upp á móti því og ég sagði
forsætisráðherra frá því.“
Nefndin er nokkuð stór. Í henni
eru fulltrúar Alþýðusambandsins,
lífeyrissjóða, Samtaka atvinnulífs-
ins, BSRB og fjögurra ráðuneyta en
ÖBÍ er ekki beðið um tilnefningu.
„Mér hefur ekki verið tilkynnt
þessi niðurstaða með formlegum
hætti og ég hreinlega neita að trúa
því að gengið verði fram hjá heild-
arsamtökum fatlaðra með þessum
hætti.“
Samkvæmt upplýsingum frá
forsætisráðuneytinu verður leitað
til ÖBÍ í málum sem þykja snúa að
þeim beint.
Sigursteinn vandar ráðherra
ekki kveðjurnar. „Ef þetta verður
niðurstaðan þá veit ég ekki hvað
snýr upp og hvað snýr niður hjá
þessum stjórnvöldum.“ - sh
Öryrkjabandalag Íslands úti í kuldanum í nefnd um örorkubætur:
Trúir ekki niðurstöðunni
SIGURSTEINN MÁSSON FORMAÐUR ÖBÍ Seg-
ist ekki skilja hvað stjórnvöldum gengur til.
GYLFI ARNBJÖRNSSON Segir launahækkanir æðstu embættismanna óforsvaranlegar.
PAKISTAN, AP Donald Rums feld,
landvarnaráðherra Banda ríkj anna,
segir ólíklegt að Osama bin Laden
sé við stjórnvölinn hjá hryðju-
verkasamtökunum al-Kaída, ef
hann er þá enn á lífi.
Rumsfeld kom í gær í óvænta
heimsókn til Pakistan þar sem
hann heimsótti hamfarasvæðin í
Kasmír en á leiðinni ræddi hann
við fréttamenn.
Landvarnaráðherrann sagði
að bin Laden hefðist að líkindum
ennþá við í fjöllunum á landa-
mærum Afganistan og Pakistan.
Þó herlið verði flutt frá Afganist-
an segir Rumsfeld að áfram verði
leitað að bin Laden. ■
Donald Rumsfeld:
Bin Laden ekki
við fulla stjórn