Fréttablaðið - 22.12.2005, Page 24
22. desember 2005 FIMMTUDAGUR24
FRÉTTASKÝRING
HELGA TRYGGVADÓTTIR
helgat@frettabladid.is
Flestir fagna aðventu
og jólum, en árstíminn
reynist þó mörgum erfiður.
Sigríður Guðmarsdóttir
prestur segir börnin
leiðarvísi sinn að því að
eiga góða og afslappaða
aðventu.
„Aðventan reynist þeim sem eiga
við þunglyndi að stríða oft hrein-
asta píning,“ segir Sigríður Guð-
marsdóttir, sóknarprestur í Graf-
arholtssókn. „Þetta gerist einkum
vegna þess að eftir því sem aðrir
verða glaðari eykst munurinn milli
þeirra glöðu og þeirra sem eiga erf-
itt með að gleðjast.“
Sigríður bendir einnig á að rút-
ína skipti oft þá sem líður illa miklu
máli. „Á aðventunni förum við oft
út úr rútínunni. Auðvitað gerum
við það til þess að gera okkur glað-
an dag, en þetta er oft erfitt fyrir
þá sem eru veikir fyrir.“
„Aðrar ástæður geta þó einnig
legið að baki kvíða fyrir jólunum,
þar á meðal ástvinamissir og fjár-
skortur. Fyrstu jólin eftir ástvina-
missi eru oft gríðarlega erfið þar
sem allt minnir á þann sem farinn
er,“ segir Sigríður. „Jólin snúast að
svo miklu leyti um hefðir og venjur
þar sem allt er í föstum skorðum.
Þess vegna verður skarð þess sem
látinn er svo tilfinnanlegt.“
Einnig eru þó dæmi þess að
jólin geti hjálpað fólki að takast á
við missi náins ástvinar. „Ég veit
um fólk sem hefur fengið talsverða
lausn við það að takast á við jólin
og skarð ástvinarins sem látinn
er,“ segir Sigríður.
Prestar verða einnig mikið
varir við kvöl þeirra sem ekki hafa
efni á að halda jól. „Prestar sinna
oft tengiliðastarfi við hjálparstarf
og Mæðrastyrksnefnd og þeir
sem biðja um úthlutun eru gjarn-
an beðnir um að leita til prestsins
síns,“ segir Sigríður. „Fyrir jólin
fer því talsvert mikill tími hjá
okkur í að spjalla við fólk sem á um
sárt að binda og hefur neyðst til
þess að leita sér hjálpar.“
Sigríður segir það þung spor
að leita hjálpar fyrir jólin. „Van-
líðunin á sér í raun tvær orsakir,“
segir hún. „Annars vegar kemur til
vanlíðun vegna þess að fólk á ekki
fyrir jólagjöfum og hins vegar
upplifir fólk það sem ákveðna nið-
urlægingu að leita sér hjálpar.“
Sigríður segir að á móti komi að
þarna gefist kærkomið tækifæri
til þess að eiga góðar samræður
við fólkið. „Ég vonast til þess að
þrátt fyrir að það sé erfitt að biðja
um hjálp geti þetta orðið til þess
að fólk fái einnig stuðning á annan
hátt en bara mat, þó að það sé auð-
vitað afskaplega mikilvægt líka.“
Sigríður segist hafa borið undir
átta og níu ára gömul börn þá spurn-
ingu af hverju sumir hlökkuðu ekki
til jólanna. Þá hafi lítil stúlka sagt
að þegar fólk yrði fullorðið hætti
það að hlakka til jólanna. „Hún
taldi tilhlökkun til jólanna eitthvað
sem eldist af okkur, eins og trúin á
jólasveininn.“
Sigríður bendir þó á að margir
fullorðnir fái jafnframt mikið út
úr jólaundirbúningnum og upplifi
gleði og fögnuð á þessum árstíma.
„Maður vill oft hljóma svolítið
eins og það sé tóm sorg í kringum
jólin, en það er auðvitað alls ekki
rétt,“ segir Sigríður. „Bæði börn og
fullorðnir sækja afskaplega mikið
í ljósið sem fylgir jólunum, vegna
myrkursins sem hér ríkir í desem-
ber.“
Börnin eru lykill Sigríðar að því
að vera glöð og afslöppuð á jólun-
um. „Börnin eru mér leiðarvísir
á aðventunni og ég reyni að taka
mér þau til fyrirmyndar,“ segir
Sigríður. „Það er svo gaman að
finna hversu mikið börnin hlakka
til jólanna og hvernig gleði þeirra
á sér uppsprettu í sjálfri sér.“
Börnin vísa leiðina að
fögnuði á aðventunni
SIGRÍÐUR GUÐMARSDÓTTIR PRESTUR segir
bæði börn og fullorðna leita mikið í ljósið
sem fylgir jólunum.
GLEÐI Börnin hlakka mikið til jólanna, enda fylgja þeim ótalmargt skemmmtilegt fyrir yngsta fólkið. Þau hlakka til að opna pakkana, borða góðan mat og geta leikið sér úti í fríinu ef vel viðrar. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
„Eitt af því sem skiptir mjög miklu máli
við að stuðla að betri líðan er það að
við höfum eitthvað til þess að hlakka til
og getum fagnað ánægjulegum hlutum
og tímamótum,“ segir Hörður Þorgils-
son sálfræðingur.
Hörður segir hins vegar að allur gang-
ur sé á því hvort fólk hafi tilefni til þess
að fagna. „Í ljósi reynslu af tímamótum
þegar sorglegir og erfiðir atburðir hafa
komið upp hefur fólk minna tilefni til
fagnaðar en aðrir,“ segir Hörður. Hörður
segist leggja mikla áherslu á að fólk sé
hins vegar frjálst til þess að skapa sitt
eigið líf og hafa áhrif á eigin líðan. „Ég
reyni að hjálpa fólki að taka mið af eigin
forsendum og falli hvorki í klisjur um
ofurfögnuð né mikinn dapurleika,“ segir
Hörður.
Hörður kveðst ekki verða var við að
jólin hafi mikil áhrif á fólk sem leitar
til hans. „Fólk er yfirleitt að vinna með
mál sem eru alveg óháð jólunum. Hins
vegar geta jólin auðvitað stundum gert
það auðveldara eða erfiðara eftir því
hvernig mál eru vaxin.“
Mikilvægt að hugsa vel um eigin líðan á aðventunni:
Fögnuður og tilhlökkun mikilvæg
HÖRÐUR ÞORGILSSON SÁLFRÆÐINGUR
Hörður leggur mikla áherslu á að fólk sé
frjálst til að skapa eigið líf og hafa áhrif á
eigin líðan.
Tilfinningin um fögnuð á að
mestu rætur að rekja til mið-
taugakerfisins að sögn Þórs
Eysteinssonar, dósents við
Lífeðlisfræðistofnun Háskóla
Íslands.
„Við vitum að virkni eykst á
ákveðnum svæðum í heilanum
þegar við finnum fyrir gleði,“
segir Þór. „Eitt þessara svæða
kallast limbíska kerfið og er
nátengt tilfinningum.“ Þór
segir fíkn og gleði að mörgu
leyti skyld fyrirbæri, en sömu
heilastöðvar koma við sögu í
báðum tilfellum. „Þessar heila-
stöðvar eru fremur gamlar í
þróunarsögunni og hafa verið
til lengi,“ segir Þór.
Taugar frá þessum svæðum
liggja síðan til annarra svæða
heilans, þar á meðal heilabarkar.
Þau efni sem aðallega koma við
sögu eru serótónín og dópamín.
Komið hefur í ljós að þeir sem
glíma við þunglyndi og depurð
hafa minni virkni á þessum
svæðum heilans að sögn Þórs.
Virkjun ákveðinna svæða í heilanum veldur fögnuði:
Gleði og fíkn
skyldar tilfinningar